Þetta kemur fram í tölvupósti frá ritara skólans til forráðamanna nemenda. Þar segir að vatnspípa hafi farið í sundur með „tilheyrandi hasar“, hringt í slökkviliðið og von á því að einhverjir krakkar komi heim með stjörnur í augunum og með sögur að segja.
Vegna skemmda hafi þurft að loka skólanum og senda krakkana heim. Forráðamenn yngstu barnanna eru hvattir til að sækja þá í skólann.
Uppfært: Reiknað er með því að skólastarf geti hafist samkvæmt áætlun á morgun.