Talið er að fellibylurinn muni ná landi í Flórída á miðvikudagskvöld og eru embættismenn þegar byrjaðir að byrja fólk um að flýja svæðið þar sem talið er að Milton muni ná landi.
„Þetta óveður, lítur út eins og það gæti verið mun verra en Helena,“ hefur CNN eftir Jim Boyd, þingmanni á ríkisþingi Flórída. Hann sagði fólki að flýja, ef það væri á svæði sem ætti að rýma og ekki taka neina sénsa. Þetta yrði líklega lífshættulegt óveður.
Embættismenn hafa varað við því að sjávarstaða gæti hækkað um allt að fjóra metra, gangi spár eftir.
Milton fór frá því að vera skilgreindur sem óveður í að verða kröftugasti fellibylur ársins á einungis sólarhring. Undraverða styrkingu Miltons má rekja til óvenjulega hlýs Karíbahafs en fellibyljir draga í einföldu máli sagt, í sig kraft úr hlýjum sjó.
Hér að neðan má sjá hreyfimynd sem sýnir glögglega hvernig Milton hefur safnað krafti og stækkað á síðasta sólarhring.
From tropical storm to Category 5 hurricane in 24 hours.
— CIRA (@CIRA_CSU) October 7, 2024
Hurricane Milton underwent simply astonishing rapid intensification. pic.twitter.com/LhwNfUIAtO
Til að vera skilgreindur sem fimmta stigs, þarf vindhraði fellibyls að vera meiri en sjötíu metrar á sekúndu. Einungis sjö fellibyljir hafa náð fimmta stigi á þessum hraða og einungis einn hefur gert það hraðar en Milton, samkvæmt frétt Washington Post.
Þá er Milton sagður vera kröftugasti fellibylurinn sem myndast hefur svo seint á árinu á Mexíkóflóa frá 1966. Þegar kemur að vindstyrk, er fellibylurinn í fjórða sæti síðan mælingar hófust.