Vorið 2017 var undirritað samkomulag um uppbyggingu íbúða í Vesturburgt og áttu framkvæmdir að hefjast átján mánuðum síðar. Rétturinn endaði í höndum Kaldalóns og eftir að ekkert bólaði á framkvæmdum árum saman, rifti Reykjavíkurborg samningum við Kaldalón í júní í fyrra.
Á lóðunum Hlésgötu 1 og 2 verða 177 íbúðir í 2-5 hæða húsum auk bílakjallara og um 1.420 fermetra af atvinnuhúsnæði. Byggingarréttur er seldur á rúmlega 2,8 milljarða og álögð gatnagerðargjöld eru um 330 milljónir. Greiðslur til Reykjavíkurborgar nema því um 3,2 milljörðum króna, samkvæmt tilkynningu frá borginni.
„Að lágmarki 25 prósent íbúða á byggingarreitnum eiga að vera leiguíbúðir samkvæmt deiliskipulagi. Þar af eiga Félagsbústaðir kauprétt á allt að fjórtán íbúðum og Félagsstofnun stúdenta á kauprétt á allt að fimmtíu íbúðum,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar.
Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri M3 fasteignaþróunar, sagði í fréttum Stöðvar 2 að framkvæmdir hefjist vonandi í mars á næsta ári. Fyrst þurfi byggingarleyfi en mögulega yrði hægt að afhenda fyrstu íbúðirnar síðla árs 2027.
„Ég hef nú sagt að þetta sé síðasti þéttingarreiturinn, sem það er. Kannski fátítt að byggja íbúðir svona nálægt kyrrlátri höfn eins og hér er. Þannig að þetta er einstakt að mörgu leyti,“ sagði Örn.
Gert er ráð fyrir að byggðin verði blönduð og þar verði íbúðir fyrir stúdenta og þar að auki verði alls konar íbúðir í boði.