Þetta staðfestir Ingibjörg Ólöf Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, í samtali við Vísi. Hún segir að nú sé tími til að horfa fram á veginn. Forsætisráðherra tilkynnti á blaðamannafundi í dag að boðað yrði til kosninga í nóvember. Bjarni fundar með Höllu Tómasdóttur forseta klukkan níu í fyrramálið og mun leggja fyrir hana tillögu um þingrof.
„Við vorum bara að ræða stöðuna sem kom upp í dag og vendingar síðustu klukkustunda. Við vorum að ná utan um það og framhaldið í kjölfarið,“ segir Ingibjörg. Hún tekur fram að ákvörðunin hafi komið öllum á óvart.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins tekur undir orð Ingibjargar í samtali við Vísi og ítrekar að Framsóknarflokkurinn muni leggja allt sitt undir svo að mikilvæg verkefni verði kláruð áður en blásið verður til kosninga í nóvember.
„Það sem ég hef áhyggjur af þegar það eru fjölmörg verkefni sem á eftir að klára, kallar það á gríðarlega samvinnu inn á þingi,“ sagði hann og harmar að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki treyst sér til að ljúka verkefnunum og nefnir sem dæmi efnahagsmálin.
Formennirnir ræddu saman í gær
„Þetta kom okkur á óvörum sérstaklega í ljósi þess að formennirnir ræddu saman í gær. Við vildum ljúka mikilvægum verkefnum á skynsamlegan hátt áður en boðað yrði til kosninga.“
Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna samþykkti ályktun í dag þar sem sagði að ungu Framsóknarfólki blöskri ákvörðun forsætisráðherra og að um heigulshátt væri að ræða. Spurð hvernig þessi orð blasa við þingmönnum Framsóknarflokksins segir Ingibjörg:
„Stjórnin hefur frjálsar hendur til að koma með sýnar ályktanir og koma sinni sýn á framfæri. Eins og þetta blasir við okkur núna hafa þessir þrír flokkar verið í samstarfi, við höfum verið að vinna eftir stjórnarsáttmála og það er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn treystir sér ekki til að ljúka verkefninu.“
Alltaf reiðubúin í kosningar
Hún tekur fram að Framsóknarflokkurinn sé alltaf reiðubúinn í kosningar.
„Núna er kominn tími til þess að hætta hugsa um það sem liðið er og horfa fram á við. Við erum búin að vinna góða vinna á þessu kjörtímabili. Við höfum skilað góðu verki að okkar mati. Nú er næsta verkefni kosningarnar.“