Greint var frá því í dag að ákæruvaldið hefði farið fram á að Høiby sæti í gæsluvarðhaldi í tvær vikur til að koma í veg fyrir að Høiby ætti við sönnunargögn.
Auk vikulangs gæsluvarðhalds eru Høiby óheimilar heimsóknir og bréfsendingar.
Høiby var handtekinn á mánudagskvöld í tengslum við rannsókn á nauðgun sem honum er gefið að sök að hafa framið í mars síðastliðnum. Eftir handtökuna hóf lögregla rannsókn á annarri nauðgun í máli hans en frekari upplýsingar um hana liggja ekki fyrir.
Sjá einnig: Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum
Høiby hefur neitað allri sök. Øyvind Bratlien, réttargæslumaður hans, saði ákærurnar „hamfarakennt dómgreindarleysi af hálfu saksóknara“.
„Dómurinn hefði átt að vera þrjóskari, en þetta sýnir að hann er gagnrýninn á það sem fyrir liggur. Ein vika er talsvert skárri en tvær. Við teljum þetta lofa góðu,“ sagði Bratlien við blaðamann VG eftir að dómur var kveðinn upp fyrr í kvöld.