Erlent

Þjóð­há­tíð í Nuuk vegna opnunar flug­vallarins

Kristján Már Unnarsson skrifar
Nýja flugbrautin í Nuuk er 2.200 metra löng. Fyrsta stóra farþegaþotan er væntanleg á fimmtudag.
Nýja flugbrautin í Nuuk er 2.200 metra löng. Fyrsta stóra farþegaþotan er væntanleg á fimmtudag. Greenland Airports

Boðað hefur verið sannkallaðrar þjóðhátíðar í Nuuk á fimmtudag með tónleikum, veisluhöldum og flugeldasýningu. Tilefnið er opnun nýs alþjóðaflugvallar og fyrsta lending stórrar farþegaþotu í höfuðstað Grænlands.

„Fáir staðir í heiminum standa frammi fyrir jafn stórkostlegum breytingum og Nuuk, þegar tuttugu þúsund íbúar bæjarins öðlast bein tengsl við umheiminn í fyrsta sinn þann 28. nóvember 2024,“ segir í umfjöllun Sermitsiaq.

„Við bjóðum öllum til mikillar hátíðar með tónlist og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Komið og takið þátt í að fagna stærsta byggingarverkefni Grænlands, sem markar upphaf nýrra tíma og opnar heim nýrra tækifæra fyrir okkur og alla Grænlendinga,“ segir í boðskorti flugvallafélagsins.

Nýja flugstöðvarbyggingin í Nuuk.Greenland Airports

Hátíðin hefst klukkan 12 á hádegi í Samkomuhúsinu í Nuuk. Klukkan 12:35 hefst svo bein útsending frá hátíðarhöldum á flugvellinum. Flaggskip grænlenska flugflotans, Airbus A330-breiðþotan Tuukkaq, eða Spjótsoddur, lendir þá í fyrsta beina fluginu frá Kaupmannahöfn. Nýir slökkvibílar flugvallarins taka á móti henni sem og skólabörn í flugstöðinni með fána í hendi.

Klukkan 13 hefjast veisluhöld með kaffi og kökum sem fylgt verður eftir með tónleikum og annarri skemmtan milli klukkan 14 og 17. Þar koma fram helstu stjörnur Grænlands, eins og hljómsveitin Qarsoq og tónlistarmennirnir Naja P og Hinnarik. Hátíðarhöldunum lýkur svo um kvöldið með flugeldasýningu í miðbæ Nuuk klukkan 21:30.

Tíu mínútna langt tölvugert myndband af flugvellinum, flugstöðinni og þjónustubyggingum má sjá hér:

„Hingað til hefur flugvöllurinn í Nuuk, sem opnaður var árið 1979, verið mjög takmarkaður vegna stuttrar flugbrautar og þeirra flugvéla sem hann getur tekið á móti. En með lengingu flugbrautarinnar úr 950 metrum í 2.200 metra og glænýrri flugstöð, sem opnuð var fyrr á þessu ári, stendur bærinn núna frammi fyrir nýjum spennandi tímum.

Nýi flugvöllurinn mun breyta tengingu Nuuk við umheiminn og tengingu umheimsins við Nuuk. Það mun gera þúsundum manna kleift að heimsækja bæinn sem annars hefðu aldrei átt þess kost,“ segir Sermitsiaq.

Tvö ár eru frá því Grænlendingar fögnuðu komu nýju Airbus-breiðþotunnar:


Tengdar fréttir

Samkeppni eykst í Grænlandsflugi

Skandinavíska flugfélagið SAS hefur tilkynnt um að það hefji áætlunarflug milli Danmerkur og Grænlands á ný eftir tveggja áratuga hlé. SAS hyggst fljúga þrisvar í viku yfir sumartímann milli Kaupmannahafnar og Nuuk og verður fyrsta flugið þann 27. júní næstkomandi.

United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk

Bandaríska flugfélagið United Airlines tilkynnti í gær að það hefði ákveðið að hefja beint áætlunarflug milli New York og Nuuk, höfuðstaðar Grænlands, næsta sumar. Flugið hefst 14. júní og stendur yfir sumartímann til 24. september 2025.

Styttist í að Nuuk fái nýjan alþjóðaflugvöll

Flugvallafélag Grænlands, Kalaallit Airports, hefur formlega gefið út opnunardag nýs alþjóðaflugvallar í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Stóri dagurinn verður eftir átta mánuði, 28. nóvember 2024. Þetta er fimm árum eftir að flugvallargerðin hófst og meira en árs seinkun frá upphaflegri áætlun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×