Sjálfstæðisflokkurinn virðist vera að sækja í sig veðrið á lokasprettinum og mælist nú með 17,6 prósent. Hann hefur ekki mælst með svo mikið hjá Maskínu síðan í apríl.
Aftur á móti dalar Viðreisn og fer úr 19,2 prósentum í 17,2 prósent. Flokkurinn hefur misst fylgi tvær mælingar í röð en er þó með svipað mikið og hann mældist með um mánaðamótin október-nóvember.
Samfylking réttir aðeins úr kútnum og styrkir stöðu sína á toppnum, fer úr 20,4 prósentum í 21,2 prósent.
Lítil hreyfing á miðjunni
Miðflokkurinn heldur áfram að dala lítillega og fer úr 11,6 prósentum í 11,2 prósent. Flokkurinn fór hæst í sautján prósent seinni hluta október en hefur misst fylgi jafnt og þétt síðan.
Flokkur fólksins sem hefur verið á mikilli siglingu og fór síðast úr 8,8 prósentum í 10,6 prósent missir nú 1,5 prósentustig og mælist með 9,1 prósent.
Framsóknarflokkur bætir aftur á móti við sig, fer úr 7,8 prósentum í 8,6 prósent og virðist vera alveg öruggur. Einhverjir töldu flokkinn vera í hættu á að detta af þingi þegar hann mældist í kringum fimm prósent hjá ólíkum könnunarfyrirtækjum á síðustu vikum. Það virðist ekki stefna í það.
Blóðug botnbarátta
Píratar standa í stað með 5,4 prósent, rétt yfir jöfnunarþingmannsmörkum, en fylgi þeirra hefur í gegnum tíðina verið ofmetið í könnunum og því gæti flokkurinn endað fyrir neðan fimm prósentin.
Sósíalistar fara úr sléttum fimm prósentum í 4,5 prósent og er því kominn á hættulegar slóðir. Á sama tíma anda Vinstri græn ofan í hálsmálið á þeim, bæta við sig 0,2 prósentustigum og fara upp í 3,9 prósent. Báðir flokkarnir eru í verulegri hættu á að komast ekki á þing.
Neðstir eru Lýðræðisflokkur með eitt prósent og Ábyrg framtíð með 0,4 prósent.
Tæplega þrjú þúsund tóku afstöðu
Könnunin fór fram dagana 28. til 29. nóvember 2024 og voru 2.908 svarendur sem tóku afstöðu til flokks. Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu.
Samkvæmt Maskínu voru svarendur alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri.
Svörin voru vegin samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofunnar eftir kyni, aldri, búsetu og menntun, til að endurspegla betur þjóðina. „Við vigtun svara getur birst örlítið misræmi í fjöldatölum og hlutföllum sem orsakast af námundun,“ segir í upplýsingum um könnunina