Innlent

Loka­tölur í Norðvestur­kjör­dæmi: Sex flokkar með þing­mann hver

Kjartan Kjartansson skrifar
Ólafur Adolfsson verður fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis og kemur nýr inn á þing. Hann bauð sig fram í oddvitasætið eftir að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, færði sig yfir í Suðvesturkjördæmi.
Ólafur Adolfsson verður fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis og kemur nýr inn á þing. Hann bauð sig fram í oddvitasætið eftir að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, færði sig yfir í Suðvesturkjördæmi. Vísir/Vilhelm

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut flest atkvæði í Norðvesturkjördæmi en tapaði einum þingmanni frá því í síðustu kosningum þar. Sex flokkar fá einn kjördæmakjörinn þingmann hver í kjördæminu og Flokkur fólksins hlaut næstflest atkvæði.

Lokatölur fyrir Norðvesturkjördæmi bárust upp úr klukkan hálf ellefu í morgun. Kjörsókn þar var 82,3 prósent og sú hæsta þegar lokatölur lágu fyrir í öllum kjördæmum nema Suðvesturkjördæmi.

Líkt og í öðrum kjördæmum töpuðu ríkisstjórnarflokkarnir fylgi í Norðvesturkjördæmi frá því í kosningunum 2021. Framsóknarflokkurinn tapaði tveimur þingmönnum, Sjálfstæðisflokkurinn einum og Vinstri græn sínum eina þingmanni þar.

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut átján prósent atkvæða. Ólafur Adolfsson, fyrrverandi knattspyrnumaður og lyfsali, verður þingmaður hans.

Flokkur fólksins hlaut 16,7 prósent og einn kjördæmakjörinn þingmann, Eyjólf Ármannsson sem hefur setið á þingi fyrir flokkinn.

Samfylkingin hlaut 15,9 prósent atkvæða og náði Arna Lára Jónsdóttir inn á þing. Flokkurinn átti ekki þingmann í Norðvesturkjördæmi á síðasta kjörtímabili.

Miðflokkurinn fékk 14,8 prósent atkvæða og einn þingmann, Ingibjörgu Davíðsdóttur.

Þingmaður Framsóknarflokksins verður Stefán Vagn Stefánsson en flokkurinn hlaut 13,3 prósent atkvæða.

María Rut Kristinsdóttir kemur ný inn á þing fyrir Viðreisn en flokkurinn fékk 12,6 prósent í kjördæminu. Hann hafði ekki þingmann þar áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×