Handbolti

Hollendingar á leið upp úr ís­lenska riðlinum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Hollendingar eru með fullt hús stiga í íslenska riðlinum.
Hollendingar eru með fullt hús stiga í íslenska riðlinum. Marco Wolf/picture alliance via Getty Images

Hollendingar eru svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í milliriðli eftir öruggan sjö marka sigur gegn Þjóðverjum í F-riðli okkar Íslendinga á Evrópumóti kvenna í handbolta í kvöld.

Holland og Þýskaland unnu bæði sína leiki í fyrstu umferð riðlakeppninnar og var því ljóst að sigurlið kvöldsins færi í það minnsta mjög langt með að tryggja sér þátttökurétt í milliriðli.

Þjóðverjar höfðu yfirhöndina framan af í fyrri hálfleik og náðu mest sex marka forskoti. Hollenska liðið vaknaði hins vegar heldur betur til lífsins og snéri leiknum sér í hag og leiddu 15-14 þegar flautað var til hálfleiks.

Í síðari hálfleik höfðu Hollendingar svo góð tök á leiknum og unnu að lokum nokkuð öruggan sjö marka sigur, 29-22. Hollenska liðið er því nú með fjögur stig eftir tvo leiki á toppi F-riðils. Þjóðverjar eru í öðru sæti með tvö stig og Ísland og Úkraína eru bæði án stiga, en íslensku stelpurnar mæta þeim úkraínsku í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×