Innlent

Inga geti ekki slegið af kröfum og ekki hægt að vinna með Sig­mundi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Björn Leví datt út af þingi eins og allir aðrir þingmenn Pírata. Hann segir að það verði áhugavert að fylgjast með stjórnarmyndunarumræðum.
Björn Leví datt út af þingi eins og allir aðrir þingmenn Pírata. Hann segir að það verði áhugavert að fylgjast með stjórnarmyndunarumræðum. Vísir/Vilhelm

Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata spáir því að næsta ríkisstjórn verði sett saman af Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og Samfylkingunni. Erfitt sé fyrir Samfylkingu og Viðreisn að fara í stjórn með Flokki fólksins því Inga Sæland geti ekki slegið af sínum kröfum. 

Þær fari á sama tíma ekki saman við áherslur Viðreisnar og Samfylkingar. Þetta sagði Björn Leví í Formannaspjallinu að loknum kvöldfréttum við Heimi Má. Hann segir Bjarna stíga til hliðar og Þórdís taki við og starfi í ríkisstjórn með þeim Kristrúnu og Þorgerði Katrínu.

„Ég sé ekki sjéns að Inga geti slegið af kröfunum sínum sem hún er búin að hafa mjög hátt um undanfarin kjörtímabil,“ segir Björn.

Svandís steig þarna inn í umræðuna og sagði Björn Leví með nýjan feril sem stjórnmálaskýranda.

„Það vita það allir sem vita það að það er ekkert hægt að vinna með Sigmundi Davíð. Það er ekki hægt að treysta neinu sem hann segir eða samningum sem hann gerir eða neitt svoleiðies. Þannig þetta verður alveg ofsalega áhugavert að sjá hvers konar ríkisstjórn á að mynda hérna,“ segir Björn Leví en fjölmargir hafa einnig velt fyrir sér hvort Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur gætu myndað stjórn á hægri væng. 

Bjarni sagði sjálfur í formannaspjallinu í kvöld að hann vildi ekki fara aftur í stjórn eins og þá sem hann kom úr, þar sem ekki allir rói í sömu átt. 

Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér að neðan. 


Tengdar fréttir

Kosninga­vaktin: Sögulegar kosningar að baki

Eftir snarpa baráttu eru sögulegar Alþingiskosningar að baki. Sjálfstæðisflokkur fékk sína verstu kosningu frá upphafi og Samfylkingin er stærsti flokkur landsins í annað sinn í sögunni. Þá eru bæði Vinstri græn og Píratar dottin af þingi á meðan Viðreisn og Flokkur fólksins uppskáru ríkulega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×