Menning

Gleðilegir gestir í há­tíðar­skapi á safninu

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Mæðgurnar Anna Margrét Jónsdóttir og Elma Dís Árnadóttir létu sig ekki vanta á jólalegan viðburð Listasafns Íslands og Litrófs síðastliðinn sunnudag.
Mæðgurnar Anna Margrét Jónsdóttir og Elma Dís Árnadóttir létu sig ekki vanta á jólalegan viðburð Listasafns Íslands og Litrófs síðastliðinn sunnudag. Elísa B. Guðmundsdóttir

Það var jólalegt líf og fjör á fyrsta í aðventu á Listasafni Íslands þegar safnið og Litróf sameinuðu krafta sína í hátíðlegri gjafapappírsútgáfu. Margt var um manninn og jólaskapið leyndi sér ekki.

Listaverk Sölva Helgasonar (1820–1895) voru færð yfir á gjafapappír en Sölvi Helgason, einnig þekktur sem Sólon Íslandus, var einstakur listamaður og sérvitringur.

„Verk hans einkennast af litríkum og fjölbreyttum blómamynstrum og safneign Listasafns Íslands geymir ódauðleg verk eftir hann. Í þessu verkefni fengu þessi óvenjulegu listaverk nýtt líf sem gjafapappír, þar sem þau sameina fagurfræði og notagildi.

Á viðburðinum var sýnt úrval af nýju gjafapappírsútgáfunni, gestir nutu hátíðlegrar stemningar með léttum veitingum og þeir sem mættu gátu tryggt sér pappírinn á staðnum. Safnbúðin bauð einnig upp á fjölbreytt úrval af vörum tengdum jólunum, auk þjónustu við innpökkun.

Gjafapappírinn hefur einnig verið kynntur sem listaverk í sjálfu sér, þar sem hver örk er hönnuð með það að markmiði að gleðja og vekja athygli á mikilvægi listar í daglegu lífi jafnvel sem innrammaður hluti af heimilinu.“

Hér má sjá myndir frá viðburðinum:

Stefán Pálsson, Runno Allikivi og Frans Flóki.Elísa B. Guðmundsdóttir
Glæsilegur gjafapappír.Elísa B. Guðmundsdóttir
Jólalegt og listrænt!Elísa B. Guðmundsdóttir
Listaverk Sólons Íslandus prýðir pappírinn.Elísa B. Guðmundsdóttir
Dorothée Kirch, Edda Konráðsdóttir og Guðfinna í góðum félagsskap.Elísa B. Guðmundsdóttir
Sólon Íslandus var einstakur listamaður.Elísa B. Guðmundsdóttir
Ragnheiður Vignisdóttir, Edda Konráðsdóttir og Sesselja Konráðsdóttir.Elísa B. Guðmundsdóttir
Jólalegar veitingar!Elísa B. Guðmundsdóttir
Dorothée Kirch markaðs- og þróunarstjóri Listasafns Íslands.Elísa B. Guðmundsdóttir
Líf og fjör!Elísa B. Guðmundsdóttir
Fólk í jólaskapi.Elísa B. Guðmundsdóttir
Jólin eru komin á Listasafn Íslands.Elísa B. Guðmundsdóttir
Jól í glasi.Elísa B. Guðmundsdóttir
Edda og Lilja Konráðsdætur.Elísa B. Guðmundsdóttir
Piparkökur og glögg!Elísa B. Guðmundsdóttir
Það var margt um manninn á safninu á sunnudag.Elísa B. Guðmundsdóttir
Undir jóla hjóla tré er pakki.Elísa B. Guðmundsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.