Það er hins vegar langt síðan að það kom í ljós að ekkert annað framboð var i boði og FIFA hafði því þegar ákveðið að keppnin yrði haldin aftur á Arabíuskaganum með öllum þeim vandamálum sem því fylgir.
Mikill hiti yfir sumartímann þýðir að keppnin fer líklegast fram í janúar 2034.
Sádí-Arabarnir eru með mjög metnaðarfull markmið fyrir mótið og þar á meðal er gríðarleg uppbygging leikvanga í landinu.

Alls á að byggja ellefu glænýja fótboltaleikvanga í landinu og sumir þeirra verða í hópi stórbrotnustu leikvanga heims. Aftonbladet segir frá.
Keppnin eftir tíu ár mun fara fram á fimmtán leikvöngum í fimm borgum en átta af leikvöngunum eru í höfuðborginni Riyadh.
Krónprinsinn Mohammed bin Salman er einnig með plön um að byggja upp nýja borg við strönd Rauðahafsins. Þetta er svokölluð Línuborg en öll borgin verður í beinni línu sem er tvö hundruð metrar á breidd og 170 kílómetra löng.
Þessi lína verður þannig jafnhá og Empire State byggingin í New York. Ef hún verður þá byggð.
Í þessari nýstárlegu borg, sem er vissulega óbyggð, verður einn leikvanganna á HM 2034, samkvæmt áætlun stjórnvalda í Sádí Arabíu.
Sá leikvangur sker sig vissulega úr meðal annarra fótboltaleikvanga heims því hann verður í 350 metra hæð frá jörðu.
Neom leikvangurinn er ekki sá eini sem er byggður í mikilli hæð frá jörðu því annar leikvangur, Prince Mohammed bin Salman Stadium, verður byggður á tvö hundruð metra hárri fjallsbrún í nágrenni Riyadh.
Roshn leikvangurinn í Riyadh verður síðan eins og grænir kristallar í fjalllendi. Það eru líka fleiri glæsilegir leikvangar í byggingu.
Það eru því margir mjög sérstakir leikvangar á leiðinni en auðvitað á eftir að byggja þá og þessi tíu ár geta verið fljót að líða fyrir Sádi-Araba.
Hér fyrir neðan má sjá myndband um leikvangana sem hýsa heimsmeistaramótið 2034.