Fótbolti

Mourinho daðrar við Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jose Mourinho var í þrjú ár sem stjóri Real Madrid en náði ekki að vinna Meistaradeildina. Hann útilokar ekki að snúa aftur.
Jose Mourinho var í þrjú ár sem stjóri Real Madrid en náði ekki að vinna Meistaradeildina. Hann útilokar ekki að snúa aftur. Getty/Richard Sellers

José Mourinho, þjálfari tyrkneska félagsins Fenerbahce, útilokar það ekki að taka aftur við spænska stórliðinu Real Madrid. Hvort félagið hafi áhuga á því er samt allt önnur saga.

Mourinho er nú 61 árs en hann gerði Real að spænskum meisturum og spænskum bikarmeisturum á sínum tíma. Portúgalinn stýrði liðinu frá 2010 til 2013.

Hann vann hins vegar ekki Meistaradeildina sem Real Madrid átti eftir að vinna þrjú ár í röð undir stjórn Zinedine Zidane frá 2016 til 2018.

Mourinho var spurður út í þann möguleika á blaðamannafundi að snúa til baka til Real Madrid. ESPN segir frá. Real Madrid gæti verið í þjálfaraleit á næstu árum því Carlo Ancelotti er líklegur til að stíga frá borði.

„Ég hef alltaf sagt að ég er mikill aðdáandi Real Madrid. Þeir hafa nú besta þjálfarann í heimi, vin minn Carlo [Ancelotti]. Hann er að standa sig vel. Framtíðin ræðst á því hvað forsetinn [Florentino Perez] vill gera,“ sagði Mourinho.

„Ef hann vill fá ungan þjálfara eins og Xabi [Alonso] eða halda áfram á sömu línu og með Carlo, þjálfara með reynslu. Hann gæti líka horft til þjálfara varaliðsins eins og Raul eða yngriflokkaþjálfarann [ Alvaro] Arbeloa. Það eru því margar leiðir færar,“ sagði Mourinho.

Það fer ekkert á milli mála að hann sjálfur er þá gott dæmi um þjálfara með mikla reynslu.

Samningur hins 65 ára gamla Ancelotti rennur út í júní 2026. Mourinho hélt áfram að daðra við Real Madrid.

„Florentino [Perez] hefur ekki tekið margar slæmar ákvarðanir hjá Real og ég er viss um það, sem stuðningsmaður Real Madrid, að hann tekur rétta ákvörðun með næsta þjálfara,“ sagði Mourinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×