Afsögn Trudeau sögð yfirvofandi Kjartan Kjartansson skrifar 6. janúar 2025 09:01 Justin Trudeau hefur verið forsætisráðherra Kanada frá 2015. Stjórnartíð hans virðist nú að renna sitt skeið. Vísir/EPA Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, er sagður líklegur til þess að segja af sér í þessari viku. Frjálslyndi flokkur hans á undir högg að sækja í skoðanakönnunum og æ fleiri þingmenn flokksins hvetja Trudeau til þess að stíga til hliðar.
Heimildir Reuters-fréttastofunnar herma að líkurnar fari vaxandi á að Trudeau segi af sér þó að hann hafi enn ekki ákveðið sig endanlega. Kanadíska blaðið Globe and Mail heldur því fram að hann gæti sagt af sér strax í dag og að minnsta kosti fyrir neyðarfund þingflokks Frjálslynda flokksins á miðvikudag. Kosið verður í Kanada á þessu ári en skoðanakannanir benda til þess að Frjálslyndi flokkurinn fari illa út úr þeim. Því hefur þrýstingur á Trudeau innan flokksins farið vaxandi. Globe and Mail segir ekki ljóst hvort Trudeau véki strax sem forsætisráðherra eða sæti áfram þar til eftirmaður hans sem flokksleiðtogi væri fundinn. Staða Trudeau veiktist enn þegar hann reyndi að ýta Chrystiu Freeland, fjármálaráðherra, til hliðar í desember. Hún hafði verið einn nánasti bandamaður Trudeau en verið andsnúin hugmyndum hans um aukin ríkisútgjöld. Freeland sagði af sér frekar en að sætta sig við að vera lækkuð í tign. Trudeau hefur verið leiðtogi Frjálslynda flokksins frá 2013. Hífði hann flokkinn upp úr sögulegri lægð og tók við embætti forsætisráðherra árið 2015.
Kanada Tengdar fréttir Fjármálaráðherra Kanada segir af sér Chrystia Freeland fjármálaráðherra Kanada sagði af sér í dag. Ástæðuna sagði hún ágreining milli sín og Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada. 16. desember 2024 22:07 Mest lesið Minnist móður sinnar sem lést í morgun Innlent Sjötíu milljóna starfslokasamningur sex mánuðum eftir endurkjör Innlent Dæmdur fyrir að pína konu dögum saman Innlent Vildi birta upptökur af ofbeldinu: „Fólk þarf að sjá til að skilja“ Innlent Úrslit kjörs til rektors Háskóla Íslands kynnt Innlent Nýjum drögum frá Trump lýst sem ránstilraun Erlent Trump um Grænland: „Við verðum að eignast þetta land“ Erlent Dularfullu blettirnir eigi sér eðlilegar skýringar Innlent „Hann má alveg reyna að vera fyndinn mín vegna“ Innlent „Fall er fararheill“ Innlent Fleiri fréttir Segir gömlu sambandi Kanada við Bandaríkin lokið Lagður inn á sjúkrahús vegna aukaverkana krabbameinsmeðferðar Ísraelar kvörtuðu yfir „Signalgate“ Ný ríkisstjórn í höfn á Grænlandi Nýjum drögum frá Trump lýst sem ránstilraun Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Myndaði segulljós Neptúnusar í fyrsta skipti Sex taldir af eftir kafbátaslys Biður til Guðs að Bandaríkin gefi ekki eftir Segjast ræða um að opna aftur Nord Stream-gasleiðslurnar Hundruð tapa milljónum í viskísvikamyllu Samþykkti umdeilt bann við hælisumsóknum Suðurkóresk börn send úr landi eins og „farangur“ Hyggst leggja 25 prósent toll á allar innfluttar bifreiðar Trump um Grænland: „Við verðum að eignast þetta land“ Rétta yfir Bolsonaro fyrir valdaránstilraun Sagði nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast Mesta endurnýjun vopnabúrs Svíþjóðar frá kalda stríðinu Þjónustaði netþrjóta og hefur nú aðgang að opinberum kerfum Telja hryllingsbúgarðinn hafa verið þjálfunarbúðir en ekki útrýmingarbúðir 24 látnir og 1.000 ára hof brunnið í fordæmalausum gróðureldum Blatter og Platini aftur sýknaðir af spillingarákæru Palestínumenn mótmæla Hamas á Gasa Segist bera fulla ábyrgð... en samt ekki Heimsækja eingöngu herstöð á Grænlandi Fundu stærstu lífrænu sameindirnar hingað til í gömlu sýni Vill fartölvu í fangelsið Pyttur opnaðist skyndilega á hraðbraut Vance á leið til Grænlands Danir kveðja konur í herinn Sjá meira
Fjármálaráðherra Kanada segir af sér Chrystia Freeland fjármálaráðherra Kanada sagði af sér í dag. Ástæðuna sagði hún ágreining milli sín og Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada. 16. desember 2024 22:07