Körfubolti

„Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bræðurnir Jóhann Þór og Ólafur Ólafssynir sjást hér keyra inn í Grindavík 21 degi eftir rýmingu.
Bræðurnir Jóhann Þór og Ólafur Ólafssynir sjást hér keyra inn í Grindavík 21 degi eftir rýmingu. Stöð 2 Sport

Bræðurnir Jóhann Þór og Ólafur Ólafssynir eru allt í öllu í karlaliði Grindavíkur í körfuboltanum. Jóhann þjálfar liðið og Ólafur er fyrirliði liðsins. Þegar Grindvíkingar þurftu að flýja bæinn sinn á síðasta tímabili þá reyndi mjög mikið á þá tvo við að halda liðinu gangandi.

Grindavík er sex þátta heimildaþáttaröð úr smiðju Stöðvar 2 Sports um jarðhræringarnar í Reykjanesi og körfuboltalið Grindavíkur.

10. nóvember 2023 reynist örlagadagur í sögu Grindvíkinga sem neyðast til að rýma bæinn sinn og gerast flóttamenn í eigin landi. Körfuboltalið bæjarins heldur áfram að keppa og verður að sameiningartákni bæjarbúa.

Garðar Örn Arnarson leikstýrir þáttunum en myndataka er í höndum Sigurðar Más Davíðssonar.

Bræðurnir Jóhann Þór og Ólafur Ólafssynir sjást hér komnir inn í íþróttahúsið í Grindavík 21 degi eftir rýmingu.S2 Sport

Í síðasta þætti, þætti tvö af sex, má sjá þá bræður heimsækja íþróttahúsið í Grindavík 21 degi eftir rýmingu. Þetta er dramatísk heimsókn því það reyndi mikið á þá bræður sem hafa verið alla tíð verið með annan fótinn í íþróttamiðstöðinni í Grindavík.

Grindvíkingar voru nýbyrjaðir að spila í nýju íþróttahúsi þegar ósköpin dundu yfir í nóvember í fyrra.

Búinn að vera pínu lítill í mér

Heimsóknin var daginn eftir erfiðan leik í Bónus deildinni sem tapaðist. Það er augljóst á tilfinningum bræðranna að slæm úrslit tóku verulega á leiðtoga liðsins.

„Ég er bara í dag, búinn að vera pínu lítill í mér, í vinnunni í morgun og allt það. Það eru allir svo ákveðnir í því að klára þetta og gera það með stæl,“ sagði Jóhann og heldur áfram:

„Það eru allir sem vinna á bak við tjöldin, stjórn og sjálfboðaliðar sem vinna að þessu. Ef við pælum í því þá erum við með sex erlenda leikmenn í karla og kvenna. Það er búið að koma öllu þessu fólki fyrir. Það er aðdáunarvert,“ sagði Jóhann.

Það er mesta svekkelsið í þessu

„Við erum búin að koma þeim öllum fyrir og hvernig styrktaraðilar og allir hafa lagst á eitt að klára þetta. Þá finnur maður eftir leikinn í gær vanmátt eins og maður hafi brugðist. Að maður sé ekki all in eins og allir hinir. Að maður sé bara að fljóta með og það er mesta svekkelsið í þessu,“ sagði Jóhann sem fer nánar yfir þetta og mikilvægi heimastrákanna.

Það má sjá þá síðan fara inn í íþróttahúsið.

„Shit hvað mig langar heim“

„Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn,“ sagði Jóhann. „Ég fæ fiðring í magann,“ sagði Ólafur.

Ólafur sýndi brot sem hrundi úr veggjunum í gamla húsinu. Það mátti líka sjá hvernig viðbyggingin hafði brotnað frá.

„Shit hvað mig langar heim. Þetta var kannski ekki sniðugt,“ sagði Ólafur um leið og hann gekk inn í salinn.

Það má sjá þetta brot úr þáttunum hér fyrir neðan.

Klippa: Bræðurnir koma aftur til Grindavíkur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×