Erlent

Egede biðlar til Græn­lendinga um yfir­vegun og sam­stöðu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Trump hefur valdið nokkru fjaðrafoki með yfirlýsingum sínum um Grænland og mikilvægi þess fyrir Bandaríkin.
Trump hefur valdið nokkru fjaðrafoki með yfirlýsingum sínum um Grænland og mikilvægi þess fyrir Bandaríkin. AP

Múte Egede, formaður landstjórnar Grænlands, hefur kallað eftir samstöðu meðal Grænlendinga og biðlað til þeirra um að halda ró sinni. 

Egede sagðist í gær hafa skilning á því að íbúar væru uggandi eftir að Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, neitaði að staðfesta hann myndi hvorki beita hervaldi né efnahagsþvingunum til að sölsa landið undir sig.

Nú væri hins vegar tími til að standa saman og taka ekki afstöðu í mögulegri deilu milli Bandaríkjanna og Danmerkur.

Stjórnvöld á Grænlandi sendu frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi þar sem þau ítrekuðu að Grænlendingar ættu að vera sjálfráða um framtíð sína og að þau hlökkuðu til að eiga samskipti við nýja stjórn Trump.

Þau væru enn fremur meðvituð um mikilvægi Grænlands hvað varðaði þjóðaröryggi Bandaríkjanna en einmitt þess vegna væri þar að finna bandaríska herstöð.

„Grænland hlakkar horfir til þess að vinna með nýjum stjórnvöldum í Bandaríkjunum og öðrum bandamönnum innan Nató til að tryggja öryggi og stöðugleika á Norðurslóðum,“ sagði í yfirlýsingunni.

Trump hefur farið mikinn síðustu daga og lýst yfir vilja til þess að beita valdi til að innlima bæði Grænland og Kanada. Flestum þykir fremur ólíklegt að forsetinn fyrrverandi og verðandi muni grípa til hervalds í þessum tilgangi en yfirlýsingarnar hafa engu að síður skapað nokkurn ugg og óvissu.

Bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn sagði í gær að Bandaríkjamenn hefðu ekki í hyggju að bæta við herafla sinn á Grænlandi.

Þá sagði Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Moskvu, að Rússar fylgdust náið með þróun mála en sem betur fer væri enn aðeins um yfirlýsingar að ræða, ekki aðgerðir. Rússar væru fúsir til að vinna með hverjum sem er að því að tryggja frið og stöðugleika á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×