Innlent

Endur­vekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
(F.h.t.v.) Elísabet Sveinsdóttir, Guðný Pálsdóttir, Linda Dröfn Gunnarsdóttir og Gróa Ásgeirsdóttir.
(F.h.t.v.) Elísabet Sveinsdóttir, Guðný Pálsdóttir, Linda Dröfn Gunnarsdóttir og Gróa Ásgeirsdóttir. Á allra vörum

Á allra vörum hrindir af stað nýju þjóðarátaki í mars eftir sex ára hlé. Ein forsvarskvenna átaksins segir aukið ofbeldi gegn konum og börnum hafa vakið þær til lífsins - nú þurfi að klára að byggja nýtt Kvennaathvarf.

Þjóðarátak Á allra vörum fór síðast fram árið 2019 áður en það lagðist í dvala í heimsfaraldrinum. Með átakinu hefur meðal annars verið stutt við forvarnarstarf á vegum Eins lífs, sérstaka bráðageðdeild og Krabbameinsfélagið svo fátt eitt sé nefnt. Nú verður stutt við byggingu nýs Kvennaathvarfs.

„Kvennaathvarfið núna er í löngu úreltu húsnæði, sem er löngu sprungið og nú er ætlunin, og kominn grunnur að nýju Kvennaathvarfi sem er algjörlega sérsniðið að þörfum samfélagsins í dag,“ segir Elísabet Sveinsdóttir, ein forsvarskvenna Á allra vörum.

„Við höfum verið að velta fyrir okkur hvort við ættum að láta þetta gott heita. En núna þegar við höfum verið að velta hlutunum fyrir okkur þá hefur þessi ofboððslega aukning heimilisofbeldis gert það að verkum að við fórum að velta fyrir okkur hvað væri eiginlega í gangi, sérstaklega gagnvart konum og þar af leiðandi börnum.“

Þær hafi leitað til Lindu Drafnar Gunnarsdóttur forstöðukonu Kvennaathvarfsins sem tók þeim fagnandi.

„Við lítum á okkar hlutverk þannig að við getum beint kastljósinu að þessu sjúklega vandamáli í þjóðfélaginu. Þessi normalísering ofbeldis, og það inni á heimilinu sem á að vera helst skjólið fyrir konur og fólk almennt. Heimilið á að vera griðarstaður,“ segir Elísabet.

Átakið hefst í mars og endar með söfnunarþætti 5. apríl næstkomandi.

„Ég vona að þjóðin verði okkur hliðholl eins og alltaf. Við höfum verið ofboðslega heppnar með þátttöku þjóðarinnar og þetta mál er gríðarlega mikilvægt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×