Hindranir úr vegi og vopnahlé yfirvofandi Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 17. janúar 2025 06:47 Skoðanir eru skiptar í Ísrael og efnt var til mótmæla gegn vopnahlénu í gær. AP/Ohad Zwigenberg Skrifstofa forsætisráðherra Ísraels, Benjamíns Netanjahú, segir nú að samkomulag sé í höfn við Hamas samtökin um lausn þeirra gísla sem enn eru í haldi samtakanna.
Í gær bárust af því fregnir að málið væri í uppnámi og þá að sama skapi vopnahléið sem á að taka gildi um helgina og standa í sex vikur. Netanjahú hafði frestað ríkisstjórnarfundi þar sem greiða átti atkvæði um vopnahléið vegna þessara atriða en nú hefur öryggisráð Ísraels verið kallað saman til fundar og ríkisstjórnin mun síðan í kjölfarið hittast og samþykkja vopnahlé á Gasa svæðinu. Deiluaðilar hafa þegar undirritað samkomulagið en samþykki Ísrealsstjórnar í heild er þó nauðsynlegt. Forsætisráðherra Katars, Sheikh Mohammed bin Abdul Rahman Al Thani, segir að vopnahléið muni síðan taka formlega gildi á sunnudaginn, að því gefnu að ríkisstjórni Ísraels gefi sitt samþykki. Harðlínumenn í ríkisstjórninni hafa sagst ætla að segja af sér verði vopnahlé samþykkt, en þeir hafa einnig gefið til kynna að þeir muni ekki ganga til liðs við stjórnarandstöðuna til þess að fella ríkisstjórnina á meðan þessar sex vikur líða, í það minnsta. Að því loknu vilja þeir að stríðsreksturinn á Gasa haldi áfram og því er óljóst um framtíð ríkisstjórnarinnar.
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Hernaður Mest lesið Verður aflífaður eftir allt saman Innlent Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Innlent Döpur vegna „hetjunnar“ Ástu og „ómaklegrar aðfarar“ RÚV Innlent Beinir spjótum sínum að Smithsonian og „sögufölsunum“ Erlent Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Innlent Vilja að bæjarstjóri lækki laun sín jafn mikið og bæjarfulltrúar Innlent „Það er skítkalt hérna“ Erlent Óttast að mörg hundruð séu látin Erlent RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Innlent Segir gömlu sambandi Kanada við Bandaríkin lokið Erlent Fleiri fréttir Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Óttast að mörg hundruð séu látin Áhöfn kafbátsins sem sökk í Rauðahafi yfirheyrð Albanese boðar til þingkosninga 43 saknað eftir 7,7 stiga skjálfta í Mjanmar Beinir spjótum sínum að Smithsonian og „sögufölsunum“ Segir gömlu sambandi Kanada við Bandaríkin lokið Lagður inn á sjúkrahús vegna aukaverkana krabbameinsmeðferðar Ísraelar kvörtuðu yfir „Signalgate“ Ný ríkisstjórn í höfn á Grænlandi Nýjum drögum frá Trump lýst sem ránstilraun Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Myndaði segulljós Neptúnusar í fyrsta skipti Sex taldir af eftir kafbátaslys Biður til Guðs að Bandaríkin gefi ekki eftir Segjast ræða um að opna aftur Nord Stream-gasleiðslurnar Hundruð tapa milljónum í viskísvikamyllu Samþykkti umdeilt bann við hælisumsóknum Suðurkóresk börn send úr landi eins og „farangur“ Hyggst leggja 25 prósent toll á allar innfluttar bifreiðar Trump um Grænland: „Við verðum að eignast þetta land“ Rétta yfir Bolsonaro fyrir valdaránstilraun Sagði nákvæmlega hvenær árásirnar myndu hefjast Mesta endurnýjun vopnabúrs Svíþjóðar frá kalda stríðinu Þjónustaði netþrjóta og hefur nú aðgang að opinberum kerfum Telja hryllingsbúgarðinn hafa verið þjálfunarbúðir en ekki útrýmingarbúðir 24 látnir og 1.000 ára hof brunnið í fordæmalausum gróðureldum Sjá meira