Mátti ekki kalla mann nauðgara með barnagirnd eftir allt saman Árni Sæberg skrifar 20. febrúar 2025 11:50 Hæstiréttur taldi konuna hafa vegið að æru mannsins. Vísir/Vilhelm Ummæli konu um mann, sem hún sagði hafa nauðgað bróður hennar, í Instagramskilaboðum til unnustu hans hafa verið dæmd dauð og ómerk í Hæstarétti. Dómurinn féllst hins vegar ekki á að manninum hefði tekist að sanna að nokkuð samhljóma nafnlaus ummæli í Facebook-hópi þolenda ofbeldis hefðu verið eftir konuna. Þetta segir í dómi Hæstaréttar, sem kveðinn var upp í gær en birtur í morgun. Með dóminum var dómi Landsréttar snúið við að hluta en Landsréttur taldi konuna hafa verið í góðri trú þegar hún viðhafði ummælin um manninn. Í dómi Hæstaréttar segir að konan hefði sent unnustu mannsins einkaskilaboð á Instagram. Hún hafi sagst hafa ætlað í nokkurn tíma að hringja í unnustuna, samband hennar og mannsins kæmi henni ekki við en hún teldi rétt að upplýsa unnustuna um að maðurinn væri nauðgari Eftirfarandi ummæli sendi konan á Instagram: „Mig langar samt að senda á þig til að láta þig vita að þessi maður er nauðgari. Hann hefur nauðgað manneskju sem er náin mér þegar sú manneskja var 8 ára.“ „Ég veit að hann hefur líka sótt í það að vinna í kringum börn og hefur allaveganna verið í 3 barnagæslum en verið rekinn/látinn fara af þeim öllum miðað við þær upplýsingar sem ég hef fengið.“ „Ég veit að ef ég væri með manni sem væri með barnagirnd eða nauðgari að þá myndi ég vilja vita af því.“ Vonaði að önnur börn lentu ekki í manninum Maðurinn hafi krafist þess að ummæli konunnar yrði dæmd dauð og ómerk og að hún yrði dæmd til greiðslu miskabóta að fjárhæð 2,5 milljóna króna. Þá hafi hann einnig krafist þess að nafnlaus ummæli í Facebook-hópnum „Stuðningur fyrir þolendur ofbeldis – umræða“ yrðu dæmd dauð og ómerk. Maðurinn hafi talið ljóst að ummælin væru eftir konuna, enda væru þau samhljóma ummælunum í skilaboðunum til unnustunnar. Færslan umdeilda hljóðaði svo: Ég er búin að halda inní mér núna í smá tíma að setja þetta nafn hingað inn en ég eiginlega bara verð að gera það uppá að engin önnur börn lenda í honum. Ég vona svo innilega að enginn annar hafi lent í honum. Ástæðan fyrir því að ég hef viljað setja nafnið hans hingað inn er því ég veit að hann hefur verið að sækjast um að vinna með börnum. Ég veit að hann unnið á leikskóla, frístund eftir skóla og […]. Hvert skipti sem hann er rekinn/látinn fara af einum staðnum þá sækir hann um á næsta sem er með börnum á. Að vita til þess að hann sækjist eftir að vinna með börnum svona mörgum árum seinna, og það þá vinna sem felur í sér meðal annars að skeina og skipta á börnum, er eitthvað sem er mjög erfitt að vita af án þess að geta varað aðra við. Hann var 12 ára þegar hann nauðgaði 8 ára barni. Það var ekki kært þar sem þetta kom upp 10 árum seinna. Barnavernd vill helst ekki skipta sér af þegar hann vinnur í kringum börn því það er engin kæra. Tókst ekki að sanna að ummælin væru eftir konuna Í dómi Hæstaréttar segir að maðurinn hafi talið það standa konunni nær að sanna að ummælin á Facebook væru ekki eftir hana, sér í lagi með vísan til líkindanna við ummælin á Instagram. Hæstiréttur hafi komist að þeirri niðurstöðu að ummælin væru ekki svo lík að eðlilegt væri að sönnunarbyrðinni væri snúið við á þann hátt. Því hefði maðurinn þurft að færa sönnur á það að ummælin hafi verið eftir konuna, sem honum hafi ekki tekist. Því væri niðurstaða Landsréttar varðandi þann hluta um sýknu staðfest. Frásögn bróðurins takmörkuð Í dóminum segir að konan hafi sagst hafa byggt ummælin á frásögn bróður síns af meintu kynferðisbroti. Bróðirinn hafi í skýrslu sinni staðfest að sú frásögn væri rétt. Konan hafi því haft ástæðu til þess að leggja trúnað á þá frásögn bróðurins. „Til þess ber hins vegar að líta að þótt bróðir stefndu hafi borið fyrir dómi að áfrýjandi hefði brotið gegn sér í umrætt skipti var lýsing hans á ætluðu atviki að öðru leyti afar takmörkuð. Jafnframt liggur ekkert fyrir um að áfrýjandi hafi verið kærður til lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot eða ákærður vegna slíkra brota. Þá hafa engin gögn verið lögð fram eða frekar lýst hvaða upplýsingar styðja staðhæfingar stefndu í þá veru að áfrýjandi hafi sóst eftir að starfa með börnum, verið rekinn úr þeim störfum eða að hann sé haldinn barnagirnd.“ Brotið framið um leið og skilaboðin komu til unnustunnar Í dóminum segir að óumdeilt hafi verið að konan sendi unnustu mannsins skilaboð á Instagram, þar sem meðal annars hafi komið fram staðhæfing um að maðurinn hefði nauðgað barni og látið að því liggja að hann væri haldinn barnagirnd. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ummælin hefðu falið í sér aðdróttanir í skilningi almennra hegningarlaga og að með þeim hefði verið vegið að persónu og æru mannsins, sem nyti verndar stjórnarskrárinnar. Hefði þá verið tekið mið af efni og framsetningu ummælanna, því samhengi sem þau voru sett fram í, alvarleika og áhrifa þeirra. „Þá hindraði það ekki ómerkingu að ummælin hefðu verið viðhöfð í skilaboðum á samskiptamiðlinum Instagram, enda teldist ærumeiðingarbrot fullframið þegar það væri komið til vitundar annars manns.“ Ummælin væru samkvæmt þessu talin óviðurkvæmileg í skilningi almennra hegningarlaga og væru þau því ómerkt. Ummælunum ekki dreift og því enginn miski Aftur á móti hafi maðurinn ekki nægilega sýnt fram á að skilyrði til greiðslu miskabóta væru fyrir hendi vegna þeirra ummæla enda hefðu þau birst í lokuðum skilaboðum milli tveggja einstaklinga og lægi ekkert fyrir um að þeim hefði verið dreift víðar. Konan hafi því verið sýknuð af öðrum kröfum mannsins en um ómerkingu ummæla sem birtust í skilaboðum á Instagram. Dómsmál Tjáningarfrelsi Mest lesið Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Innlent Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Erlent Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Innlent Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Innlent „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Innlent Tveir „galdramenn“ í haldi Innlent Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Erlent Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Innlent Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Innlent Ríkið selur villu og vill tæpan milljarð Innlent Fleiri fréttir Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Leikhúsþýðingar Vigdísar gefnar út Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Brýnt að stækka Samgöngusafnið í Skógum „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Tveir „galdramenn“ í haldi Uggandi yfir innflutningi: Fleira ungt fólk leitar á Vog Ungt fólk sækir meira á Vog og þaulskipulögð þjófagengi Skógar Reykjavíkur séu hundruð milljarða króna virði Nýju hættumatskorti ætlað að ná betur utan um hættu utan Reykjanesskagans Ríkið selur villu og vill tæpan milljarð Lengja opnunartímann aftur Ákærður fyrir að reyna að svipta tvo lífi Stefnir í annað metár í frávísunum Þáttaskil hafi orðið í skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu á föstudag Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Börn niður í átta mánaða fá inni á leikskóla Jörð skelfur í Ljósufjöllum Umsóknum um alþjóðlega vernd fækkar verulega Öll börn fái leikskólapláss frá 18 mánaða aldri Gullbakka stolið á Skólavörðustíg: „Þetta eru galdramenn“ Frú Vigdís fagnar 95 ára afmæli Stærsti skjálfti sem mælst hefur á svæðinu frá því virkni hófst Tveir skjálftar yfir fjórum að stærð í Bárðarbungu Fjölskylduharmleikur í Garðabæ: Áttræður faðirinn fékk hjartaáfall Þjófnaður, rúðubrot og líkamsárás Nemendurnir neita að fara í Tækniskólann Ferðamaður rændur og kortið notað fyrir tæpa milljón Sjá meira
Ég er búin að halda inní mér núna í smá tíma að setja þetta nafn hingað inn en ég eiginlega bara verð að gera það uppá að engin önnur börn lenda í honum. Ég vona svo innilega að enginn annar hafi lent í honum. Ástæðan fyrir því að ég hef viljað setja nafnið hans hingað inn er því ég veit að hann hefur verið að sækjast um að vinna með börnum. Ég veit að hann unnið á leikskóla, frístund eftir skóla og […]. Hvert skipti sem hann er rekinn/látinn fara af einum staðnum þá sækir hann um á næsta sem er með börnum á. Að vita til þess að hann sækjist eftir að vinna með börnum svona mörgum árum seinna, og það þá vinna sem felur í sér meðal annars að skeina og skipta á börnum, er eitthvað sem er mjög erfitt að vita af án þess að geta varað aðra við. Hann var 12 ára þegar hann nauðgaði 8 ára barni. Það var ekki kært þar sem þetta kom upp 10 árum seinna. Barnavernd vill helst ekki skipta sér af þegar hann vinnur í kringum börn því það er engin kæra.
Dómsmál Tjáningarfrelsi Mest lesið Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Innlent Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Erlent Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Innlent Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Innlent „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Innlent Tveir „galdramenn“ í haldi Innlent Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Erlent Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Innlent Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Innlent Ríkið selur villu og vill tæpan milljarð Innlent Fleiri fréttir Þurfti áfallahjálp þegar flugi til Íslands var hætt Leikhúsþýðingar Vigdísar gefnar út Mikill meirihluti landsmanna vill ekki íslenskan her Sjúkdómsvaldandi bakteríur fylgi óböðuðum ferðamönnum Brýnt að stækka Samgöngusafnið í Skógum „Hann kann allt varðandi þriðju vaktina“ Erlendir vasaþjófar handteknir bæði í höfuðborginni og á Suðurlandi Tveir „galdramenn“ í haldi Uggandi yfir innflutningi: Fleira ungt fólk leitar á Vog Ungt fólk sækir meira á Vog og þaulskipulögð þjófagengi Skógar Reykjavíkur séu hundruð milljarða króna virði Nýju hættumatskorti ætlað að ná betur utan um hættu utan Reykjanesskagans Ríkið selur villu og vill tæpan milljarð Lengja opnunartímann aftur Ákærður fyrir að reyna að svipta tvo lífi Stefnir í annað metár í frávísunum Þáttaskil hafi orðið í skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu á föstudag Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Börn niður í átta mánaða fá inni á leikskóla Jörð skelfur í Ljósufjöllum Umsóknum um alþjóðlega vernd fækkar verulega Öll börn fái leikskólapláss frá 18 mánaða aldri Gullbakka stolið á Skólavörðustíg: „Þetta eru galdramenn“ Frú Vigdís fagnar 95 ára afmæli Stærsti skjálfti sem mælst hefur á svæðinu frá því virkni hófst Tveir skjálftar yfir fjórum að stærð í Bárðarbungu Fjölskylduharmleikur í Garðabæ: Áttræður faðirinn fékk hjartaáfall Þjófnaður, rúðubrot og líkamsárás Nemendurnir neita að fara í Tækniskólann Ferðamaður rændur og kortið notað fyrir tæpa milljón Sjá meira