Erlent

Hamas reiðu­búin að láta af stjórn Gaza

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Basem Naim, fyrrverandi heilbrigðisráðherra Palestínu, segir Hamas-samtökin reiðubúin að láta óháða nefnd stýra landinu.
Basem Naim, fyrrverandi heilbrigðisráðherra Palestínu, segir Hamas-samtökin reiðubúin að láta óháða nefnd stýra landinu. EPA

Háttsettur embættismaður Hamas segir samtökin reiðubúin að láta af stjórn Gaza og  fagnar hann hugmyndum Egypta um óháða nefnd sem myndi fara með stjórn svæðisins.

Þetta hefur Al Jazeera eftir Basem Naim, embættismanni Hamas og fyrrverandi heilbrigðisráðherra Gaza. 

„Við höfum sagt það mörgum sinnum, jafnvel fyrir 7. október, að við séum reiðubúin að yfirgefa stjórnvölinn yfir Gaza-ströndinni og leyfa hvaða palestínsku einingu, teknókrataríkisstjórn eða öðrum valkosti sem yrði valinn af Palestínubúum að taka við,“ sagði hann við miðilinn.

Naim sagði samtökin fagna hugmyndum Egypta um stofnun nefndar sem myndi stjórna Gaza alfarið og skipuleggja uppbyggingu svæðisins í samráði við nágrannaríki. Hamas-samtökin væru reiðubúin að láta umsvifalaust af stjórn yrði slík nefnd sett á fót.

Hamas-samtökin hefðu verið stofnuð sem Palestínsk andspyrnuhreyfing með skýr markmið, þar á meðal að losna undan hernámi Ísrael og ná fram bæði sjálfstæði og sjálfræði. Samtökin myndu halda áfram þeirri baráttu með hvaða hætti sem væri, hvort sem það væru vopnuð átök eða diplómatískar leiðir. Hamas myndu þá treysta nefndinni fyrir stjórn á daglegu lífi fólks, heilbrigðismálum, menntamálum og félagsmálum.


Tengdar fréttir

Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas

Komið hefur í ljós að óþekkt lík var meðal þeirra fjögurra sem Hamas-samtökin skiluðu Ísraelum í gær. Líkum Kfir og Ariel Bibas, yngstu gíslunum sem Hamas tóku til fanga 7. október 2023, voru afhent í gær en rannsókn leiddi í ljós að móður þeirra vantaði.

Girnist Gasa og vill íbúana burt

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í viðtali í dag að ef Bandaríkin fengju yfirráð á Gasa myndi hann flytja alla íbúa svæðisins á brott til annarra landa. Hann girnist svæðið til að byggja þar glæsibaðströnd í hans eigin eigu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×