Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari staðfestir að dóminum verði ekki áfrýjað í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis. Alfreð Erling var sýknaður fyrir sléttri viku en Ríkissaksóknari hefur fjórar vikur til þess að taka ákvörðun um áfrýjun.
Fór fram á allt að ævilangt fangelsi
Alfreð Erling var ákærður fyrir að ráða hjónunum bana með því að ráðast á þau á heimili þeirra með hamri. Hann hafi slegið þau oft með hamrinum, einkum í höfuð, með þeim afleiðingum að þau hlutu umfangsmikla áverka sem urðu þeim að bana.
Í ákæru var farið fram á að Alfreð Erling yrði dæmdur til refsingar og í málflutningi Arnþrúðar Þórarinsdóttur, saksóknara hjá Héraðssaksóknara, sagði að yrði hann sakfelldur væri eðlilegt að dæma hann í tuttugu ára fangelsi, og jafnvel ævilangt fangelsi. Hins vegar væri mikilvægt að taka til skoðunar hvort hann væri sakhæfur eða ekki.
Engin áfrýjun þrátt fyrir sýknu
Í dómi Héraðsdóms Austurlands sagði að gögn málsins hefðu sýnt fram á að enginn annar en Alfreð Erling hefði getað verið að verki í umrætt sinn. Lögfull sönnun væri komin fram um að hann hefði veist að hjónunum með þeim hætti sem lýst væri í ákæru.
Hins vegar segði í hegningarlögum að ekki eigi að refsa mönnum vegna geðveiki, andlegs vanþroska eða annars samsvarandi ástands hafi þeir verið alls ófærir um að stjórna gjörðum sínum. Ekki væri endilega nóg að hinn ákærði hefði verið með „brenglað raunveruleikaskyn“ eða haldinn ranghugmyndum vegna geðsjúkdóms.
Matsmaður, sem gaf skýrslu fyrir dómi, hefðu ekki séð neina aðra túlkun mögulega en að Alfreð Erling hefði verið alls ófær um að stjórna gjörðum sínum á verknaðarstundu. Dómurinn vísaði til þessa mats í niðurstöðu sinni og sagði að hann hefði verið á valdi ranghugmynda og mikilla hugsanatruflana á verknaðarstundu.
Alfreð Erling hefði ekki skipulagt verknaðinn. Hann hefði heldur ekki borið skynbragð á eðli brotsins. Hann væri því metinn ósakhæfur og sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.
Þrátt fyrir að Alfreð Erling hafi verið sýknaður af kröfum ákæruvaldsins hefur Ríkissaksóknari ákveðið að láta ekki reyna á þá niðurstöðu.
Sætir öryggisgæslu ótímabundið
Þrátt fyrir að Alfreð Erling hafi verið sýknaður af kröfu um refsingu getur hann ekki um frjálst höfuð strokið, enda var hann dæmdur til þess að sæta öryggisgæslu á viðeigandi hæli.
Slík ráðstöfun, á grundvelli ákvæðis almennra hegningarlaga, er ótímabundin en Hæstiréttur skal þó skipa svo vistuðum manni, sem eftirlit hefur með því, að dvöl hans á hælinu verði ekki lengri en nauðsyn ber til.