Fótbolti

Héldu hreinu gegn toppliðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ingibjörg Sigurðardóttir er í lykilhlutverki hjá Brøndby.
Ingibjörg Sigurðardóttir er í lykilhlutverki hjá Brøndby. getty/Marco Steinbrenner

Brøndby gerði markalaust jafntefli við Fortuna Hjørring í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ingibjörg Sigurðardóttir stóð vaktina í vörn Brøndby.

Sem fyrr er Brøndby í 3. sæti deildarinnar, nú með 28 stig eftir sextán leiki. Liðið er tíu stigum á eftir toppliði Fortuna Hjørring og fimm stigum á eftir Nordsjælland sem er í 2. sætinu og á leik til góða. Liðið í 2. sæti kemst í Meistaradeild Evrópu ásamt meisturunum.

Ingibjörg gekk í raðir Brøndby frá Duisburg í Þýskalandi síðasta sumar. Hún hefur leikið tólf leiki í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og skorað eitt mark.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir leikur einnig með Brøndby. Hún byrjaði á varamannabekknum í dag.

Brøndby hefur aðeins fengið á sig fjórtán mörk í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×