Erlent

Sam­þykkti um­deilt bann við hælisumsóknum

Kjartan Kjartansson skrifar
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, þegar hann heimsótti landamærin að Belarús um helgina.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, þegar hann heimsótti landamærin að Belarús um helgina. Vísir/EPA

Forseti Póllands hefur staðfest umdeild lög sem veita stjórnvöldum tímabundna heimild til þess að svipta fólk sem kemur yfir landamærin frá Belarús réttinum til að sækja um hæli. Mannréttindasamtök mótmæltu frumvarpinu en pólska stjórnin sakar Belarús um að nota fólksflutninga sem vopn í óhefðbundnum hernaði gegn Póllandi.

Lögin veita pólskum stjórnvöldum heimild til þess að afnema réttinn til þess að leita hælis í allt að sextíu daga í senn. Donald Tusk forsætisráðherra lagði fast að Andrzej Duda forseta að staðfesta lögin með undirskrift sinni. Duda ritaði undir í gær þrátt fyrir að hann hefði áður lýst yfir áhyggjum af því að lögin gerði andófsfólki í Belarús erfiðara fyrir að flýja einræðisríkið.

Mannréttindasamtökin Mannréttindavaktin segir lögin brjóta alþjóðalög og evrópsk lög. Evrópusambandið ætti að grípa til aðgerða gegn pólskum stjórnvöldum.

Stjórn Tusk hefur sagt að lögunum yrði aðeins beitt til þess að stöðva tímabundið hælisumsóknir einstaklinga sem séu taldir ógn við þjóðaröryggi, til dæmis stórra hópa farandfólks sem reyni að ryðjast yfir landamærin. Undantekningar verði gerðar fyrir fylgdarlaus börn, óléttar konur, eldri borgara, sjúklinga og þá sem væru í raunverulegri hættu yrðu þeir sendir til baka til Belarús.

„Enginn er að tala um að brjóta mannréttindi, réttinn til hælis, við erum að tala um að samþykkja ekki umsóknir fólks sem fer ólöglega yfir landamærin í hópum sem Lúkasjenka skipuleggur,“ sagði Tusk í haust og vísaði til Aleksanders Lúkasjenka, forseta Belarús.

Breska ríkisútvarpið BBC segir að fólki sem fer ólöglega yfir landamæri frá Belarús og Rússlandi til Póllands, Litháens, Lettlands og Finnlands hafi fjölgað mikið frá 2021. Pólverjar hafa brugðist við með auknum viðbúnaði hersins á landamærunum og öryggisgirðingu.

Bæði austurevrópuríki og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa sakað stjórnvöld í Minsk og Kreml um að senda fólk yfir landamærin til NATO- og Evrópusambandsríkja til þess valda óstöðugleika og glundroða þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×