Freyr fær það verkefni að feta í fótspor Eirik Hornelands sem reyndist afar vinsæll í starfi hjá Brann og skilaði góðum árangri sem varð meðal annars til þess að liðið endaði í 2.sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Það er mat sérfræðinga TV 2 að þrátt fyrir að Brann hafi ekki spilað einn einasta keppnisleik undir stjórn Freys þá hafi hann náð að heilla bæði leikmenn og stuðningsmenn liðsins með góðum úrslitum á undirbúningstímabilinu sem og framkomu sinni.
„Nú bíðum við eftir að sjá hvernig honum tekst til þegar að alvaran tekur við,“ segir í umfjöllun TV 2 um Brann sem miðillinn spáir 4.sæti á komandi tímabili í norsku úrvalsdeildinni.
Brann hefur ekki tapað leik undir stjórn Freysa á undirbúningstímabilinu en sérfræðingar TV 2 velta því fyrir sér hvort þar ráði síðustu leifar Horneland í starfi eða hvort þar sé um áhrif Freys að gæta.
Hjá Brann setja menn markið hátt og á að berjast við topp deildarinnar auk þess sem félagið á góðan möguleika á að komast í riðlakeppni í Evrópu.
„Takist þeim það hins vegar teljum við að það muni koma niður á gengi liðsins heima fyrir í haust á tímapunkti þar sem Brann hefur gengið vel á undanförnum árum þegar að liðið hefur ekki verið í Evrópu.“
Freyr hefur fengið inn þrjá nýja leikmenn í yngri kantinum, einn þeirra er Eggert Aron Guðmundsson sem kemur frá Elfsborg og á móti hafa þrír leikmenn um og yfir 30 ára aldur horfið á braut.
„Það segir okkur að Brann er að hugsa um uppbyggingu en ef við eigum að leggja kalt mat á þetta þá er þeim ekki alvara í því að reyna sækja gullið. Bilið milli þeirra og Bodø/Glimt er of mikið, við teljum bilið vera meira en á síðasta tímabili.“
Forráðamenn Brann geti sætt sig við Evrópuævintýri og sæti á meðal efstu fjögurra liða norsku úrvalsdeildarinnar að tímabilinu loknu. Það er mat TV 2 að þátttaka í Evrópukeppni fái forgang.
Stóra spurningarmerkið við gengi Brann á tímabilinu snúi að Frey.
„Getur hann, líkt og Arne Slot hjá Liverpool, fyllt upp í fótspor forvera síns eða verður hann hinn næsti Rikard Norling sem segir réttu hlutina en nær ekki að skila inn úrslitum?