Handbolti

„Getum brotið blað í sögu hand­boltans“

Sindri Sverrisson skrifar
Valskonur eru nýbúnar að fagna deildarmeistaratitli en ætla sér núna að komast í úrslitaeinvígi EHF-bikarsins, fyrstar íslenskra kvenna.
Valskonur eru nýbúnar að fagna deildarmeistaratitli en ætla sér núna að komast í úrslitaeinvígi EHF-bikarsins, fyrstar íslenskra kvenna. Valur handbolti

Valskonur og þjálfarinn Ágúst Jóhannsson eru staðráðin í að skrá sig í sögubækurnar í dag með því að komast í úrslit EHF-bikarsins í handbolta í dag. Ágúst segir skipta sköpum að fólk fjölmenni á Hlíðarenda til að hjálpa Val yfir endalínuna.

Ágúst ræddi fyrir helgi við Val Pál Eiríksson, fyrir seinni leik Vals við Iuventa Michalovce í undanúrslitum EHF-bikarsins í handbolta sem fram fer á Hlíðarenda í dag klukkan 17:30. Viðtalið má sjá hér að neðan.

Klippa: Ágúst um risaleik Vals í dag

„Það er spenna í hópnum en við erum meðvituð um að við þurfum alvöru frammistöðu til að vinna upp þennan mun. Þetta er sterkt lið, líkamlega sterkt, spilar góða vörn og keyrir hraðaupphlaup. Þær eru með markvörð sem kastar fram alveg ville vekk,“ segir Ágúst.

Dagskráin á Hlíðarenda í dag er vegleg.Valur handbolti

Valur tapaði fyrri leiknum í Slóvakíu, 25-23, og þarf því að vinna með að minnsta kosti tveimur mörkum í dag. Valsliðið þarf að byggja ofan á góðan seinni hálfleik ytra.

„Við lentum sjö mörkum undir úti, með 25 mínútur eftir, en sóknarleikurinn okkar varð betri í seinni hálfleik. Við náðum að opna þær betur, fara meira í breiddina og slíta þær í sundur. Við kláruðum færin líka betur, eftir að hafa farið illa með dauðafærin framan af leik. Við teljum okkur því hafa fundið einhverjar lausnir,“ segir Ágúst.

Mikil dagskrá er á Hlíðarenda í dag fyrir börn og fullorðna og ljóst að allir ættu að geta skemmt sér, sérstaklega ef Valsliðið landar sigri:

„Við erum að mæta mjög sterku og reyndu liði en að sama skapi erum við með feykilega vel mannað lið og leikmenn sem hafa mikla reynslu. Það gæti skipt rosalega miklu máli að fá fólk á völlinn. Að fólk fjölmenni hingað á Hlíðarenda. Hérna verður flott dagskrá fyrir bæði krakka og fullorðna. Við spiluðum úti fyrir framan 1.500 manns og við þurfum bara stuðning hérna og fullan Hlíðarenda. Þá er ég sannfærður um að við getum brotið blað í sögu handboltans og komið liðinu alla leið í úrslitaleikinn, sem yrði í fyrsta sinn sem að kvennalið kæmist alla leið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×