Viðskipti innlent

Út­flutningur gefur eftir en einkaneyslan stígur fram á sviðið

Árni Sæberg skrifar
Erna Björg Sverrisdóttir er aðalhagfræðingur Arion banka.
Erna Björg Sverrisdóttir er aðalhagfræðingur Arion banka. Vísir/Vilhelm

Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir að þjóðarskútan leysi festar eftir hófsaman hagvöxt á síðasta ári, með einkaneyslu og fjárfestingu í stafni.

Í færslu á vef Arion banka segir að bjartsýni meðal heimila og fyrirtækja hafi aukist, enda sé verðbólga að hjaðna, vextir að lækka og fjárhagsleg heilsa almennt séð góð. Innlend eftirspurn verði þar af leiðandi driffjöður hagvaxtar en framlag utanríkisverslunar neikvætt. 

Niðurstaðan sé 1,4 prósenta hagvöxtur, sem sé lítil breyting frá fyrri spá. Samsetningin sé hins vegar gjörólík, í stað útflutningsdrifins hagvaxtar sé það einkaneyslan sem stígi fram á stóra sviðið.

Óhefðbundnari útflutningsgreinum vaxi fiskur um hrygg

Jafnvel þó að verulegur innflutningur í tengslum við gagnaver eigi stóran þátt í neikvæðu framlagi utanríkisverslunar í ár liggi í augum uppi að útflutningshorfur hafi versnað. 

„Ekki nóg með að ferðaþjónustan, stærsta útflutningsgrein þjóðarbúsins, eigi undir högg að sækja heldur hefur alþjóðleg efnahagsóvissa aukist verulega að undanförnu, þróun sem gæti leitt til minni eftirspurnar eftir íslenskum útflutningi. Engu að síður reiknum við með lítilsháttar útflutningsvexti í ár þar sem „óhefðbundnari“ útflutningsgreinum, svo sem eldi og lyfjaframleiðslu, hefur vaxið fiskur um hrygg.“

Atvinnuleysi haldi áfram að aukast

Þétt taumhald peningastefnunnar, samhliða lakari útflutningshorfum, hafi dregið úr spennu á vinnumarkaði. Hægt hafi verulega á starfafjölgun og atvinnuleysi sé að þokast upp á við og spáð sé að sú þróun haldi áfram á yfirstandandi ári. 

„Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott þar sem minni spenna á vinnumarkaði dregur að öðru óbreyttu úr verðbólguþrýstingi og opnar dyrnar fyrir frekari vaxtalækkanir. Krónan, sem er mjög sterk um þessar mundir, gæti hins vegar lagt stein í götu verðhjöðnunar taki hún að veikjast verulega, en í þessari spá er gert ráð fyrir að krónan veikist frá og með seinni hluta þessa árs.“

Eins og alltaf sé óvissan mikil, ekki síst í alþjóðamálum og ekki séu ekki öll kurl komin til grafar varðandi vaxandi verndarstefnu í alþjóðaviðskiptum. Hvernig svo sem fari telji bankinn að þjóðarskútan sé vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó án þess að bíða skipbrot.

Ítarlega efnahagsspá greiningardeildar Arion banka má sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×