Í síðustu viku var greint frá því að byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar hafði krafist þess að ÍR slökkti á ljósaskiltinu. ÍR skaut þeirri ákvörðun til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Mikilvæg tekjulind
Í kæru ÍR sagði að félagið færi fram á að ákvörðun byggingarfulltrúa um að félagið skyldi slökkva á LED-skilti á horni Breiðholtsbrautar og Seljaskóga verði yrði úr gildi. Skiltið hefði staðið þarna árum saman, hefði fyrst verið flettiskilti en síðar uppfært í nútímatækni, það er gert stafrænt og félagið teldi að heimild væri fyrir því í samþykktum Reykjavíkurborgar um skilti frá maí 2020.
Þá sagði að skiltið væri mikilvæg tekjulind fyrir félagið, ekki síst fyrir barna- og unglingastarf félagsins.
Vegagerðin verið ósátt við skiltið um árabil
Í svari umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Vísis um málið segir að byggingarfulltrúi hafi krafist þess að slökkt yrði á skiltinu í ljósi umsagnar Vegagerðarinnar frá 24. júní 2021, þar sem Vegagerðin lagðist gegn því að skiltið yrði leyft vegna umferðaröryggissjónarmiða.
Aðgerðum hafi síðan frestað þar sem ÍR kærði ákvörðunina til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Heimild sé fyrir flettiskilti á staðnum. Þess hafi ekki verið krafist að ÍR taki skiltið niður og því sé félaginu í lófa lagið að breyta því aftur í flettiskilti.
Í mars 2021 hafi ÍR sótt um byggingarleyfi til að breyta flettiskiltinu í LED-skilti. Þeirri umsókn hafi verið hafnað á grundvelli fyrrnefndrar umsagnar Vegagerðarinnar vegna umferðaröryggissjónarmiða. ÍR hafi kært þá synjun til Úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála, sem hafi staðfest synjun byggingarfulltrúa um byggingarleyfi.