Sport

Dag­skráin: Mastersmótið, Man. Utd í Evrópu og úrslitakeppnin í Bónus

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mastersmótið í golfi hefst í dag og verður sýnt frá öllum dögunum á Stöð 2 Sport 4.
Mastersmótið í golfi hefst í dag og verður sýnt frá öllum dögunum á Stöð 2 Sport 4. Getty/Richard Heathcote

Það er fullt af beinum útsendingum á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.

Mastersmótið í golfi fer af stað á Augusta vellinum í Georgíu fylki og allir dagarnir verða í beinni á Stöð 2 Sport 4. Það alltaf spennandi að sjá hver fær að klæðast græna jakkanum.

Úrslitakeppnin í Bónus deild karla í körfubolta heldur líka áfram og nú er komið að leik þrjú í tveimur einvígum í átta liða úrslitum. Tindastóll getur sópað út Keflavík í Síkinu á Króknum en staðan er hins vegar jöfn hjá Val og Grindavík sem mætast á Hlíðarenda.

Eftir leikina mun Bónus Körfuboltakvöld síðan gera upp leiki kvöldsins.

Það er einnig komið að átta liða úrslitunum í bæði Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni.

Manchester United heimsækir Lyon og Tottenham fær Frankfurt í heimsókn í Evrópudeildinni.

Chelsea er á útivelli á móti pólska liðnu Legia Varsjá í Sambandsdeildinni en það verða líka fleiri leikir sýndir í dag.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.00 hefst bein útsending frá þriðja leik Vals og Grindavíkur í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta.

Klukkan 21.15 hefst Bónus Körfuboltakvöld þar sem farið verður yfir leiki kvöldsins í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá fyrri leik Legia Varsjá og Chelsea í átta liða úrslitum Sambandsdeildarinnar.

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá fyrri leik Legia Tottenham og Frankfurt í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá fyrri leik Djurgården og Rapid Vín í átta liða úrslitum Sambandsdeildarinnar.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 19.00 hefst útsending frá fyrsta degi á Mastersmótinu í golfi á Augusta vellinum.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá þriðja leik Tindastóls og Keflavíkur í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta.

Vodafone Sport

Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá fyrri leik Bodö/Glimt og Lazio í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá fyrri leik Lyon og Manchester United í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Klukkan 22.30 hefst bein útsending frá leik Atlanta Braves og Philadelphia Phillies í MLB hafnaboltadeildinni í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×