Enski boltinn

Salah nálgast nýjan samning

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aðeins tveir leikmenn, Ian Rush og Roger Hunt, hafa skorað fleiri mörk fyrir Liverpool en Mohamed Salah.
Aðeins tveir leikmenn, Ian Rush og Roger Hunt, hafa skorað fleiri mörk fyrir Liverpool en Mohamed Salah. getty/Jacques Feeney

Eftir mikla óvissu bendir flest til þess að Mohamed Salah muni skrifa undir nýjan samning við Liverpool.

Salah hefur leikið með Liverpool síðan 2017 en núgildandi samningur hans við félagið rennur út í sumar.

Egyptinn hefur ekki enn framlengt samning sinn við Liverpool og fyrr í vetur gaf hann í skyn að þetta tímabil yrði hans síðasta hjá Bítlaborgarfélaginu. 

Enskir fjölmiðlar greina núna frá því að góður gangur sé í samningaviðræðum Salahs við Liverpool og hann gæti skrifað undir nýjan samning við félagið.

Hinn 32 ára Salah hefur skorað 32 mörk í öllum keppnum á þessu tímabili, þar af 27 í ensku úrvalsdeildinni þar sem Liverpool er með ellefu stiga forskot.

Fyrr í vikunni greindi Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, frá því að samningaviðræður hans við félagið hefðu gengið vel. Samningur Hollendingsins við Liverpool rennur út í sumar.

Hins vegar er búist við því að Trent Alexander-Arnold, sem verður einnig samningslaus í sumar, fari til Real Madrid.

Salah hefur unnið allt sem hægt er að vinna með Liverpool, meðal annars Meistaradeild Evrópu 2019 og Englandsmeistaratitilinn árið eftir. Hann hefur skorað 243 mörk í 394 leikjum fyrir Liverpool og er þriðji markahæsti leikmaður í sögu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×