Sport

Dag­skráin: Mastersmótið, for­múlan og úrslitakeppnin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rory McIlroy er meðal keppenda á fyrsta risamóti ársins í goflinu og þarf góðan hring í dag ætli hann að vera með.
Rory McIlroy er meðal keppenda á fyrsta risamóti ársins í goflinu og þarf góðan hring í dag ætli hann að vera með. Getty/Richard Heathcote

Það er fullt af beinum útsendingum á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á laugardögum.

Þriðji dagur Mastersmótsins í golfi verður spilaður á Augusta vellinum en allir dagarnir verða í beinni á Stöð 2 Sport 4. Það er alltaf spennandi að sjá hver fær að klæðast græna jakkanum í mótslok.

Nú er niðurskurðinum lokið og tækifæri fyrir kylfingana sem komust í gegnum hann að koma sér í góða stöðu fyrir lokadaginn á morgun.

Átta liða úrslitin í Bónus deild kvenna í körfubolta eru í fullum gangi og nú taka Grindavíkurkonur á móti deildarmeisturum Hauka. Grindavík kemst í undanúrslitin með sigri í leiknum en Haukakonur reyna að tryggja sér oddaleik á heimavelli.

Það verður einnig sýnt frá tímatöku fyrir Barein kappaksturinn í formúlu 1, leikur úr þýsku b-deildinni í fótbolta, sýnt frá Nascar Xfinity aksturskeppninni og NHL deildinni í íshokkí.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Stöð 2 Sport

Klukkan 16.50 hefst bein útsending frá fjórða leik Grindavíkur og Hauka í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenn í körfubolta.

Klukkan 21.15 hefst Bónus Körfuboltakvöld þar sem farið verður yfir leiki kvöldsins í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 15.30 hefst upphitun fyrir annan dag á Mastersmótinu í golfi á Augusta vellinum.

Klukkan 16.00 hefst útsending frá þriðja degi á Mastersmótinu í golfi á Augusta vellinum.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 19.00 hefst bein útsending frá fjórða leik xxx og xxxx í átta liða úrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta.

Vodafone Sport

Klukkan 12.25 hefst þriðja æfing fyrir Barein kappaksturinn í formúlu 1.

Klukkan 15.15 hefst tímataka fyrir Barein kappaksturinn í formúlu 1.

Klukkan 18.25 hefst bein útsending frá leik Kaiserslautern og Nümberg í þýsku b-deildinni í fótbolta.

Klukkan 20.55 hefst útsending frá Nascar Xfinity aksturskeppninni.

Klukkan 23.05 hefst bein útsending frá leik Toronto Maple Leafs og Montreal Canadiens í NHL deildinni í íshokkí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×