Innlent

Konan í Bríetartúni komin á götuna

Jakob Bjarnar skrifar
Konan sem er um fimmtugt er komin út á götu og örvæntingin leynir sér ekki.
Konan sem er um fimmtugt er komin út á götu og örvæntingin leynir sér ekki. vísir/anton brink

Fulltrúar sýslumanns auk lögreglu báru fimmtuga konu úr leiguíbúð hennar við Bríetartún 20 nú fyrir hádegi. Hún er nú á götunni.

Félagsbústaðir eiga íbúðina en konan hefur ekki greitt leigu af íbúðinni, hún telur sig ekki eiga að þurfa að gera það vegna ónæðis sem stafar af annarri konu sem hefur hrellt íbúa og í raun allt hverfið nú í tvö ár samfellt.

Konan er virkur fíkill en faðir hennar, Jón Daníelsson, hefur greint frá því að hún hafi sætt ofsóknum af hálfu hinnar konunnar auk þess sem Jón hefur kvartað undan greiðslufyrirkomulaginu frá Tryggingastofnun. Konan fái greiðsluna beint í hendur og sé ætlast til þess að hún sjái um að standa skil á skuldbindingum sínum en féð fari hins vegar beint í fíkniefni.

Konan með búslóð sína á götunni. Hún greiddi Félagsbústöðum ekki leigu og því fór sem fór.vísir/anton brink

Félagsbústaðir eiga allar íbúðirnar við stigaganginn en ekki hefur tekist að ná tali af neinum þar vegna málsins.

Ljósmyndari Vísis fylgdist með þegar konan var borin út úr íbúð sinni og við skulum leyfa fréttamyndunum að tala sínu máli.

Lögreglan fylgir konunni niður stigann en hún bjó á efstu hæð.vísir/anton brink

Konan kveður nágranna sína sem hafa einnig átt í erjum við konuna sem terroriserar alla sem búa við stigaganginn - í raun má segja að allt nágrennið sé undirlagt.vísir/anton brink

Konan fer nauðug úr íbúð sinni, í lögreglufylgd.vísir/anton brink

Nágranni konunnar fylgist með gangi mála. Hann er mjög ósáttur.vísir/anton brink

Tengdar fréttir

Konan „terrorí­seri“ alla í hryllings­húsinu

Faðir konu sem á að bera út úr íbúð Félagsbústaða segir aðra konu sem býr í fjölbýlishúsinu halda nágrönnum í heljargreipum. Hann furðar sig á takmörkuðum viðbrögðum yfirvalda.

Hent nauðugri út úr hryllings­húsi vegna ógreiddrar leigu

Jón Daníelsson segir af skelfilegum aðstæðum í húsnæði Félagsbústaða við Bríetartún 20. Jón segir til standa að dóttur hans, sem er fíkill, verði hent þaðan út vegna vangreiddrar húsaleiguskuldar meðan nær væri að hún fengi greitt fyrir að sætta stöðugum ógnum annars leigjanda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×