Sigurður fullkomnar þríeykið Sigurður Haraldsson, formaður mannvirkjanefndar FRÍ, lauk í byrjun september námskeiði og prófi sem veitir honum alþjóðleg dómararéttindi í frjálsíþróttum. Sport 3. október 2013 13:15
Helen í 25. sæti í Berlínarmaraþoninu Helen Ólafsdóttir úr ÍR náði næstbesta árangri íslenskra kvenna frá upphafi þegar hún kom í mark á 2:52,30 klukkustundum í Berlínarmaraþoninu á sunnudaginn. Hún hafnaði í 25. sæti í kvennaflokki. Sport 3. október 2013 10:15
Þegar Arna Stefanía klæddi Björgu úr skónum Í boðhlaupi í frjálsum íþróttum skiptir afhending keflisins miklu máli. Það sannaðist á Norðurlandamóti 19 ára og yngri í Finnlandi í sumar. Sport 30. september 2013 23:29
Tóku við fyrstu miðunum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, og Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, tóku við fyrstu miðunum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar í happdrætti frjálsíþróttahreyfingarinnar. Sport 24. september 2013 09:30
Usain Bolt íhugaði að hætta Fótfráasti maður veraldar, Usain Bolt frá Jamaíka, íhugaði að leggja skóna á hilluna árið 2006. Síðan hefur hann unnið sex gullverðlaun á Ólympíuleikum og átta á heimsmeistaramótum. Sport 9. september 2013 15:45
Hilmar Örn bætti fjörutíu ára gamalt met þjálfara síns Hilmar Örn Jónsson setti tvö íslensk unglingamet í flokki 16-17 ára á Coca Cola móti FH á laugardag. Sport 9. september 2013 15:15
Sænskur hlaupari missti máttinn | Myndband Fredrik Uhrbom átti aðeins 250 metra eftir af 10 þúsund metrum á árlegu frjálsíþróttamóti í Stokkhólmi um helgina. Þá fóru hlutirnir að reynast honum erfiðir. Sport 9. september 2013 10:45
Verður Aníta vonarstjarnan? Á miðnætti var opnuð kosning á vegum evrópska frjálsíþróttasambandsins þar sem kosið er um besta frjálsíþróttafólkið á þessu ári. Sport 7. september 2013 10:15
Aníta kemur til greina sem vonarstjarna Evrópu Aníta Hinriksdóttir úr ÍR er ein tólf íþróttakvenna sem kemur til greina sem vonarstjarna ársins í Evrópu. Sport 5. september 2013 14:01
Ben Johnson berst nú gegn ólöglegri lyfjanotkun Kanadamaðurinn Ben Johnson breyttist úr hetju í skúrk á einu augabragði á Ólympíuleikunum í Seoul 1988 þegar hann vann 100 metra hlaupið á nýju heimsmeti en féll síðan á lyfjaprófi nokkrum tímum síðar. Sport 5. september 2013 12:30
ÍR-ingar endurnýja kynnin við Evrópukeppnina Íslands- og bikarmeistarar ÍR hafa ákveðið að senda lið til keppni í Evrópukeppni félagsliða í frjálsum íþróttum í vor. Ísland hefur ekki átt lið í keppninni í tuttugu ár. Sport 5. september 2013 09:06
Velti fyrir sér að hætta í frjálsum Helga Margrét Þorsteinsdóttir hefur hafið æfingar á ný eftir árs hlé. Íslandsmeistarinn í sjöþraut greindist með brjósklos í baki um áramótin en er nú meiðslalaus. Hún hlakkar til að mæta efnilegasta sjöþrautarhópi Íslandssögunnar en stillir væntingum í hóf. Sport 5. september 2013 00:01
ÍR bikarmeistari í frjálsum ÍR-ingar sigruðu í 48. bikarkeppni FRÍ, bæði í karla- og kvennaflokki og þar að leiðandi í heildarstigakeppninni einnig. Þeir hlutu samtals 174,5 stig. FH varð í öðru sæti með 166 stig og lið Norðlendinga í því þriðja með 150 stig. HSK var með 120,5 stig og Breiðablik með 118 stig í 5. sæti. Sport 1. september 2013 16:20
Það erum jú við sem þurfum að keppa í þessu Frjálsíþróttafólk er ekki alltof sátt við þá ákvörðun Frjálsíþróttasambands Íslands um að fresta bikarkeppni FRÍ um einn dag vegna slæmrar veðurspár. Frjálsíþróttafólk hefur tjáð óánægju sína inn á fésbókarsíðu Frjálsíþróttasambandsins en ákvörðunin var tekin aðeins degi áður en keppnin átti að fara fram. Sport 30. ágúst 2013 15:45
Bikarkeppni FRÍ frestað um einn dag Vegna slæms veðurútlits hefur Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands, sem átti að hefjast kl. 18 á morgun föstudag, verið frestað til kl. 16 á laugardag. Sport 29. ágúst 2013 12:42
Metþátttaka í 30. Reykjavíkurmaraþoninu Metþátttaka er í 30. Reykjavíkurmaraþoninu en þegar skráningu lauk seint í gærkvöldi höfðu 14,139 skráð sig til keppni, 729 fleiri en í fyrra. Keppt er í 4 vegalengdum og er mettþáttaka í öllum flokkum. Sport 24. ágúst 2013 17:43
Kári Steinn vann hálfmaraþonið Hlauparinn Kári Steinn Karlsson bar sigur úr býtum í hálfmaraþoni í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fer í dag í Reykjavík. Sport 24. ágúst 2013 14:15
Hafdís blómstraði í Belgíu Hafdís Sigurðardóttir stóð sig vel á móti í Belgíu í gærkvöldi en hún stökk 6,25 metra í langstökki á Grand Prix-móti í Mouscron. Sport 24. ágúst 2013 13:04
Gay var á sterum Það hefur nú komið í ljós að efnið sem felli bandaríska spretthlauparann Tyson Gay á lyfjaprófi var ólöglegt steraefni. Gay féll á tveimur lyfjaprófum sem voru tekin á svipuðum tíma. Sport 23. ágúst 2013 07:46
Aníta aðeins frá sínu besta Aníta Hinriksdóttir úr ÍR hafnaði í áttunda sæti í 800 metra hlaupi á Demantamóti í Stokkhólmi í kvöld. Aníta var nokkuð frá sínu besta en hún hljóp á 2:02,17 mínútum. Sport 22. ágúst 2013 20:07
Aníta verður í beinni á Fjölvarpinu í kvöld Hlaupakonan efnilega úr ÍR, Aníta Hinriksdóttir, reynir sig í kvöld meðal þeirra bestu í heimi í 800 metra hlaupi kvenna þegar hún tekur þátt í Demantamóti í Svíþjóð. Sport 22. ágúst 2013 08:00
Of mikil fjárhagsleg áhætta Evrópubikarkeppni landsliða í 3. deild í frjálsum íþróttum fer ekki fram hér á landi á næsta ári þrátt fyrir ósk Frjálsíþróttasambands Evrópu (EAA). Stjórn Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) segir fjárhagslega áhættu of mikla. Sport 21. ágúst 2013 16:50
Þokkalega erfitt að fylgjast með af hliðarlínunni Tugþrautarkappinn Einar Daði Lárusson hefur verið frá æfingum og keppni síðan í vetur vegna meiðsla á hásin. ÍR-ingurinn er að hefja uppbyggingartímabil sitt eftir langa hvíld og telur stöðuna vera nokkuð góða. Sport 21. ágúst 2013 07:00
Aníta keppir á Demantamóti | Í Hópi þeirra bestu Heims- og Evrópumeistarinn Aníta Hinriksdóttir mun taka þátt á Demantamóti alþjóða frjálsíþróttasambandsins á fimmtudagskvöld en mótið fer fram í Stokkhólmi í Svíþjóð. Sport 20. ágúst 2013 10:40
"Pistorius hefur það ekki í sér að gera svona hlut“ "Við erum viss um að þetta hafi verið óviljaverk,“ segir Sigríður Hanna Jóhannesdóttir, amma Hafliða Hafþórssonar sem hefur verið náinn vinur hlauparans Oscar Pistorius, í viðtali við suður-afríska blaðið Mail & Guardian. Sport 19. ágúst 2013 12:00
Pistorius formlega ákærður Frjálsíþróttamaðurinn Oscar Pistorius hefur verið formlega ákærður fyrir að hafa myrt kærustu sína á heimili þeirra í Suður-Afríku. Sport 19. ágúst 2013 09:32
Bolt með enn ein gullverðlaunin Usain Bolt nældi sér í sín þriðju gullverðlaun á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í dag þegar Bolt og félagar hans í sveit Jamaíka unnu 4x100 m boðhlaup karla. Sport 18. ágúst 2013 15:27
Fraser-Pryce með þrenn gullverðlaun Boðhlaupssveit Jamaíku setti heimsmet og vann auðveldan sigur í 4x100 metra boðhlaupi kvenna á heimsmeistaramóti í frjálsum íþróttum sem haldin er í Moskvu. Sport 18. ágúst 2013 15:00
Aníta og Kolbeinn urðu bæði tvöfaldir Norðurlandameistarar Aníta Hinriksdóttir og Kolbeinn Höður Gunnarsson urðu bæði Norðurlandameistarar annan daginn í röð þegar þau unnu 1500 metra hlaup kvenna og 200 metra hlaup karla á Norðurlandamóti 19 ára og yngri sem lauk fyrir skömmu í Espoo í Finnlandi. Sport 18. ágúst 2013 14:00
Usain Bolt tók myndavél Svíans í þriðja sinn Jamaíkamaðurinn Usain Bolt leggur það í vana sinn að vinna gull á stórmótum og fagna því með því að fá lánaða myndavél sænska ljósmyndarans Jimmy Wixtröm sem tekur myndir fyrir Sportbladet. Sport 18. ágúst 2013 07:00