

Joe Biden
Fréttir tengdar Joe Biden, 46. forseta Bandaríkjanna.

Öðrum banka lokað en innistæður að fullu tryggðar
Etirlitsaðilar í New York ríki Bandaríkjanna hafa tekið yfir bankann Signature Bank, sem kominn var í sambærileg vandræði og SVB-bankinn sem lokað var fyrir helgi. Innistæður allra innistæðueiganda verða að fullu tryggðar svo tryggja megi trú á bandaríska bankakerfið. Bankarnir voru umsvifamiklir á rafmyntamarkaði.

Biden vill hækka skatta á ríka og fyrirtæki
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lagði í dag fram fjárlagatillögu sína fyrir árið 2024 þar sem hann kallar eftir mikilli útgjaldaaukningu, auk þess að kalla eftir hærri sköttum á eignafólk og fyrirtæki. Tillagan verður aldrei samþykkt þar sem Repúblikanar fara með nauman meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings.

Blettur á bringu Bidens reyndist húðkrabbamein
Læknar skáru nýverið blett af bringu Joes Biden Bandaríkjaforseta eftir að grunnfrumukrabbamein greindist í honum. Læknir forsetans segir enga frekari meðferð nauðsynlega.

Segir fjölmiðlafólk öfundsjúkt út í Tucker Carlson
Kevin McCarthy, forseti Fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, varði í gær þá ákvörðun sína að veita Tucker Carlson, hinum umdeilda þáttastjórnenda hjá Fox, einum aðgang að myndefni úr öryggismyndavélum þinghússins frá árásinni á þinghúsið þann 6. janúar 2021. Annað fjölmiðlafólk hefur einnig krafist aðgangs að myndefninu en McCarthy segir þau vera „öfundsjúk“.

Skoða að birta gögn um mögulega hernaðaraðstoð Kína
Innan ríkisstjórnar Joes Bidens, forseta Bandaríkjanna, standa nú yfir umræður um það hvort opinbera eigi upplýsingar sem taldar eru sýna fram á að yfirvöld í Kína séu að íhuga að senda Rússum vopn og hergögn. Það yrði þá gert fyrir fund Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á morgun sem marka mun það að ár er liðið frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst.

Sex látin í árásum Rússa í Kherson
Sex létust og sextán særðust eftir stórskotaliðsárás sveita rússneska hersins á borgina Kherson í gærkvöldi og í nótt.

Pútín Rússlandsforseti flytur stefnuræðu sína í dag
Vladimír Pútín Rússlandsforseti mun í dag flytja árlega stefnuræðu sína til rússnesku þjóðarinnar. Til stóð að ræðan yrði flutt í desember síðastliðnum en henni var frestað vegna stríðsins í Úkraínu.

Biden í óvæntri heimsókn til Kænugarðs
Joe Biden Bandaríkjaforseti er mættur í óvænta heimsókn til úkraínsku höfuðborgarinnar Kænugarðs. Hann fundaði með Vólódýmír Selenskí Úkraínuforseta í morgun.

Biden segir líklega um að ræða belgi frá einkaaðilum
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur loksins tjáð sig um óþekktu loftförin sem voru skotin niður í Bandaríkjunum og Kanada á dögunum. Segir hann líklega um að ræða loftför á vegum rannsóknarstofnana eða einkaaðila, sem ekki tengjast njósnaáætlun Kínverja.

Engin merki um geimverur að sögn Hvíta hússins
Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins tók það skýrt fram á fréttamannafundi í gær að ekkert bendi til þess að hlutirnir þrír sem skotnir voru niður yfir Bandaríkjunum og Kanada á dögunum tengist geimverum.

Talaði um mikilvægi samvinnu þvert á flokka
Joe Biden Bandaríkjaforseti flutti árlega stefnuræðu sína á Bandaríkjaþingi í nótt og biðlaði meðal annars til mótherja sinna í Repúblikanaflokknum að þeir hjálpuðu til við að rétta af efnahag Bandaríkjanna.

Alríkislögreglan leitar á heimili Bidens
Alríkislögregla Bandaríkjanna leitar nú á heimili Joe Biden Bandaríkjaforseta í Delaware í tengslum við rannsókn embættisins á hvarfi leynilegra skjala. Þetta staðfestir lögmaður Bidens í yfirlýsingu.

Biden fær nýjan starfsmannastjóra
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að Jeff Zients verður nýr starfsmannastjóri Hvíta hússins. Hann mun taka við af Ron Klain, sem hefur lengi starfað með Biden. Starfsmannavelta hefur verið tiltölulega lítil í Hvíta húsinu síðustu tvö ár.

Biden biður fólk um að halda ró sinni
Joe Biden Bandaríkjaforseti hvetur fólk í Tennessee ríki til að halda ró sinni en þar ríkir mikil reiði eftir að fimm lögreglumenn í Memphis börðu tuttugu og níu ára gamlan mann til dauða.

Leynileg skjöl fundust á heimili Pence
Tólf leynileg skjöl fundust við leit á heimili Mike Pence, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, í Indiana fylki í Badnaríkjunum. Lögfræðingur Pence fann skjölin og hafa þau nú verið afhent alríkislögreglunni.

Enn finnast leynileg skjöl hjá Biden
Rannsakendur Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) fundu sex skjöl sem merkt eru sem leynileg gögn á heimili Joe Bidens, forseta Bandaríkjanna, í Delaware við húsleit þar á föstudaginn. Hald var einnig lagt á handskrifuð minnisblöð forsetans en óljóst er hvort skjölin séu enn leynileg.

Lögmenn finna enn fleiri leyniskjöl hjá Biden
Lögmenn hafa fundið fleiri leynileg skjöl heima hjá Joe Biden Bandaríkjaforseta. Hvíta húsið hafði áður lýst því yfir að aðeins stök blaðsíða hafi fundist.

Sérstakur rannsakandi skoðar leynileg skjöl í vörslu Bidens
Merrick B. Garland, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skipað sérstakan rannsakanda til að rannsaka meðhöndlun Joe Biden, forseta, á leynilegum skjölum. Slík skjöl hafa fundist á einkaskrifstofu hans, heimili og bílskúr en um tiltölulega fá skjöl er að ræða.

Fleiri leyniskjöl finnast hjá Biden
Enn syrtir í álinn hjá Joe Biden Bandaríkjaforseta eftir að fleiri skjöl finnast í hans persónulegu fórum sem áttu að vera háleynileg og aðeins geymd hjá viðeigandi stofnunum.

Leynileg skjöl fundust á einkaskrifstofu Bidens
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar nú hvernig skjöl, sem talin eru vera leynileg, enduðu á gamalli skrifstofu Joes Bidens, forseta Bandaríkjanna. Skjölin fundust þann 2. nóvember, skömmu fyrir þingkosningar, en fundurinn varð ekki opinber fyrr en í gær og þá af fjölmiðlum vestanhafs.

Meirihluti Demókrata geirnegldur
Demókratar geirnegldu meirihluta sinn í öldungadeild Bandaríkjaþings í nótt þegar í ljós kom að þeir fóru með sigur af hólmi í aukakosningum sem fram fóru í Georgíu.

Uppljóstrun Musks reyndist rýr í roðinu
Elon Musk og blaðamaðurinn Matt Taibbi tístu um helgina um gögn frá Twitter sem fjölluðu um þá ákvörðun þáverandi forsvarsmanna fyrirtækisins um að banna frétt um Hunter Biden, son Joe Biden, núverandi forseta Bandaríkjanna.

Setja ofan í við Trump sem vill víkja stjórnarskránni til hliðar
Hvíta húsið gefur lítið fyrir yfirlýsingar Donalds Trump, fyrrverandi forseta og forsetaframbjóðenda, um að fella ætti stjórnarskrá Bandaríkjanna úr gildi og setja hann sjálfan aftur í embætti.

Biden segir ólíklegt að flugskeytinu hafi verið skotið frá Rússlandi
Joe Biden Bandaríkjaforseti segir ólíklegt að flugskeyti sem varð tveimur að bana í Póllandi hafi komið frá Rússlandi og vísar til brautar flugskeytisins. Aðspurður vildi hann hins vegar ekkert fullyrða um málið og sagðist vilja bíða og sjá.

Gagnrýndi orðræðu Kínverja í garð Taívans
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, og Xi Jinping, forseti Kína, funduðu í Indónesíu í dag og var það í fyrsta sinn sem þeir hittast síðan Biden varð forseti. Forsetarnir ræddu meðal annars aukna samkeppni ríkjanna, stríðið í Úkraínu og mótmælti Biden orðræðu kínverskra ráðamanna í garð Taívans.

Beina spjótum sínum að Trump
Áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins notuðu spjall- og fréttaþætti í Bandaríkjunum í gær til að reyna að fjarlægja sig frá Donald Trump, fyrrverandi forseta. Deilt er innan flokksins vegna slæms gengis hans í þingkosningum síðustu viku og vilja margir beina spjótum sínum að Trump.

Slæmt gengi kemur niður á draumum McCarthy
Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vill verða forseti þingsins. Hann hefur ekki farið leynt með það en slæmt gengi flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn mun líklegast koma niður á vonum hans.

Biden hrósaði varnarsigri
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hrósaði varnarsigri Demókrata, er hann kom fyrst fram opinberlega eftir þingkosningar þar í landi í gær. Hann segir ekkert annað í kortunum en að hann bjóði sig aftur fram í forsetakosningunum 2024.

Biden segir tvö hræðileg ár framundan gangi spár eftir
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, virðist ekki mjög spenntur fyrir næstu tveimur árum gangi spár fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum sem haldnar eru í dag eftir.

Tvö erfið ár í vændum fyrir Biden
Repúblikanar eru líklegir til að ná tökum á báðum deildum Bandaríkjaþings eftir kosningarnar sem hefjast í dag, sé mið tekið af könnunum vestanhafs. Það myndi hafa mjög slæm áhrif á næstu tvö árs Joe Biden í Hvíta húsinu og mögulega gera út af við þær vonir sem Biden ber til annars kjörtímabils.