Ensku liðin áfram - Shevchenko skoraði fjögur Ensku liðin Liverpool og Chelsea eru komin áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir leiki kvöldsins og úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko hjá AC Milan undirstrikaði enn og aftur að hann er einn besti markaskorari heimsins þegar hann afgreiddi Fenerbahce með fjórum mörkum. Sport 23. nóvember 2005 21:45
Eiður getur slegið met Árna í kvöld Átta leikir verða á dagskrá í Meistaradeild Evrópu í kvöld og leikur Liverpool og Betis verður sýndur klukkan 19:30 á Sýn. Viðureign Anderlecht og Chelsea verður í beinni á Sýn Extra á sama tíma, en þar getur Eiður Smári Guðjohnsen slegið met Árna Gauts Arasonar yfir flesta Evrópuleiki ef hann fær að spila í kvöld. Sport 23. nóvember 2005 18:45
Markalaust á Old Trafford Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið. Manchester United náði ekki að leggja vængbrotið lið Villareal á heimavelli sínum og því eru möguleikar liðsins ekki glæsilegir í riðlinum. Bayern Munchen burstaði Rapid Vín 4-0 og Arsenal stal sigrinum gegn Thun í blálokin. Sport 22. nóvember 2005 21:30
Stórleikir á Sýn í kvöld Tveir stórleikir verða sýndir í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Bein útsending frá leik Manchester United og Villareal hefst klukkan 19:30 á Sýn, en klukkan 19:35 fer í loftið bein útsending á Sýn Extra frá leik Barcelona og Werder Bremen. Sport 22. nóvember 2005 19:00
Makelele verður frá í þrjár vikur Hinn öflugi miðjumaður Claude Makelele verður ekki með Chelsea í leiknum gegn Anderlecht í Meistaradeildinni annað kvöld og talið er að hann verði frá keppni í um þrjár vikur eftir að hafa meiðst á hné í leiknum gegn Newcastle um helgina. Sport 22. nóvember 2005 18:45
Riquelme verður ekki með Villareal Leikstjórnandinn snjalli Juan Roman Riquelme verður ekki með liði sínu Villareal í leiknum gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu í kvöld, vegna meiðsla á læri. Þetta eru góð tíðindi fyrir enska liðið, því Riquelme hefur farið á kostum með spænska liðinu í vetur, sem og landsliði Argentínu. Sport 22. nóvember 2005 16:00
Wenger heimtar sigur Arsene Wenger vill ná í öll þrjú stigin á útivelli gegn FC Thun í Meistaradeildinni annað kvöld, þrátt fyrir að Arsenal hafi þegar tryggt sér áframhaldandi þáttöku í keppninni með góðri frammistöðu í undangengnum leikjum. Sport 21. nóvember 2005 19:15
Verðum að sigra Villareal Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að leikurinn við Villareal í Meistaradeildinni annað kvöld verði að vinnast og treystir á að heimavöllurinn nægi til að koma sínum mönnum áfram. Sport 21. nóvember 2005 16:30
Arsene Wenger hrósaði Robin van Persie Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var ánægður með sigurinn á Sparta Prag í Meistaradeildinni í gær og hrósaði framherja sínum Robin van Persie sérstaklega fyrir frammistöðu sína, eftir að hann kom inná sem varamaður og skoraði tvö mörk. Sport 3. nóvember 2005 10:00
Okkar bíður erfitt verkefni Alex Ferguson segir að liði Manchester United bíði mjög erfitt verkefni í Meistaradeildinni eftir tapið gegn Lille í kvöld og segir að liðið verði einfaldlega að vinna tvo síðustu leiki sína í riðlinum ef það eigi að hafa möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslitin. Sport 3. nóvember 2005 07:00
Manchester United tapaði fyrir Lille Leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er lokið. Manchester United þurfti að sætta sig við 1-0 tap gegn Lille í Frakklandi, en betur gekk hjá Arsenal sem sigraði Sparta Prag 3-0. Thierry Henry skoraði eitt mark fyrir Arsenal og Robin van Persie skoraði tvö og Arsenal er öruggt áfram í keppninni. Barcelona burstaði Pananthinaikos 5-0 á Spáni. Sport 2. nóvember 2005 21:30
United er undir í hálfleik Hrakfarir Manchester United virðast ætla að halda áfram, því liðið er undir 1-0 í hálfleik gegn franska liðinu Lille í Meistaradeildinni. Barcelona er að taka Pananthinaikos í kennslustund og hefur yfir 4-0. Sport 2. nóvember 2005 20:30
Lille - Manchester United á Sýn Átta leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu nú á eftir og sjónvarpsleikurinn verður viðureign franska liðsins Lille og Manchester United. Stórleikur Juventus og Bayern Munchen verður sýndur í beinni á Sýn Extra og hefst útsending á báðum stöðvum um klukkan 19:30. Sport 2. nóvember 2005 18:27
Gerði fimm ára samning við West Ham Alan Pardew er í skýjunum yfir því að hafa undirritað nýjan fimm ára samning við West Ham, en hann hefur stýrt liðinu í tvö ár og kom því nokkuð óvænt upp í úrvalsdeildina í vor. Byrjun liðsins í úrvalsdeild hefur svo farið fram úr björtustu vonum og því hefur Pardew nú skrifað undir nýjan samning. Sport 2. nóvember 2005 16:00
Benitez ánægður með Morientes Rafael Benitez, stjóri Liverpool, var ánægður með sigur sinna manna á slöku liði Anderlecht í Meistaradeildinni í gærkvöldi og þótti sérstök ástæða til að minnast á frammistöðu landa síns Fernando Morientes sem skoraði fyrsta mark sitt í langan tíma fyrir Liverpool. Sport 2. nóvember 2005 10:00
Lélegasti leikur Chelsea síðan ég tók við Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagðist ekki geta fundið neinar afsakanir fyrir tapinu gegn Real Betis í Meistaradeildinni í gær og sagði leikinn hafa verið lélegustu frammistöðu liðsins síðan hann tók við því á sínum tíma. Sport 2. nóvember 2005 07:00
Chelsea tapaði fyrir Real Betis Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í Meistaradeildinni í ár í kvöld, þegar liðið lá á Spáni fyrir Real Betis 1-0. Chelsea-liðið var mun sterkara í leiknum, en leikmenn liðsins fóru illa með færin og geta sjálfum sér um kennt hvernig fór. Sport 1. nóvember 2005 21:45
Chelsea er undir í hálfleik Eiður Smári og félagar hans í Chelsea eru undir 1-0 í hálfleik gegn Real Betis í Meistaradeildinni og það var Dani sem skoraði mark heimamanna á 28. mínútu. Eiður Smári fór illa að ráði sínu þegar hann misnotaði sannkallað dauðafæri um miðjan hálfleikinn og var skipt útaf í kjölfarið. Liverpool hefur yfir gegn Anderlecht 1-0, þar sem Morientes skoraði mark enska liðsins. Sport 1. nóvember 2005 20:45
Eiður Smári í framlínu Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen verður í framlínu Chelsea í leiknum við Real Betis í Meistaradeildinni nú á eftir, þegar hann jafnar met Árna Gauts Arasonar yfir flesta leiki sem Íslendingur hefur spilað í Meistaradeildinni. Þetta verður 21. leikur Eiðs Smára. Sport 1. nóvember 2005 19:00
Chelsea mætir Real Betis Átta leikir eru á dagskrá Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Leikur PSV Eindhoven og AC Milan verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn og hefst klukkan 19:45, en leikur Chelsea og Real Betis er sýndur á sama tíma á Sýn Extra. Sá leikur er svo sýndur síðar um kvöldið á Sýn. Sport 1. nóvember 2005 16:00
Woodgate þakkaði sjúkraþjálfaranum Varnarmaðurinn Jonathan Woodgate fagnaði marki sínu fyrir Real Madrid í Meistaradeildinni í gær með því að stökkva í fangið á sjúkraþjálfaranum sínum sem stóð á hliðarlínunni og segir að hann sé maðurinn á bak við endurkomu sína úr meiðslum. Sport 20. október 2005 00:01
Meistaradeildin á Sýn í kvöld Átta leikir eru á dagskrá í Meistaradeildinni í knattspyrnu í kvöld og aðalleikur kvöldsins á Sýn er viðureign Chelsea og Real Betis, síðar um kvöldið verður svo leikur Anderlecht og Liverpool á dagskrá, en sá leikur verður í beinni á Sýn Extra. Leikirnir hefjast klukkan 18:30, en þar á undan verður upphitun með Guðna Bergs. Sport 19. október 2005 00:01
Rosenborg er yfir gegn Real Madrid Nú er kominn hálfleikur í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu. Chelsea hefur örugga 2-0 forystu gegn Real Betis, þar sem Drogba og Carvalho skoruðu mörkin, en Real Madrid er undir 1-0 gegn Rosenborg á heimavelli. Sport 19. október 2005 00:01
Auðveldur sigur Chelsea Chelsea burstaði Real Betis 4-0 á heimavelli sínum í kvöld. Ricardo Carvalho, Didier Drogba, Hernan Crespo og Joe Cole skoruðu mörk enska liðsins. Real Madrid valtaði yfir Rosenborg 4-1, eftir að hafa verið undir 1-0 í hálfleik. Sport 19. október 2005 00:01
Cissé líklegur gegn Anderlecht Rafael Benitez segir vel koma til greina að nýta hungur franska framherjans Djibril Cissé með því að gefa honum tækifæri í byrjunarliðinu gegn Anderlecht í Meistaradeildinni annað kvöld, en liðin eigast við í G-riðli. Sport 18. október 2005 00:01
Ferguson ekki kátur með jafnteflið Alex Ferguson var ekki par hrifinn af leik franska liðsins Lille í Meistaradeildinni í gær og sagði liðið aldrei hafa reynt að vinna leikinn. Einnig þótti honum rauða spjaldið sem Paul Scholes fékk í leiknum vera ansi strangur dómur. Sport 18. október 2005 00:01
Giggs verður frá í nokkrar vikur Ryan Giggs hjá Manchester United verður frá keppni í allt að sex vikur vegna kinnbeinsbrots sem hann hlaut í leiknum við Lille í Meistaradeildinni í gærkvöld og eykur þar með enn á ófarir liðsins, sem hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli á leiktíðinni. Sport 18. október 2005 00:01
Henry í metabækurnar Thierry Henry varð í gærkvöldi markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi, þegar hann skoraði tvö mörk í sigri Arsenal á Sparta Prag í Meistaradeildinni. Hann hefur nú skorað alls 186 mörk fyrir félagið, eða einu meira en Ian Wright. Sport 18. október 2005 00:01
Ótrúleg endurkoma Henry Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið og óhætt að segja að Thierry Henry hjá Arsenal hafi verið maður kvöldsins, en hann tryggði liði sínu 2-0 sigur í Prag með tveimur mörkum, eftir að hafa komið inná sem varamaður eftir aðeins fimmtán mínútna leik. Sport 18. október 2005 00:01
Wenger hrósaði Henry Arsene Wenger er yfir sig ánægður með gengi sinna manna í Arsenal í Meistaradeildinni í ár og þá ekki síður með framherja sinn Thierry Henry, sem í gærkvöld varð markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigrinum á Sparta Prag. Sport 18. október 2005 00:01