Þröng á þingi og þriggja tíma ferð vegna þrjátíu prósenta afsláttar Mikil örtröð hefur verið í Bónus í Naustahverfi á Akureyri í dag, þar sem boðið var upp á 30 prósent afslátt á öllum vörum í eins konar rýmingarsölu vegna fyrirhugaðra breytinga. 18.3.2025 18:53
Tveir bílar og hestakerra skullu saman við Selfoss Árekstur varð milli tveggja bíla og hestakerru á Suðurlandsvegi rétt austan við Selfoss. Fimm voru í bílunum og eru meiðsl talin minniháttar. 18.3.2025 16:44
Fólk á góðum launum ráði ekki við erfið verkefni Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að skólar eigi að vera griðastaður barna, en ekki vettvangur daglegs ofbeldis árum saman. Hann gerði ofbeldisvandann í Breiðholtsskóla að umtalsefni á Alþingi í dag, en hann segir að fullorðið fólk á góðum launum í stjórnsýslunni ráði ekki við erfið mál og kasti þeim frá sér. 18.3.2025 16:25
Svefnlyf ávanabindandi og auki hættu á heilabilun Heilbrigðisráðuneytið hefur sett á laggirnar nýja vefsíðu til að stuðla að vitundarvakningu um skaðsemi svefnlyfja. Markmiðið segja þau vera að fræða fólk um virkni og margvíslegar aukaverkanir svefnlyfja, og stuðla að skynsamlegri notkun þeirra. 11.3.2025 22:11
Framstuðarinn horfinn í morgun: „Ég á enga óvini svo ég viti til“ Daníel Már Þorsteinsson bílamálari varð fyrir því óláni í nótt að stuðaranum var stolið af bíl hans fyrir utan heimili hans í Árbæ. Hann kveðst ekkert vita um það hver gæti hafa verið að verki og segir leiðinlegt að lenda í svona ráni. 11.3.2025 21:34
„Núna reynir auðvitað á Rússa“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir það mikið gleðiefni að Úkraínumenn hafi fallist á tillögu Bandaríkjanna um 30 daga vopnahlé í Úkraínu. Núna sé boltinn hjá Rússum og þeir þurfi að sýna að þeir hafi raunverulegan vilja til friðar. 11.3.2025 20:01
Úkraína samþykkir tillögu um vopnahlé Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Úkraínumenn hafi samþykkt tillögu Bandaríkjanna um vopnahlé og séu tilbúnir að ganga til viðræðna um að stöðva átökin og stuðla að langvarandi friði. 11.3.2025 18:30
Vaktin: Fannst þungt haldinn í Gufunesi og lést skömmu síðar Lögregla handtók í gær átta manns vegna gruns um að tengjast andláti karlmanns sem fannst látinn í Grafarvogi í Reykjavík í gær. Áverkar á hinum látna benda til þess að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. Þremur var sleppt að yfirheyrslum loknum sem stóðu fram á nótt. Tekin verður ákvörðun um gæsluvarðhald síðar í dag. 11.3.2025 17:41
Segir fjölgun hvala hafa áhrif á loðnustofninn Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, segir skipstjórnarmenn sannfærða um að fjölgun hvala hafi áhrif á loðnustofninn og aðra fiskistofna. Hann segir nauðsynlegt að hafrannsóknir verði efldar og að Íslendingar veiði hvali, og vísar til skrifa Gísla Arnórs Víkingssonar sjávarlíffræðings og hvalasérfræðings í þeim efnum. 9.3.2025 15:01
Barn á öðru aldursári lést Barn á öðru aldursári lést í umferðarslysi þegar rúta og jepplingur skullu saman á Vesturlandsvegi. 9.3.2025 13:34