
Costco

Innflutningur átjánfaldaðist vegna Costco
Berjaæði rann á Íslendinga eftir opnun Costco í Kauptúni í maí í fyrra. Innflutningur á bandarískum jarðarberjum fór úr 26 tonnum árið 2016 í 465 tonn í fyrra. Driscoll's-jarðarberin hafa verið ein vinsælasta vara verslunarinnar.

Costco hæst og lægst í Íslensku ánægjuvoginni
Var með hæstu einkunn þegar kom að eldsneytismarkaði en þá lægstu þegar kom að smásölumarkaði.

Costco hefur áhyggjur af loftslagsbreytingum
Forsvarsmenn bandaríska verslunarrisans Costco hafa áhyggjur að því að loftslagsbreytingar geti haft neikvæð áhrif á rekstur fyrirtækisins, bæði vegna þeirra breytinga sem þær geta haft í för með sér sem og vegna hugsanlegra aðgerða yfirvalda til að stemma í stigu við slíkar breytingar.

Meðlimakortin flækja skilaréttinn í Costco
Engin lög gilda um rétt neytanda til að skila vörum. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir samtökin reglulega fá erindi vegna jólagjafa. Ekki hægt að skipta gjöfum úr Costco nema hafa persónuupplýsingar um gefandann.

Íslenskum jarðarberjum hent í tonnavís eftir komu Costco
Eiríkur Ágústsson bóndi þurfti eftir opnun Costco að henda nokkrum tonnum af jarðarberjum. Stærstu jarðarberjabændurnir vona að Íslendingar velji íslenskt.

Óttast að Vínbúðin sprengi gatnakerfið
Flýta þarf framkvæmdum við breytingar á gatnakerfinu við Kauptún í Garðabæ til að bregðast við auknu umferðarálagi sem fylgja mun opnun Vínbúðar. Bæjaryfirvöld vildu Vínbúð í miðbæinn. ÁTVR sá tækifæri í Costco-traffík.

Bónus hefur keyrt niður vöruverð eftir komu Costco
Bónus hefur lækkað verð á fleiri vörum en Costco úr matarkörfu Fréttablaðsins á umliðnum mánuðum. Costco er með lægra verð á átta vörum en Bónus sjö. Þar sem verð Bónusar er lægra er það þó mun lægra en í tilfellum Costco.

Matarkarfan í Costco hækkað verulega á fáeinum mánuðum
Verðathugun Fréttablaðsins sýnir að níu af fimmtán völdum vörum úr Verðlagseftirliti ASÍ hafa hækkað töluvert í verði hjá Costco undanfarið.

Uppsagnir og minni sala fylgja Costco
Áhrifin af komu Costco hingað til lands eru meiri en heildsalar á borð við Ísam og Sláturfélag Suðurlands bjuggust við.

Andað ofan í hálsmál Costco
Verð á eldsneytislítranum hjá Costco hefur hækkað á undanförnum vikum en á sama tíma hefur nýr keppinautur sótt verulega á svo nú munar aðeins nokkrum krónum á lítranum.

Costco hefur engar áætlanir um að fara inn á tryggingamarkaðinn á Íslandi
Costco selur tryggingar í þremur löndum, Bandaríkjunum, Kanada og Bretlandi.

Áfengi í verslanir: Dæmin sýna að Costco fær sínu framgengt
Prófessor frá Kanada fór yfir hvort gefa ætti smásölu áfengis frjálsa á opnum fundi í Háskóla Íslands.

Fjögur ár í að slátrun skoskra nauta hefjist í stærsta búi Íslands
Fósturvísar úr Aberdeen Angus eru væntanlegir hingað til lands í næsta mánuði.

Steve Pappas segir Costco elska Ísland: „Hvað er ekki að seljast vel?“
Aðstoðarforstjóri Costco ræddi veruna á Íslandi á fjármálaþingi Íslandsbanka.

Sláandi verðsamanburður á Costco í Kanada og á Íslandi
Costco-karfan 123 prósentum dýrari á Íslandi.

Tíundi hver ætlar ekki í verslunarferð í Costco
Um 8,3 prósent landsmanna, eða næstum tíundi hver, ætla ekki að versla við Costco. Næstum tveir af hverjum þremur hafa nú þegar lagt leið sína í Kauptún í Garðabæ. SVÞ telja bagalegt að ekkert sé vitað um áhrifin á aðrar verslanir.

Biðraðir með tugum bíla enn daglegt brauð
Tæpum þremur mánuðum eftir opnun Costco eru þar enn bílaraðir frá morgni til kvölds. Ætla má að daglegir viðskiptavinir séu taldir í þúsundum. Framkvæmdastjóri Atlantsolíu segir Costco hafa tekið til sín stóra markaðshlutdeild.

Íslensk verslun verið blóraböggull fyrir hátt verðlag
Lítill markaður og háir tollar á landbúnaðarvörur hafi aftur á móti mikil áhrif og stjórnvöld þurfa að koma til móts við neytendur, segir forstöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar.

Sviptingar á vöruverði Costco og keppinautar bregðast við
Verðkönnun Fréttablaðsins sýnir að fleiri vörur hjá Costco hafa hækkað í verði en lækkað síðan verslunin var opnuð í maí. Samanburður sýnir að keppinautar hafa sumir brugðist við komu Costco með verðlækkunum.

Fleiri munu þurfa að segja upp starfsfólki vegna Costco
Þó gert hafi verið ráð fyrir því að koma verslunarrisans Costco til landsins myndi hafa einhver áhrif gerðu fáir sér í hugarlund að þar yrðu vörur seldar undir kostnaðarverði.

Papco segir upp fólki vegna komu Costco
Eini framleiðandi landsins á hreinlætispappír hefur sagt upp sex manns eða fullmannaðri vakt síðan Costco opnaði.

Félagsmálaráðherra vill Costco og IKEA-áhrif á íslenskan landbúnað
Þorsteinn Víglundsson segir löngu tímabært að horfast í augu við þann mikla kostnað sem hlýst af innlendum matvörum sem njóta ríkisverndar. Innkoma Costco og IKEA sanni "hversu mikilvæg öflug og góð samkeppni er fyrir lífsskilyrði okkar.“

Samkeppniseftirlitið telur of snemmt að slá föstu hver áhrif Costco verða
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir eftirlitið hafa rannsakað ítarlega möguleg áhrif bandaríska risans Costco á íslenskan markað.

Virðast ekki hafa tekið tillit til áhrifa af komu Costco
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir áhyggjuefni ef ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að ógilda samruna Haga og Lyfju sé ávísun á það sem koma skal.

Rúmir 18 milljarðar þurrkast út eftir opnun Costco
Forsvarsmenn Haga sendu á föstudagskvöldið frá sér sína aðra afkomuviðvörun á einum mánuði þar sem varað var við því að EBIDTA félagsins – rekstrarhagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði – verði um tuttugu prósentum lægri á öðrum fjórðungi þessa árs en á sama tíma í fyrra.

Íbúar á Flötunum segja umferðargný hafa magnast með Costco
"Umferð hefur að undanförnu aukist verulega um Reykjanesbraut ekki síst með tilkomu Costco verslunarinnar og vegna aukinna umsvifa almennt í Kauptúni,“ segir í bréfi íbúa við Sunnuflöt í Garðabæ þar sem þeir óska eftir því að bæjaryfirvöld beiti sér fyrir því að gerð verði hljóðmön við Reykjanesbraut.

Costco gert að merkja efnavöru eftir kvartanir frá keppinautum
Umhverfisstofnun krefurð bandaríska verslunarrisann Costco um úrbætur vegna óviðunandi merkinga á efnavörum eftir kvartanir keppinauta. Ef verslunin verður ekki við kröfum á hún dagsektir yfir höfði sér.

Costco veitti ekki upplýsingar um veltu sína í júní
Velta dagvöruverslana dróst saman um 3,6 prósent í júní frá sama mánuði í fyrra.

Segir erfitt að bera saman verðlag Costco við aðrar búðir
Vísaði Sigurlaug í nýafstaðinna verðkönnun sem gerð var í síðustu viku þar sem ferskvörur voru skoðaðar sérstaklega á milli verslana.

Mesti skellurinn vegna komu Costco hafi verið í júnímánuði
Velta langflestra matvöruverslana á höfuðborgarsvæðinu hefur dregist saman eftir að Costco opnaði verslun sína í Kauptúni í Garðabæ í maí. Samdrátturinn er meiri en margir bjuggust við í upphafi.