
Milestone-málið

Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða
Jón Hilmar Karlsson hefur verið dæmdur til að greiða þrotabúi föður síns, Karls Wernerssonar, 2.652.753.000 krónur með dráttarvöxtum frá 19. janúar árið 2019. Með vöxtum er ekki óvarlegt að reikna með að heildargreiðsla nemi um fimm milljörðum króna.

Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga
Landsréttardómari þarf ekki að víkja sæti í máli sem þrotabú Karls Wernerssonar höfðaði á hendur Jóni Hilmari Karlssyni, sem er sonur Karls. Hæstiréttur hefur fellt dóm þess efnis, þar sem úrskurður Landsréttar í málinu var staðfestur.

Karl mátti ekki gefa konu sinni verðmætt aflandsfélag korter í þrot
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest riftun þrotabús Karls Emils Wernersson á ráðstöfun hans á hlutum í aflandsfélagi til Gyðu Hjartardóttur, sambýliskonu sinnar, skömmu áður en bú hans var tekið til gjaldþrotaskipta. Gyðu hefur verið gert að afhenda þrotabúinu hlutina, sem þrotabúið metur á ríflega 500 milljónir króna, að viðlögðum dagsektum.

Gjaldþrot Steingríms nam nærri fimmtán milljörðum króna
Skiptum er lokið í þrotabúi Steingríms Wernerssonar athafnamanns. Lýstar kröfur í búið námu 14,5 milljörðum króna.

Óþolandi að stór hrunmál eyðileggist vegna klúðurs
Vararíkissaksóknari segir það óþolandi að stór hrunmál sem sakfellt var í skuli nú eyðileggjast vegna klúðurs í kringum ólíka túlkun Hæstaréttar og endurupptökudóms á lögum. Embættið hafi þó ekki um að annað að velja en að fylgja fordæmi Hæstaréttar sem hefur nú vísað frá tveimur slíkum málum.

Sýkna í öðru hrunmáli endurreist en nú með stuðningi saksóknara
Ríkissaksóknari tók undir kröfur þriggja sakborninga í Milestone-málinu svonefnda um að vísa máli þeirra frá Hæstarétti þegar það var tekið upp aftur þar. Frávísunin þýðir að sýknudómur héraðsdóms yfir fólkinu var endurreistur.

Frávísunar krafist vegna dýrkeyptra mistaka í málum útrásarvíkinga
Ríkissaksóknari hefur farið fram á frávísun í máli Milestone gegn Karli Wernerssyni í kjölfar frávísunar Hæstaréttar á sambærilegu máli Styrmis Þórs Bragasonar vegna mistaka endurupptökudóms. Nokkrum svipuðum hrunmálum var ranglega vísað til Hæstaréttar á síðasta ári. Fari hrunmál Karls og fleiri sömu leið og Styrmis standa áratugsgamlir sýknudómar óhaggaðir og ríkið dæmt til að greiða tugi milljóna í málsvarnarlaun.

Húsleit gerð á heimili og vinnustað Karls Wernerssonar
Húsleit var gerð á heimili og vinnustað Karls Wernerssonar, heimili fjölskyldumeðlima hans og hjá fleiri aðilum í gær. Þetta segir Karl í yfirlýsingu til fjölmiðla og kveðst hafa fengið nóg af langvarandi „ofsóknum yfirvalda.“

Mannréttindadómstóllinn að gefa Íslandi falleinkunn
Lögmaður fyrrverandi bankastjóra Landsbankans segir kerfið hafa fengið falleinkunn hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Íslenska ríkið hefur viðurkennt að fimm manns hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð í málaferlum eftir hrun bankakerfisins.

Ríkið viðurkennir brot á mannréttindum og greiðir milljónir í bætur
Íslenska ríkið viðurkennir að fimm Íslendingar hafi ekki fengið réttláta málsmeðferð hér á landi varðandi dóma sem þeir fengu í kjölfar hrunsins. Ríkið greiðir bætur í málinu og hefur Mannréttindadómstóll Evrópu því fellt niður málin.

Gjaldþrot Aurláka nam 1,8 milljörðum
Gjaldþrot Aurláka ehf., félags í fullri eigu fjárfestisins Karls Wernessonar, nam alls rúmlega 1,8 milljörðum króna.

Gjaldþrot Guðmundar nam 12 milljörðum
Alls voru næstum 12 milljarða króna kröfur gerða í þrotabú Guðmundar Ólasonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Milestone.

Milljarðakröfur í þrotabú Karls Wernerssonar
Kröfulýsingarfresti er lokið í þrotabú Karl Wernerssonar.

Milljarðadómur yfir Milestone-mönnum staðfestur
Karl Emil Wernersson, Steingrímur Wernersson og Guðmundur Ólason voru í Hæstarétti í dag dæmdir til að greiða þrotabúi Milestone 5,2 milljarða króna. Hæstiréttur staðfesti þar með niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í fyrra.

Skattamál Karls ekki tekið upp
Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu Karls Wernerssonar um að mál hans fyrir tekjuárin 2005-2008 verði endurupptekin. Fyrri niðurstaða nefndarinnar stendur því óröskuð.

Milljarðs greiðsla Aurláka til Milestone staðfest
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í september 2016.

Karl Wernersson skilaði rangri skattskýrslu um aflandsfélag
Yfirskattanefnd staðfesti niðurstöðu Ríkisskattstjóra að hluta en féllst á kröfu Karls í einum lið. Skattstofn Karls lækkar um 739 milljónir.

Einlægt ákall Ástrósar hreyfði við Karli
Samstarfið kemur í kjölfar gagnrýni Ástrósar Rutar Sigurðardóttur á gífurlegan kostnað krabbameinsveikra einstaklinga og vakti það gríðarlega athygli. Ástrós birti færslu á Facebook þar sem hún ræddi um kostnað eiginmanns síns sem greindur er með krabbamein.

Skiptastjóri Milestone getur ekkert gert
Skiptastjóri Milestone hefur engar heimildir til þess að bregðast við eignafærslu Karls Wernerssonar til sonar síns, Jóns Hilmars Karlssonar.

Færði Lyf og heilsu til tvítugs sonar síns
Daginn eftir að fjárfestirinn Karl Wernersson var dæmdur í fangelsi í Hæstarétti var leiðréttum ársreikningi skilað og rúmlega tvítugur sonur Karls eignaðist Lyf og heilsu.

Dæmdir til að greiða þrotabúi Milestone 5 milljarða
Málið snerist um kaup þeirra bræðra á eignarhlut systur þeirra í Milestone.

Eignasafn Seðlabankans fékk tæpa þrjá milljarða
Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) fékk rétt fyrir áramót tæpa þrjá milljarða króna upp í kröfur sínar vegna gjaldþrots Askar Capital hf. ESÍ var langstærsti kröfuhafi félagsins en skiptum þess lauk 30. desember. Kröfur í búið námu 7,4 milljörðum og fengust rétt rúmir þrír milljarðar upp í þrotið eða 41 prósent.

Aurláki þarf að greiða Milestone tæpan milljarð
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Aurláka ehf. til þess að greiða þrotabúi Milestone tæpan milljarð króna. Aurláki er félag í eigu Karls Wernerssonar en Milestone var á sínum tíma í eigu hans og bróður hans Steingríms Wernerssonar.

Þarf að hætta sem framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu
Karl Wernersson, eigandi Lyfja og heilsu, þarf að láta af starfi framkvæmdastjóri fyrirtækisins vegna fangelsisdóms sem hann hlaut í Hæstarétti í liðinni viku vegna Milestone-málsins.

Karl, Steingrímur og Guðmundur dæmdir í fangelsi í Milestone-málinu
Karl Wernersson fékk þriggja og hálfs árs fangelsisdóm, Guðmundur Ólason þrjú ár og Steingrímur Wernersson tveggja ára dóm.

Ekki tekist að birta Steingrími stefnur
Íslandsbanki skorar á Steingrím Wernersson að greiða rúmlega hundrað milljóna skuldir.

Aurláki þarf að greiða þrotabúi Milestone 970 milljónir króna vegna Lyf og heilsu
Dómur kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Játuðu sök og gert að greiða sekt
Karl Wernersson og Guðni Björgvin Guðnason, sem ákærðir voru ásamt hlutafélaginu Lyf og heilsu fyrir meiriháttar brot gegn ársreikningslögum, játuðu sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Karl og Guðni ákærðir fyrir að vanrækja skil á ársreikningum
Sérstakur saksóknari hefur ákært Karl Wernersson, Guðna Björgvin Guðnason, og hlutafélagið Lyf og heilsu fyrir meiri háttar brot gegn ársreikningalögum.

Allir lýsa yfir sakleysi í Milestone málinu
Allir sakborningar í máli Sérstaks saksóknara í umboðssvikamáli sem tengist Milestone og Ingunni Wernesdóttur lýstu sig saklausa við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sex eru ákærðir í málinu. Bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir, sem áttu meirahluta í Milestone og sátu í stjórn félagsins, Guðmundur Ólason, fyrrverandi forstjóri Milestone og þrír endurskoðendur hjá KPMG.