Rússland
26 27 28 29 30 31 32 33 34 … 98 ›
Úrvinda hermenn búast við enn harðari átökum Úrvinda úkraínskir hermenn kvarta yfir því að eiga við ofurefli að etja í austurhluta Úkraínu, þrátt fyrir að Rússar hafi ekki enn sent alla þá hermenn sem skikkaðir voru til herþjónustu á víglínurnar. Úkraínskir læknar segja mannfall hafa aukist að undanförnu en hart er barist víða á víglínunum í Úkraínu. Erlent 6.2.2023 22:41
Segir Pútín hafa lofað sér því að láta ekki drepa Selenskí Naftali Bennett, fyrrverandi forsætisráðherra Ísrael, hefur greint frá því að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hafi heitið honum því skömmu eftir innrás Rússa í Úkraínu að hann myndi ekki láta drepa Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Erlent 6.2.2023 07:36
Klitschko reiður vegna Rússa á ÓL: Með gullmedalíu í að nauðga konum Einn frægasti íþróttamaður í sögu Úkraínu sparaði ekki stóru orðin þegar hann gagnrýndi fréttirnar af því að Alþjóðaólympíunefndin, IOC, vilji finna leið fyrir Rússa og Hvít-Rússa til að taka þátt í Ólympíuleikunum í París á næsta ári. Sport 2.2.2023 09:31
Búast við stórsókn Rússa í lok febrúar Varnarmálaráðherra Úkraínu fullyrðir að Rússar séu að undirbúa nýja stórsókn sem gæti hafist í lok þessa mánaðar eða í kringum 24. febrúar. Erlent 2.2.2023 07:09
„Ljóst að yfirstandandi atburðir hafa stórskaðað samstarf norðurskautsríkja“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er stödd í Tromsø í Noregi en þar stendur yfir norðurslóðaráðstefnan Arctic Frontiers. Innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðingar hennar fyrir norðurslóðasamstarf voru efst á baugi í umræðum utanríkisráðherra Íslands, Noregs og Svíþjóðar og ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins á ráðstefnunni í dag. Innlent 31.1.2023 19:44
Biden segir „nei“ við þotum til handa Úkraínumönnum „Nei,“ svaraði Joe Biden Bandaríkjaforseti einfaldlega þegar hann var spurður að því í Hvíta húsinu í gær hvort Bandaríkjamenn myndu senda F-16 herþotur til Úkraínu. Úkraínumenn kalla nú eftir herþotum eftir að hafa verið lofað skriðdrekum. Erlent 31.1.2023 06:38
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við verðum að gera tímann að vopni okkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði í gærkvöldi eftir því að bakhjarlar ríkisins flýti vopnasendingum til landsins. Harðir bardagar geisa víða í austurhluta Úkraínu, þar sem Rússar virðast hafa gefið í á undanförnum dögum. Erlent 30.1.2023 15:00
Talsmaður Pútíns segir Boris ljúga um meinta eldflaugarhótun Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, segir ekki rétt að Pútín hafi ógnað Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Boris sagði í nýrri heimildarþáttarröð BBC um átökin í Úkraínu og aðdraganda innrásar Rússa í landið að skömmu fyrir innrásina hefði Pútín ógnað sér og Bretlandi. Erlent 30.1.2023 11:52
Pútín sagðist geta skotið eldflaug á Bretland á innan við mínútu Að sögn Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist Vladimir Pútín Rússlandsforseti geta skotið eldflaug í átt að Bretlandi „á innan við mínútu“ í símtali sem átti sér stað skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 30.1.2023 07:16
Frökkum gert að yfirgefa Búrkína Fasó Franskir hermenn munu yfirgefa Búrkína Fasó í næsta mánuði. Herforingjastjórn Afríkuríkisins hefur krafist þess að fyrrverandi nýlenduherrar þess fari á brott en herforingjastjórnin hefur að undanförnu leitað frekar til Rússlands eftir aðstoð gegn umsvifamiklum vígahópum á Sahel-svæðinu svokallaða. Erlent 27.1.2023 09:03
Rússar safna í nýjan herafla á Krímskaga Rússar gerðu stórfelldar loftárásir á borgir og raforkuinnviði í Úkraínu í morgun. Þeir segja ákvörðun Vesturlanda um að senda skriðdreka til landsins marka beina þátttöku vestrænna ríkja í vörnum Úkraínu og ögrun við öryggi Rússlands. Erlent 26.1.2023 19:21
Annar Þjóðverji handtekinn vegna njósna fyrir Rússa Lögreglan í Þýskalandi handtók á sunnudaginn annan mann vegna umfangsmikils og vandræðalegs njósnamáls. Í desember var starfsmaður BND, leyniþjónustu Þýskalands, handtekinn og er sá grunaður um að hafa njósnað fyrir Rússa. Erlent 26.1.2023 16:38
Kirkjugarður Wagner hefur sjöfaldast að stærð Kirkjugarður þar sem málaliðar Wagner Group eru jarðaðir hefur margfaldast af stærð á undanförnum mánuðum. Málaliðahópurinn er sagður hafa orðið fyrir miklu mannfalli í austurhluta Úkraínu en flestir þeirra sem falla eru sagðir vera fangar sem tóku tilboði um sex mánaða þjónustu í Wagner í skiptum fyrir frelsi. Erlent 26.1.2023 13:50
Skutu þrjátíu eldflaugum á Úkraínu Umfangsmikil loftárás er nú í gangi í Úkraínu en Rússar skutu í morgun að minnsta kosti þrjátíu eldflaugum á skotmörk í landinu. Erlent 26.1.2023 08:32
Þingmenn þurfa ekki lengur að opinbera tekjur sínar né eignir Neðri deild rússneska þingsins hefur samþykkt ný lög sem gera það að verkum að þingmenn munu ekki lengur þurfa að opinbera tekjur sínar né eignir. Þess í stað munu skattayfirvöld gefa út „samantekt“ byggða á þeim gögnum sem þeim berast. Erlent 26.1.2023 07:06
Kanslari Þýskalands mætir á leiðtogafund á Íslandi Þjóðverjar og bandalagsþjóðir þeirra í Atlantshafsbandalaginu munu senda Úkraínumönnum rúmlega hundrað skriðdreka til að byrja með, samkvæmt ákvörðun sem kanslari Þýskalands greindi frá í dag. Forsætisráðherra segir varkárni Þjóðverja skiljanlega í ljósi sögunnar. Erlent 25.1.2023 19:21
Bandaríkjamenn senda Úkraínumönnum 31 skriðdreka Bandaríkjamenn hafa samþykkt að senda 31 M1 Abrams skriðdreka til Úkraínu. Bandaríkjamenn hafa verið tregir til að senda skriðdreka en í gær samþykktu Þjóðverjar að senda 14 Leopard 2A6 skriðdreka á vígvöllinn. Búist er við að fleiri ríki Atlantshafsbandalagsins fylgi þessu fordæmi og sendi skriðdreka til Úkraínu. Erlent 25.1.2023 18:03
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Segja að vestrænir skriðdrekar brenni eins og aðrir Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, mun í dag tilkynna þýska þinginu ákvörðun sína um að flytja Leopard 2A6 skriðdreka til Úkraínu og leyfa ráðamönnum annarra ríkja sem nota skriðdrekana að senda einnig skriðdreka. Erlent 25.1.2023 10:50
Hleypa hlébörðunum á vígvöllinn Olaf Scholz kanslari Þýskalands hefur tekið ákvörðun um að senda skriðdreka, svonefnda hlébarða (Leopard 2) til Úkraínu. Þá verður öðrum þjóðum, sem búa yfir slíkum skriðdrekum, að öllum líkindum leyft að senda þá til Úkraínu, en þar sem skriðdrekarnir eru framleiddir í Þýskalandi þurfa þarlend yfirvöld þurfa að samþykkja útflutning þeirra. Erlent 24.1.2023 19:07
Bandaríkjamenn sagðir íhuga að senda sína skriðdreka Ráðamenn í Bandaríkjunum er sagðir líklegir til að senda Úkraínumönnum M1 Abrams skriðdreka á næstunni. Slíkar sendingar gætu verið tilkynntar strax í næstu viku en með þeim myndu Þjóðverjar einnig samþykkja að senda eigin skriðdreka og leyfa öðrum ríkjum að senda þýska skriðdreka. Erlent 24.1.2023 16:52
Biðja formlega um leyfi til skriðdrekasendinga Yfirvöld í Póllandi hafa sent formlega beiðni til Þýskalands um leyfi til þess að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Ráðamenn í Póllandi hafa gefið í skyn að verði beiðninni hafnað muni þeir samt senda skriðdrekana en Þjóðverjar hafa verið undir miklum þrýstingi að undanförnu vegna málsins. Erlent 24.1.2023 11:01
Vann fyrir rússneskan auðjöfur sem hann átti að rannsaka Saksóknarar ákærðu í gær mann sem var einn af æðstu starfsmönnum Alríkislögreglu Bandaríkjanna í New York. Charles McGonigal er sakaður um að hafa unnið fyrir rússneskan auðjöfur sem hann var með til rannsóknar. Erlent 24.1.2023 10:06
Telur hæpið að Rússar verði reknir á brott á þessu ári Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segist telja óraunhæft að búast við því að Úkraínumenn geti rekið allar rússneskar hersveitir út úr Úkraínu á þessu ári. Hann sagðist ekki telja það ómögulegt en sagðist telja að stríðið í Úkraínu myndi enda við samningaborðið, eins og flest önnur stríð. Erlent 21.1.2023 22:30
Skilgreina Wagner sem alþjóðleg glæpasamtök Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að skilgreina rússneska málaliðahópinn Wagner Group sem alþjóðleg glæpasamtök. Í kjölfar þess verður hópurinn beittur viðskiptaþvingunum sem takmarka eiga umsvif hópsins á heimsvísu. Erlent 21.1.2023 09:07
Rússar segja að sendingar vestrænna skriðdreka muni engu máli skipta Dmitrí Peskóv, talsmaður Valdimírs Pútíns, forseta Rússlands, segir að hergagnasendingar Vesturlanda til Úkraínu muni ekki hafa nein áhrif á stöðu mála á víglínum landsins. Sendingarnar muni eingöngu auka á vandræði Úkraínumanna. Erlent 20.1.2023 11:17
Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að njósna um Svía fyrir Rússa Dómstóll í Stokkhólmi hefur dæmt tvo bræður í fangelsi fyrir njósnir en þeir voru sagðir hafa veitt Rússum upplýsingar sem gætu skaðað þjóðaröryggi Svía. Eldri bróðirinn var dæmdur í lífstíðarfangelsi en sá yngri fékk tæplega tíu ára dóm. Sérfræðingur segir brot af þessari stærðargráðu sjaldgæf í Svíþjóð. Erlent 19.1.2023 12:50
Ósmekklegar ábendingar um hræsni og siðferðisbrest Hilmar Þór Hilmarsson skrifar grein á Vísi í tilefni af færslu sem ég setti á Facebook-síðu mína í gær, en þar vakti ég athygli á því að forstöðumaður kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga gegnir enn stöðu heiðurskonsúls eða kjörræðismanns hryðjuverkaríkisins Rússlands. Skoðun 18.1.2023 10:00
Ólafur Stephensen og birgðastaðan á dilkakjöti hjá KS Ólafur Stephensen framkvæmdastóri Félags atvinnurekenda skráir eftirfarandi á facebook síðu sína 17. janúar 2023. „Á bls. 13 í Morgunblaðinu í dag er sagt frá nýjasta stríðsglæp Rússa í Úkraínu, eldflaugaárás á íbúðablokk, þar sem minnst 40 manns létu lífið. Af 75 særðum eru 14 börn. Skoðun 18.1.2023 07:01
Á að ákveða hvort Úkraína fái vestræna skriðdreka Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, tilkynnti í morgun að hann myndi skipa Boris Pistorius í embætti varnarmálaráðherra. Sá hefur verið innanríkisráðherra Neðra-Saxlands frá árinu 2013 en hans fyrsta verk í nýju embætti verður að taka ákvörðun um það hvort flytja megi Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Erlent 17.1.2023 13:01
Wagner-liði vill hæli í Noregi Fyrrverandi yfirmaður í rússneska málaliðahópnum Wagner Group hefur beðið um hæli í Noregi. Andrey Medvedev flúði yfir landamæri Noregs og Rússlands við Pasvikdalen á föstudaginn þar sem hann var handtekinn af norskum landamæravörðum. Erlent 17.1.2023 09:15