
Íran

Írönsk yfirvöld segja Rushdie og stuðningsmenn hans eina bera ábyrgð á árásinni
Yfirvöld í Íran taka fyrir að hafa komið að árás á rithöfundinn Salman Rushdie í New York á föstudag. Þau segja Rushdie sjálfan og aðdáendur hans bera ábyrgð á árásinni.

Rushdie kominn úr öndunarvél
Salman Rushdie er kominn úr öndunarvél og farinn að tala og segja brandara. Þetta segir vinur rithöfundarins, en ráðist var á Rushdie á sviði í New York á dögunum þar sem hann ætlaði að halda fyrirlestur. Rushdie var stunginn ítrekað og fluttur á sjúkrahús.

„Byssukúlan“ sem var þrjátíu og þrjú ár á leiðinni
Rithöfundurinn Salman Rushdie hefur um árabil þurft að fara huldu höfði vegna morðhótana. Undanfarin ár hafði hann þó farið að lifa eðlilegu lífi á nýjan leik en hann var stunginn margsinnis á sviði í New York-ríki í Bandaríkjunum í gær.

Reyndi að ráða þjóðaröryggisráðgjafa Trumps af dögum
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákært íranskan hermann fyrir ráðabrugg um að að ráða John Bolton, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna af dögum. Talið er að morðið hafi átt að vera hefndaraðgerð eftir að Bandaríkjamenn felldu íranskan herforingja í loftárás í Írak.

Rúmlega tuttugu létust í skyndiflóðum í Íran
Alls létu 21 manns lífið í dag í skyndiflóðum í Fars-héraði í Íran. Í dag var mikil rigning á svæðinu og flæddi áin Roudbal yfir bakka sína.

Leiðtogar þriggja valdstjórnarríkja stinga saman nefjum
Leiðtogar Rússlands, Írans og Tyrklands, þriggja landa í hópi óvinsælustu ríkja heims, funduðu í Teheran í Íran í dag. Þeir ræddu meðal annars mögulegan útflutning á milljónum tonna af korni frá Úkraínu. Forseti Úkraínu segir hersveitir hans sækja hægt og örugglega fram gegn Rússum og hafa unnið til baka töluvert landsvæði frá þeim.

Úkraínuforseti sigurviss en Putin reynir að afla sér vina
Putin Rússlandsforseti fundar með leiðtogum Írans og forseta Tyrklands í Teheran í dag í tilraun sinni til að afla sér bandamanna. Zelenskyy forseti Úkraínu segir hersveitir Úkraínu hafa náð að valda Rússum miklum skaða að undanförnu og það væri bara spurning um tíma hvenær fáni landsins blakti í öllum borgum og bæjum Úkraínu.

Pútín sækir Raisi heim og fundar með Erdogan
Vladimír Pútín Rússlandsforseti heimsækir Íran í dag í opinberri heimsókn sem ætlað er að dýpka tengslin við stjórnvöld í landinu en einnig stendur til að hitta Recep Tayyip Erdogan forseta Tyrklands í sömu ferð.

Íranir útvega Rússum hundruð eftirlits- og árásardróna
Bandaríkjastjórn segir stjórnvöld í Íran með í undirbúningi að útvega Rússum hundruð eftirlits- og árásar dróna og að þjálfa Rússa í notkun þeirra. Að minnsta kosti tólf óbreyttir borgarar særðust í árás Rússa á heilsugæslu og íbúðarhúsnæði í borginni Mykolaiv í suðurhluta Úkraínu í nótt.

Íranir hyggjast sjá Rússum fyrir hundruðum sprengjudróna
Íranir ætla að láta Rússum í té mörghundruð drónasprengjuvélar sem nota á í stríðinu í Úkraínu.

Fimm létust í jarðskjálfta í Íran
Fimm eru látnir eftir snarpan jarðskjálfta í suðurhluta Íran í morgun. Jarðskjálftinn mældist 6,3 stig og fundu íbúar nágrannalanda Írans einnig fyrir honum.

Rúmlega tuttugu látnir í lestarslysi í Íran
Að minnsta kosti tuttugu og einn er látinn og tugir til viðbótar slasaðir eftir að farþegalest fór út af sporinu í austanverðu Íran. Viðbragðsaðilar segja að lestin hafi rekist á skurðgröfu og hrokkið út af.

Mótmæli eftir mannskætt húshrun halda áfram í Íran
Reiði ríkir enn í garð íranskra yfirvalda eftir að 37 manns fórust þegar íbúðablokk hrundi í suðvestanverðu landinu í síðustu viku. Mótmælendur hafa meðal annars hrópað slagorð gegn Ali Khamenei, æðsta leiðtoga Írans.

Aftökur sjaldan færri en fjölgaði mikið milli ára
Kippur var í fjölda aftaka í fyrra eftir að þeim fækkaði umtalsvert í kórónuveiruheimsfaraldrinum árið 2020. Mest fjölgaði þeim í Íran og Sádi-Arabíu. Þrátt fyrir það voru sögulega fáir teknir af lífi í fyrra.

Liðsforingi hjá íranska byltingarverðinum skotinn til bana
Liðsforingi hjá írönsku byltingarvörðunum, sem eru ein valdamesta stofnun Írans, var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í gær.

Átta létust eftir landadrykkju
Átta létust í írönsku borginni Bandar Abbas eftir að hafa drukkið heimabruggað áfengi. Minnst 51 til viðbótar gekkst undir læknishendur vegna áfengiseitrunar og sautján þeirra liggja á gjörgæslu.

Zaghari-Ratcliffe á leið heim eftir að hafa verið haldið í Íran í sex ár
Nazanin Zaghari-Ratcliffe, bresk-írönsk kona sem hefur verið haldið fanginni í Íran í nærri sex ár, er á leið heim. Þingmaður Zaghari-Ratcliffe greindi frá þessu á Twitter í morgun og sagði hana á flugvellinum í Tehran.

Íranir grunaðir um loftárás á ræðismannsskrifstofu í Erbil
Um tug flugskeyta var skotið á höfuðborg Kúrda í Írak, Erbil, í gær. Bandarískir embættismenn hafa Írana grunaða um árásina en flugskeytum var meðal annars beint að nýrri ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í borginni.

Saka Íran um að spila með karlmann í markinu
Jórdanía hefur ásakað nágrannaþjóð sína Íran um að stilla upp karlmanni í marki sínu er þjóðirnar mættust í A-landsleik kvenna í knattspyrnu á dögunum. Knattspyrnusamband Jórdaníu vill staðfestingu þess efnis að markvörður Íran sé kvenkyns.

Heimsleiðtogar uggandi yfir kjarnorkuáætlun Írana
Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands, Þýskalands og Frakklands segjast hafa miklar og stígvaxandi áhyggjur af kjarnorkuáætlun Írans. Leiðtogarnir ræddu málið á G20 fundinum í Róm í dag.

Kjarnorkusamningaviðræður hefjist aftur fyrir nóvemberlok
Samningaviðræður um endurlífgun kjarnorkusamnings frá árinu 2015 milli Íran og sex annarra stórvelda munu hefjast aftur fyrir nóvemberlok. Þetta sagði helsti samningarmaður Íran í gær.

Íranar leyfa aftur eftirlit með kjarnorkuframleiðslu
Stjórnvöld í Íran samþykktu í dag að heimila eftirlitsfólki Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) að hefja eftirlitsupptökur að nýju í kjarnorkurannsóknarstöðvum landsins.

Íranir halda áfram að auðga úran
Stjórnvöld í Teheran halda áfram að bæta í forða sinn af auðguðu úrani sem hægt væri að nota til framleiðslu á kjarnavopnum, að sögn Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar (IAEA). Eftirlitsmenn hennar hafa átt erfitt um vik að fylgjast með þróun mála í Íran á þessu ári.

Reiðir heimamenn handsömuðu meðlimi Hezbollah sem skutu eldflaugum að Ísrael
Reiðir þorpsbúar í Chouya í suðurhluta Líbanons stöðvuðu bílalest á vegum Hezbollah hryðjuverkasamtakanna sem virðist hafa verið notuð til að skjóta eldflaugum að Ísrael í morgun.

Nýr forseti sór embættiseið í Íran
Harðlínuklerkurinn Ebrahim Raisi sór embættiseið sem nýr forseti Írans í dag. Hann tekur við embættinu af Hassan Rouhani sem þótti hófsamur á íranskan mælikvarða.

Ræningjarnir yfirgáfu skipið
Vopnaðir menn sem fóru um borð í olíuflutningaskip undan ströndum Óman í gær, yfirgáfu skipið Sjóher Bretlands tilkynnti þetta í morgun og var skipinu siglt í átt að Óman skömmu seinna.

Vopnaðir menn fóru um borð í olíuflutningaskip á Persaflóa
Sjóher Bretlands tilkynnti í dag að olíuflutningaskipi hafi líklegast verið rænt undan ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna í dag. Hópur vopnaðra manna eru sagðir hafa farið um borð í skipið Asphalt Princess.

Ákæra Írana fyrir að ætla að ræna konu frá New York
Saksóknarar í Bandaríkjunum hafa ákært fjóra Írana fyrir að hafa ætlað að ræna bandarískri blaðakonu og aðgerðasinna. Konan, sem heitir Masih Alinejad, hefur verið gagnrýnin á klerkastjórn Írans en mennirnir fjórir eru taldir vera útsendarar hennar.

Gerðu loftárásir á skotmörk á landamærum Íran og Sýrlands
Bandaríkjaher gerði í gær loftárásir á landamærum Íraks og Sýrlands. Skotmörkin voru bækistöðvar og vopnabúr vígamanna sem halda til á svæðinu og njóta stuðnings Íransstjórnar.

Lokuðu tugum íranskra vefsíðna sem eru sakaðar um upplýsingafals
Bandarísk yfirvöld lokuðu tugum fréttavefsíðna sem tengjast írönskum stjórnvöldum sem þau saka um að dreifa fölskum upplýsingum. Á meðal þeirra voru vefsíður sjónvarpsfréttastöðvar Húta í Jemen og vefmiðils herskárra Palestínumanna.