Mjanmar
1 2 3 4 5 6 7 … 7 ›
ESB beitir refsiaðgerðum vegna Úígúra og valdaránsins í Búrma Evrópusambandið ákvað í dag að beita fjóra kínverska embættismenn og ellefu yfirmenn í her Búrma refsiaðgerðum vegna mannréttindabrota gegn Úígúrum í Kína annars vegar og valdaránsins í Búrma hins vegar. Erlent 22.3.2021 16:10
Mikill eldsvoði í flóttamannabúðum róhingja Þúsundir róhingja eiga nú engan stað til að halla höfði sínu vegna mikil eldsvoða sem blossaði upp í flóttamannabúðum þeirraí sunnanverðu Bangladess í dag. Hundruð tjalda hafa orðið eldinum að bráð og er óttast að fólk hafi farist. Erlent 22.3.2021 14:45
Blóðbaðið í „Búrma“ heldur áfram Minnst fimm mótmælendur hafa verið felldir af öryggissveitum í Mjanmar, eða Búrma, í dag. Mótmælin gegn herstjórninni sem hefur tekið völdin í landinu hafa haldið áfram þrátt fyrir að tugir mótmælenda hafi verið skotnir til bana um helgina. Erlent 15.3.2021 12:15
Blóðugur dagur í Mjanmar Minnst 21 mótmælandi var drepinn í átökum við öryggissveitir í borginni Yangon í dag eftir að leiðtogi ríkisstjórnarinnar sem herinn steypti af stóli í byrjun febrúar boðaði byltingu. Erlent 14.3.2021 21:36
Boðar byltingu gegn herforingjastjórninni í Búrma Leiðtogi ríkisstjórnar Búrma sem herinn steypti af stóli boðar stuðning við byltingu gegn herforingjastjórninni sem hrifsaði völdin í síðasta mánuði. Hermenn drápu að minnsta kosti fimm manns sem tóku þátt í mótmælum í dag. Erlent 14.3.2021 12:20
Herinn sakar Suu Kyi um mútuþægni Herforingjastjórn Búrma sakar Aung San Suu Kyi, sem hún steypti af stóli sem lýðræðislega kjörnum leiðtoga landsins, um að hafa þegið jafnvirði meira en 77 milljóna íslenskra króna og gull í mútur. Engar sannanir hafa þó verið lagðar fram fyrir ásökununum fram að þessu. Erlent 11.3.2021 11:55
Öryggisráðið kallar eftir því að her Mjanmar stígi til hliðar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kallaði í kvöld eftir því að forsvarsmenn herafla Mjanmar létu af valdaráni sínu og hættu ofbeldi gegn mótmælendum. Erlent 10.3.2021 23:58
Sjálfstæðir fjölmiðlar í Mjanmar sviptir útvarpsleyfinu Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur bannað fimm fjölmiðlafyritækjum í landinu að starfa og er ástæðan sú að fjölmiðlarnir sögðu frá hinum víðtæku mótmælum sem staðið hafa yfir síðan herforingjarnir tóku völdin í Mjanmar á dögunum. Erlent 9.3.2021 07:34
Blóðugasti dagur Mjanmar hingað til en mótmælin halda áfram Mótmælendur í Mjanmar virðast ekki láta deigan síga þrátt fyrir að minnst 38 hafi verið skotnir til bana af öryggissveitum í gær. Fjölmargir hafa komið saman á götum borga landsins í morgun og hafa öryggissveitir aftur beitt valdi til að dreifa mótmælendum. Erlent 4.3.2021 10:08
Skothríð gegn mótmælendum í Mjanmar Öryggissveitir Mjanmar hófu í dag skothríð á fólk sem hafði komið saman á götum borga og bæja landsins í dag til að mótmæla valdaráni hersins. Minnst átján eru sagðir liggja í valnum og tugir eru særðir. Erlent 3.3.2021 16:11
Skaut á almenna borgara Lögreglan í Mjanmar skaut á almenna borgara í borginni Yangon í morgun, en þeir höfðu safnast saman til að mótmæla valdaráni hersins í landinu á dögunum. Erlent 2.3.2021 07:58
Blóðug átök í Mjanmar Að minnsta kosti átján dóu í aðgerðum lögreglu í Mjanmar gegn mótmælendum í gær en átökin eru þau blóðugustu í landinu hingað til eftir að herinn tók þar öll völd á dögunum. Erlent 1.3.2021 06:39
Minnst tíu mótmælendur drepnir í Mjanmar Lögregla í Mjanmar hefur orðið minnst tíu mótmælendum að bana víða um landið. Harka hefur færst í viðbrögð hersins við mótmælum gegn valdaráni sem framið var í Mjanmar fyrr í mánuðinum. Tugir mótmælenda hafa þá særst. Erlent 28.2.2021 14:03
Sendiherra Mjanmar hjá SÞ rekinn fyrir að biðja um hjálp Herforingjastjórn Mjanmar, sem rændi völdum í byrjun febrúarmánaðar, hefur rekið Kyaw Moe Tun, sendiherra landsins hjá Sameinuðu þjóðunum, eftir að hann óskaði eftir aðstoð SÞ til þess að hrekja herforingjastjórnina frá völdum. Erlent 27.2.2021 17:28
Fjölmenn mótmæli í skugga skothríðar Þúsundir mótmælenda gengu um götur borga Mjanmar í morgun, þrátt fyrir að hermenn hafi skotið minnst tvo mótmælendur til bana í gær og sært marga aðra. Erlent 21.2.2021 10:54
Blóðugur dagur í Mjanmar Minnst tveir eru látnir eftir að hermenn hófu skothríð á mótmælendur sem voru að mótmæla valdaráni hers Mjanmar. Fregnir herma að tugir hafi særst í skothríðinni sem hófst nærri hafnarsvæði Mandalay, næst stærstu borg ríkisins. Erlent 20.2.2021 15:25
Látin eftir að hafa verið skotin í höfuðið í mótmælum Tvítug kona sem særðist alvarlega þegar hún var skotin af lögreglu í Mjanmar á dögunum er látin af völdum áverkans. Erlent 19.2.2021 07:24
Suu Kyi ákærð vegna brota á lögum um náttúruhamfarir Aung San Suu Kyi, lýðræðislega kjörinn leiðtogi Mjanmar sem hefur verið í haldi frá því að herinn rændi völdum í byrjun febrúar, var í dag ákærð fyrir að hafa brotið lög um náttúruhamfarir. Ekki er ljóst hvað meint lögbrot varða. Erlent 16.2.2021 17:20
Vara herforingjastjórnina við því að berja niður friðsöm mótmæli með ofbeldi Sameinuðu þjóðirnar vara herforingjastjórnina í Mjanmar við afleiðingum þess að berja niður friðsöm mótmæli í landinu með ofbeldi. Erlent 16.2.2021 06:51
Suu Kyi lengur í gæsluvarðhaldi Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir Aung San Suu Kyi, kjörnum leiðtoga Mjanmar, var framlengdur í dag. Herinn hótar mótmælendum tuttugu ára fangelsisdómum. Erlent 15.2.2021 19:00
Hóta því að fangelsa mótmælendur í tuttugu ár Her Mjanmar hefur varað mótmælendur í landinu við því að þeir gætu verið dæmdir til tuttugu ára fangelsisvistar. Sömuleiðis gætu mótmælendur þurft að greiða háar sektir fyrir mótmæli gegn valdaráni hersins. Erlent 15.2.2021 16:56
Beita skriðdrekum og byssukúlum í von um að bæla niður mótmælin Skriðdrekar hafa sést á götum nokkurra borga í Mjanmar í dag þar sem her landsins freistar þess að bæla niður mótmælaöldu sem brotist hefur út í landinu eftir að herinn hrifsaði til sín völdin í byrjun þessa mánaðar. Lokað hefur verið fyrir internetið nær alfarið í allt kvöld en það er ekki í fyrsta sinn sem það hefur verið gert eftir að mótmælin brutust út. Erlent 14.2.2021 23:58
Einn stærsti dagur mótmælanna í Mjanmar þrátt fyrir hótanir um handtökur Tugir þúsunda tóku þátt í fjöldamótmælum í Mjanmar, níunda daginn í röð, í nótt og í morgun. Í gær skrifaði herforinginn Min Aung Hlaing undir tilskipun sem takmarkar frelsi og réttarstöðu almennra borgara, auk þess sem löggæsluyfirvöldum var skipað að handtaka þekkta stjórnarandstæðinga tafarlaust. Erlent 14.2.2021 10:32
Þekktir stjórnarandstæðingar verða handteknir Herforingjastjórn Mjamar felldi í dag lög úr gildi sem banna löggæsluyfirvöldum að handtaka grunaða og framkvæma leit á einkaeign án þess að fá til þess heimild frá dómstólum. Þá fyrirskipaði stjórnin að þekktir stjórnarandstæðingar verði handteknir. Erlent 13.2.2021 21:57
Mannréttindaráðið fordæmir valdarán í Mjanmar Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi í dag valdarán hersins í Mjanmar á sérstökum fundi sem Ísland lagði til að væri haldinn ásamt öðrum ríkjum. Erlent 12.2.2021 19:01
Herforingjarnir beittir efnahagsþvingunum Joe Biden forseti Bandaríkjanna hefur undirritað tilskipun þess efnis að leiðtogar herforingjastjórnarinnar í Mjanmar sem tóku völdin í landinu á dögunum verði beittir efnahagsþvingunum af hálfu Bandaríkjanna. Erlent 11.2.2021 13:31
Þúsundir mótmæla í Mjanmar Enn er mótmælt á götum Mjanmar eftir að her landsins tók völdin og hneppti lýðræðislega kjörna fulltrúa í varðhald, þar á meðal leiðtogann Aung San Suu Kyi. Erlent 8.2.2021 06:59
Mótmælin halda áfram þrátt fyrir netleysi Mótmælendur í Mjanmar halda áfram að mótmæla í Yangon þrátt fyrir að herforingjastjórnin, sem tók völdin í vikunni sem leið, hafi lokað á Internet-tenginu landsins sem og helstu samfélagsmiðla. Ákvað herinn að loka á netið svo mótmælendur gætu ekki skipulagt sig. Erlent 7.2.2021 08:44
Loka á Internetið svo mótmælendur geti ekki skipulagt sig Herforingjastjórn Myanmar hefur slökkt á Internet-tengingu landsins vegna mótmæla þar í landi. Herforingjastjórnin tók völdin í vikunni sem leið og setti kjörinn leiðtoga landsins í varðhald. Erlent 6.2.2021 12:42
Loka á Facebook og aðra samfélagsmiðla í landinu Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur lokað á Facebook og aðra samfélagsmiðla í landinu og segist með því vera að tryggja stöðugleika í landinu. Herinn tók á dögunum völdin í Mjanmar og hneppti fjölda stjórnmálamanna í varðhald, þar á meðal kjörinn leiðtoga landsins, Aung San Suu Kyi. Erlent 4.2.2021 07:25