Lög og regla
68 69 70 71 72 73 74 75 76 … 120 ›
Flýðu eftir að hafa velt bíl Bíll valt á aðrein af Miklubraut niður á Reykjanesbraut í nótt. Ökumaður og farþegi komust út úr bílnum og tóku til fótanna. Lögreglan hafði nokkru síðar uppi á ökumanninum sem reyndist vera ölvaður og nokkru síðar uppi á farþeganum. Þeir verða látnir sofa úr sér í fangageymslum og yfirheyrðir í dag. Innlent 13.10.2005 19:09
Olís á eitt eftir að greiða sekt Olís hafði skömmu fyrir hádegið ekki greitt sekt sína til ríkissjóðs vegna ólöglegs verðsamráðs olíufélaganna, en Esso fylgdi í gær fordæmi Skeljungs og greiddi sína sekt. Innlent 13.10.2005 19:09
Berjast fyrir lausn Arons Pálma Íslenski stuðningsmannahópurinn sem vann að því að ná Bobby Fischer úr haldi í Japan hefur ákveðið að einhenda sér í næsta baráttumál. Markmið hópsins að þessu sinni er að fá Aron Pálma Ágústsson, 21 árs íslenskan dreng sem var dæmdur til tíu ára refsivistar í Texas í Bandaríkjunum, leystan úr haldi. Innlent 13.10.2005 19:09
Hálfs árs fangelsi fyrir innbrot Maður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í hálfs árs fangelsi fyrir innbrot og tilraun til þjófnaðar. Maðurinn var á skilorði og braut reynslulausn með því að brjótast inn í hús í miðborg Reykjavíkur á menningarnótt. Því þótti dómara ekki ástæða til að skilorðsbinda refsinguna. Innlent 13.10.2005 19:09
Skipverjarnir látnir lausir Tveir skipverjar á togaranum Hauki ÍS, sem sátu í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi vegna gruns um stórfellt fíkniefnabrot, hafa verið látnir lausir og eru komnir hingað til lands. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins en samkvæmt þeim voru mennirnir látnir lausir skömmu fyrir mánaðamót. Innlent 13.10.2005 19:09
Rán í söluturni Grímuklæddur maður rændi söluturn við Bústaðaveg á tólfta tímanum í gærkvöldi og komst undan með eitthvað af peningum. Hann ógnaði afgreiðslustúlku með hnífi en vann henni ekki mein. Innlent 13.10.2005 19:09
Fara alla leið með málin Samtök eigenda sjávarjarða höfða á næstunni mál hendur ríkinu. Nýfallinn dómur Hæstaréttar tók ekki á eignarrétti sjávarbænda á hlunnindum í sjó. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður segir viðbúið að eignarréttarmál héðan fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu í Strassborg. Innlent 13.10.2005 19:09
Lausir úr prísund og komnir heim Skipverjarnir tveir af togaranum Hauki ÍS sem handteknir voru í janúar síðastliðnum í Bremerhaven með mikið magn fíkniefna hafa verið látnir lausir og eru komnir heim. Innlent 13.10.2005 19:09
Fíkniefnadómar fyrir norðan Sex voru dæmdir í fésektir og fangelsi fyrir fíkniefnabrot í fjórum dómum Héraðsdóms Norðurlands eystra í gær. Lægsta sektin var 30 þúsund krónur og sú hæsta 150 þúsund. Þyngsti dómurinn hljóðaði upp á tveggja mánaða fangelsi og eins árs ökuleyfissviptingu. Innlent 13.10.2005 19:09
Hald lagt á íslenska fána Lögreglan í Reykjanesbæ dró niður og lagði hald á þrjá íslenska fána sem blöktu við hún í Sandgerði í nótt. Samkvæmt fánalögum má íslenski fáninn ekki vera uppi eftir sólarlag en sólarlag var rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 19:09
Herör gegn ólöglegu vinnuafli "Takmarkið er að útrýma ólöglegu vinnuafli hér á landi með öllum þeim ráðum sem við höfum," segir Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Sambandið hefur í samstarfi við sín aðildarfélög sett af stað sérstakt átak, Einn réttur - ekkert svindl, gegn þeim atvinnurekendum sem misnota erlent vinnuafl. Innlent 13.10.2005 19:09
Þrettán ára í forsvari Lögreglan á Selfossi gerði húsleit í Hveragerði um síðustu helgi vegna gruns um að fíkniefnaneysla væri þar viðhöfð og reyndist sú raunin. Eigandi hússins var þó hvergi sjáanlegur en í hans stað hafði 13 ára drengur lyklavöldin og umboð húseigandans meðan hann hafði brugðið sér til mánaðar vinnudvalar. Innlent 13.10.2005 19:09
Fundu lík af Brasilíumanni Lík af manni fannst á skeri út frá Stokkseyri um klukkan 17 í gær. Samkvæmt lögreglunni á Selfossi er talið að líkið sé af Brasilíumanninum Ricardo Correra Dantas sem hefur verið saknað síðan 2. apríl síðastliðinn þegar hann sást ganga út af heimili þar sem hann dvaldi á Stokkseyri. Lögreglan á Selfossi segist ekki geta gefið frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Rannsókn á málinu er hafin. Innlent 13.10.2005 19:08
Fjórtán ára stúlka ók útaf vegi Lögreglan í Kópavogi fékk aðfaranótt sunnudags upplýsingar um bifreið sem hafði verið ekið út af í Álfabakka. Ökumaðurinn reyndist vera fjórtán ára gömul stúlka og hafði hún stolið bifreiðinni frá heimili sínu. Innlent 13.10.2005 19:08
Líklega ekki um morð að ræða Líkið af manninum sem fannst á skeri út frá Stokkseyri um klukkan fimm í gærdag var af brasilíumanninum Ricardo Correra Dantas en hans hafði verið saknað síðan 2. apríl síðastliðinn. Ricardo Correra Dantes sást síðast ganga út af heimili þar sem hann dvaldi á Stokkseyri á þessum örlagaríka degi. Lögreglan á Selfossi segir málið vera í rannsókn en að svo stöddu bendi ekkert til að um morð hafi verið að ræða en lík hans verður krufið á næstu dögum. Innlent 13.10.2005 19:08
Sótti slasaðan pilt á Snæfellsnes Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti nú síðdegis pilt á sextánda ári sem fótbrotnaði illa á björgunarsveitaræfingu við innsiglinguna í Ólafsvík. Eftir því sem næst verður komist varð pilturinn á milli innsiglingarbauju og báts á flotæfingu sveitarinnar. Innlent 13.10.2005 19:08
Grunaðir um ölvun við akstur Klukkan hálfsjö að morgni sunnudags barst lögreglunni í Kópavogi tilkynning um hugsanlega ölvaðan ökumann bifreiðar á Breiðholtsbraut við Nýbýlaveg. Innlent 13.10.2005 19:08
Ungur drengur slasaðist Drengur fæddur 1989 slasaðist á æfingu með unglingadeild björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Ólafsvík. Innlent 13.10.2005 19:08
Lík brasilíumannsins fundið Lík Brasilíumannsins Ricardo Correia Dantas fannst á laugardag í fjörunni á Stokkseyri. Tilkynnt var um hvarf Dantas 2. apríl síðastliðinn og leituðu björgunarsveitir lengi án árangurs. Innlent 13.10.2005 19:08
Vél einangruð vegna eiturefnaleka Farþegaflugvél Icelandair hefur verið einangruð á Keflavíkurflugvelli og er eiturefnadeild Varnarliðsins við vélina ásamt lögreglu og fulltrúum heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Vélin var nýkomin frá Minneapolis í Bandaríkjunum í morgun og var verið að afferma hana þegar skordýraeitur lak úr tunnu sem var verið að færa til. Innlent 13.10.2005 19:08
Hlaðmenn fundu fyrir óþægindum Skordýraeitur lak út í vél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í morgun og þurfti að taka vélina úr umferð á meðan hún var hreinsuð. Aðstoðarslökkviliðsstjóri segir hlaðmenn hafa orðið fyrir óþægindum. Innlent 13.10.2005 19:08
Tvær 14 ára teknar á rúntinum Lögreglan í Kópavogi fékk tilkynningu um um bíl sem hafði farið út af við Álfabakka í Reykjavík um þrjúleytið í nótt og að þar væri líklega ekki allt með felldu. Það reyndist rétt en þegar betur var að gáð var um tvær fjórtán ára stúlkur að ræða sem höfðu stolið bíl foreldra annarrar þeirra og ákveðið að fara á rúntinn með fyrrgreindum afleiðingum. Innlent 13.10.2005 19:08
Teknir fyrir ölvunarakstur Lögreglan í Hafnarfirði fann lítið magn af kannabisefni í bíl er hún stöðvaði um tvöleytið í nótt. Lögreglan segir efnið hafa líklega verið ætlað til einkaneyslu og var fólkinu sleppt eftir yfirheyrslu. Þá var maður stöðvaður grunaður um ölvun um klukkan þrjú í nótt við Strandveg í Hafnarfirði og annar eftir að gámur stöðvaði hann við Vesturgötu um fjögur í nótt og fékk sá að dvelja í fangageymslum lögreglunnar og verður skýrsla tekin af honum í dag. Innlent 13.10.2005 19:08
Skordýraeitur lak úr tunnu í vél Skordýraeitur stöðvaði farþegavél Flugleiða í morgun. Franskir bændur höfðu keypt tíu 16 lítra tunnur af skordýraeitri fyrir akrana sína og fengið Flugleiðir til að flytja frá Minneapolis til Parísar. Þegar menn byrjuðu af afhlaða vélina í morgun kom í ljós að lekið hafði úr einni tunnu og fór þá ákveðin viðbúnaðaráætlun í gang. Innlent 13.10.2005 19:08
Reykskynjari bjargaði Dalvíkingi Reykskynjari bjargaði lífi tæplega þrítugs karlmanns þegar eldur kom upp á heimili hans á Dalvík í nótt. Nágranni hans tilkynnti lögreglunni um eldinn og þegar lögreglan kom á staðinn var íbúinn, sem var einn í húsinu, að stökkva út um glugga á annarri hæð. Slölkkvilið var fljótt á staðinn og gekk slökkvistarf vel, en húsið er mikið skemmt. Innlent 13.10.2005 19:08
Á 180 km hraða á Kringlumýrarbraut Maður var stöðvaður á mótorhjóli sínu á 180 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut í Reykjavík um tvöleytið í nótt en hámarkshraði á þeirri götu er aðeins 80 kílómetrar á klukkustund. Maðurinn var sviptur ökuréttindum á staðnum og segir lögreglan manninn verða ákærðan og að hann fái að öllum líkindum háa sekt, en hversu há hún verður fer eftir ferli mannsins í umferðinni til þessa. Innlent 13.10.2005 19:08
Meiddist lítillega í veltu Jeppi ók út af við Ingólfshvoll í Ölfusi um fjögurleytið í dag og valt í kjölfarið. Einn maður var í bílnum og samkvæmt lögreglunni á Selfossi var hann fluttur á slysadeild með minni háttar meiðsl. Innlent 13.10.2005 19:08
Funda um ofbeldi á þriðjudag Akureyringar ætla ekki að láta mótmæli gegn ofbeldi og fíkniefnum í bænum í gær nægja því boðað hefur verið til borgarafundar í Ketilshúsinu á þriðjudaginn kemur þar sem ræða á hvernig hægt sé að draga út eða stöðva það ofbeldi og þann vímuefnavanda sem fréttir hafa borist af að undanförnu. Innlent 13.10.2005 19:08
Ungmenni gripin með kannabisefni Þrjú ungmenni á tvítugsaldri voru tekin með lítið magn af kanabisefni í Hveragerði um miðnætti í nótt. Samkvæmt lögreglunni á Selfossi var fólkið flutt í fangageymslur lögreglunnar þar sem það gisti. Skýrsla verður tekin af því nú í morgunsárið og mun rannsókna á málinu fara fram í dag. Innlent 13.10.2005 19:08
Tekinn á 180 Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í fyrrinótt ökumann á bifhjóli þar sem hann ók á 180 kílómetra hraða eftir Kringlumýrarbraut en þar er leyfilegur hámarkshraði 80 kílómetrar á klukkustund. Hann má búast við ökuleyfissviptingu og háum sektum. Innlent 13.10.2005 19:08