Lög og regla
91 92 93 94 95 96 97 98 99 … 120 ›
Fjórir handteknir í Garðabæ Fjórir 17 ára piltar voru handteknir fyrir utan Stjörnuheimilið í Garðabæ aðfaranótt laugardags. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði voru piltarnir að reyna að komast inn á Þorrablótsskemmtun sem þar var haldin án þess að hafa til þess aldur. Innlent 13.10.2005 15:26
Tekinn fyrir ölvunarakstur Ökumaður, sem grunaður er um ölvun, varð valdur að árekstri á Ísafirði laust fyrir klukkan fimm í morgun. Tveir fólksbílar rákust saman á gatnamótum Ásgeirsgötu og Suðurgötu á Tanganum og reyndist ökumaður annars bílsins, piltur um tvítugt, ölvaður. Hann gistir nú fangageymslu lögreglunnar á Ísafirði. Innlent 13.10.2005 15:26
Reyndu að ryðjast inn á þorrablót Fjórir óboðnir gestir, þrír piltar og ein stúlka, sem reyndu að komast inn á þorrablót í Garðabæ í nótt enduðu í fangageymslu lögreglunnar. Fólkinu var meinuð innganga á þorrablót Stjörnunnar í Ásgarði en lét sér ekki segjast og neitaði að hlýða fyrirmælum lögreglu. Greip lögregla þá til þess ráðs að handtaka fjórmenninganna. Innlent 13.10.2005 15:26
Teknir fyrir verkfæraþjófnað Þrír sextán ára piltar voru gripnir við innbrot í vinnuskúra á Álftanesi í nótt. Til piltanna sást og var lögregla látin vita. Reyndu þeir að komast undan en lögregla náði þeim fljótlega á hlaupum. Höfðu piltarnir stolið verkfærum og komið þeim undan en þeir vísuðu síðan á þýfið. Málið telst upplýst. Innlent 13.10.2005 15:26
Grunaður um sölu á hassi Lögreglan í Keflavík fann 70 grömm af hassi við húsleit hjá manni í Njarðvík í gærkvöldi og lagði hald á efnið. Í fyrrakvöld, þegar lögreglumenn þurftu að hafa tal af sama manni, fundust sjö grömm á honum. Hann er grunaður um að hafa ætlað að selja efnið og er málið í frekari rannsókn. Innlent 13.10.2005 15:25
Gæsluvarðhald framlengt Gæsluvarðhald yfir Ungverja, sem tekinn var með tæpt kíló af kókaíni innvortis á Keflavíkurflugvelli í lok desember, hefur verið framlengt um sex vikur. Innlent 13.10.2005 15:25
Sakaðir um stórfelld skattsvik Þremur af fyrrverandi stjórnendum Skjás eins, sem hlutu dóma í fyrra vegna stórfellds þjófnaðar frá Landssímanum, er nú gefið að sök að hafa svikið hátt í 60 milljónir króna undan skatti. Það er vegna fimm fyrirtækja sem þeir ráku og Ríkislögreglustjóri hefur rannsakað. Brotin ná meðal annars til vangoldinna vörsluskatta. Innlent 13.10.2005 15:25
Ógnað með símtali og SMS-skeytum Ungum manni sem var handtekinn í tengslum við komu forseta Kína hingað til lands sumarið 2002, var ógnað með símtali og SMS-sendingum úr síma lögregluþjóns í kjölfarið. Viðkomandi lögregluþjónn neitaði fyrir dómi í dag að hafa hringt eða sent piltinum skilaboðin. Innlent 13.10.2005 15:25
Í fangelsi fyrir ölvunarakstur Tveir menn fæddir árin 1947 og 1949 voru í Héraðsdómi Reykjaness á föstudag dæmdir í þrjátíu daga fangelsi og til sviptingar ökuréttar ævilangt fyrir ölvunarakstur. Innlent 13.10.2005 15:25
Aftur ákærðir fyrir kvótasvindl Tveir útgerðarmenn hafa verið ákærðir fyrir stórfellt kvótasvindl. Þessir sömu menn voru sakfelldir fyrir rúmu ári fyrir mesta kvótasvindl Íslandssögunnar. Innlent 13.10.2005 15:25
Skerpa þarf á reglum Skerpa þarf á þvingunarúrræðum sem slökkviliðsstjórar geta gripið til í lögum ef slökkviliðstjóri telur að um almannahættu sé að ræða. Innlent 13.10.2005 15:25
Laus úr haldi Rúmlega þrítug íslensk kona sem handtekinn var á Keflavíkurflugvelli á þriðjudag var með tæp 390 grömm af hassi innvortis og í fórum sínum. Hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald til gærdagsins en var sleppt úr haldi á fimmtudagskvöld. Innlent 13.10.2005 15:25
Óska hjálpar íslensku lögreglunnar Grunur leikur á að fleiri Íslendingar en þeir tveir sem nú sitja í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi tengist fíkniefnamáli sem kom upp eftir leit í Hauki ÍS þann sjötta janúar síðastliðinn. Þá fundust þrjú og hálft kíló af kókaíni og annað eins af hassi í klefa tveggja skipverjanna. Beiðni um hjálp íslensku lögreglunnar við rannsókn málsins er kominn af stað í þýska kerfinu. Innlent 13.10.2005 15:25
Unir dómi 27 ára hollensk kona sem var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmd í eins árs fangelsi fyrir kókaínsmygl í nóvember síðastliðinn hefur ákveðið að una dómnum. Innlent 13.10.2005 15:25
Veiddu 116 tonn án kvóta Ríkislögreglustjóri hefur höfðað opinbert mál gegn þremur mönnum fyrir að hafa á tímabilinu 3. september 2001 til 27. mars 2002 gert skip út frá Ólafsvík án veiðiheimilda og veitt rúmlega 116 tonn af þorski. Innlent 13.10.2005 15:25
Óskar eftir skýringum sýslumanns Bogi Nilsson ríkissaksóknari segir að óskað hafi verið eftir skýringum frá sýslumanninum í Vestmannaeyjum vegna frétta um að kæra fyrir líkamsárás hafi verið fyrnd þegar loks var ákært í málinu. Innlent 13.10.2005 15:25
Gæsluvarðhald rennur út í dag Gæsluvarðhald yfir íslenskri konu, sem handtekin var í Leifsstöð á þriðjudag með fíkniefni í fórum sínum, rennur út í dag. Ekki hefur verið gefið upp hversu mikið af fíkniefnum fannst en hún var bæði með efni innvortis og innan klæða. Konan var að koma frá Kaupmannahöfn þegar hún var handtekin. Innlent 13.10.2005 15:25
Gerir athugasemd við geðrannsóknin Hákon Eydal, sem varð Sri Rahmawati að bana, hefur hætt við að fara fram á að dómskvaddir matsmenn geri aðra geðrannsókn á honum en hann er að hluta til ósáttur við þá geðrannsókn sem gerð hefur verið. Milliþinghald var í málinu gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Innlent 13.10.2005 15:25
Sýknaður fyrir að aka löggur Maður sem var ákærður fyrir að aka á lögreglumenn við Lyfju í Lágmúla í Reykjavík var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Innlent 13.10.2005 15:25
Reyndist einnig vera með LSD Brasilísk kona sem var handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins fyrir að reyna að smygla 850 grömmum af kókaíni var einnig með um tvö þúsund skammta af LSD. LSD-sýran var í töfluformi sem falin var í leggöngum konunnar en hún kom til landsins rétt fyrir jól. Innlent 13.10.2005 15:25
Með fíkniefni innvortis Íslensk kona um þrítugt var handtekin á Keflavíkurflugvelli með fíkniefni innvortis og í fórum sínum þegar hún kom til landsins á þriðjudag. Í kjölfarið var konan úrskurðuð í gæsluvarðhaldi til dagsins í dag. Innlent 13.10.2005 15:25
Ákærðir fyrir skattsvik Kristján Ragnar Kristjánsson og Árni Þór Vigfússon hafa, ásamt þremur öðrum mönnum, verið ákærðir fyrir skattalagabrot í tengslum við rekstur fyrirtækja sem þeir áttu. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í gærkvöld. Innlent 13.10.2005 15:25
Sniffuðu kókaín á salernisvaskinum Nokkrir veitingahúsaeigendur sem Fréttablaðið ræddi við segja að ekki fari á milli mála að talsvert mikið sé notað af kókaíni samhliða skemmtanahaldi í miðborg Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 15:25
Hákon Eydal fellur frá kröfunni Hákon Eydal, sem hefur viðurkennt að hafa banað barnsmóður sinni Sri Rhamawati, hefur fallið frá kröfu um nýja geðrannsókn. Við þingfestingu málsins gegn honum fyrr í mánuðinum gerði hann þessa kröfu og var milliþinghald um það í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 13.10.2005 15:25
KB stefnir Mjólkurfélaginu KB banki hefur stefnt Mjólkurfélagi Reykjavíkur til að greiða hálfan milljarð króna vegna samnings sem fyrrverandi stjórnarformaður félagsins gerði við bankann vegna viðskipta með Fóðurblönduna. Mjólkurfélagið segir samninginn ólögmætan. Innlent 13.10.2005 15:25
Framvísaði fölsuðu vegabréfi Tvítugur Frakki var, Í Héraðsdómi Reykjaness, dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi við komu til landsins á aðfangadag. Vegabréfið var falsað frá grunni sem þykir sjaldséð. Innlent 13.10.2005 15:25
Lögreglumaður sóttur með valdi Ungur maður hefur höfðað mál gegn lögreglunni fyrir ólögmæta handtöku og skerðingu tjáningarfrelsis þegar honum var meinað að mótmæla komu forseta Kína hingað til lands. Lögreglumaður, sem handtók manninn og er sakaður um að hafa hótað honum í framhaldinu, mætti ekki fyrir dóm og var þess krafist í dag að hann yrði sóttur með lögregluvaldi. Innlent 13.10.2005 15:25
Akureyrarbær braut jafnréttislög Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra um að Akureyrarbær hefði brotið jafnréttislög. Brotið snýr að því að konu var mismunað í launakjörum á grundvelli kynferðis. Innlent 13.10.2005 15:25
Árni Þór og Kristján Ra ákærðir Kristján Ragnar Kristjánsson og Árni Þór Vigfússon, kenndir við Skjá einn, hafa ásamt þremur öðrum mönnum verið ákærðir fyrir stórfelld skattalagabrot. Málið varðar vanskil á sjötta tug milljóna króna í vörslusköttum, virðisaukasköttum og staðgreiðslu. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Innlent 13.10.2005 15:25
Nígeríumaðurinn farinn úr landi Þrítugur Nígeríumaður sem handtekinn var í tengslum við umfangsmikið smygl á kókaíni er farinn úr landi. Maðurinn var tekinn í kjölfar þess að þrítugur Ungverji var tekinn í Leifsstöð með tæpt kíló af kókaíni innvortis í áttatíu hylkjum. Innlent 13.10.2005 15:24