Kvöldfréttir Stöðvar 2
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 63 ›
Trúðamótmæli, viðvaranir og einfætt fegurðardrottning Alþingi kom saman í dag í skugga mótmæla eftir tveggja vikna hlé vegna forsetakosninga. Dagurinn byrjaði á því að fundi í allsherjar-og menntamálanefnd var frestað en þar stóð til að taka fyrir útlendingafrumvarpið. Innlent 3.6.2024 18:05
Nýr forseti, kjörsókn sú besta í 28 ár og mat kjósenda Höllu Tómasdóttur nýkjörnum forseta var fagnað ákaft af stuðningsfólki sínu þegar hún ávarpaði það fyrir utan heimili sitt síðdegis. Halla tók forystuna í kosningunum strax og fyrstu tölur bárust og hélt henni allt til loka. Innlent 2.6.2024 18:09
Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Landsmenn kjósa sjöunda forseta lýðveldisins í dag og kjörsókn hefur verið góð. Forsetakosningarnar verða fyrirferðamiklar í þessum fyrsta sjónvarpsfréttatíma júnímánaðar. Innlent 1.6.2024 17:43
Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Undirbúningur er í fullum gangi fyrir forsetakosningarnar á morgun og víða verið að stilla upp kjörstöðum. Þátttaka í utankjörfundaratkvæðagreiðslu hefur verið minni en oft áður. Í kvöldfréttum verður rætt við almenning í landinu um morgundaginn og svo við sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu í beinni útsendingu um utankjörfundaratkvæðagreiðsluna. Innlent 31.5.2024 18:01
Ólíkar sviðsmyndir í skoðanakönnunum og eldgos á Reykjanesi Dregið hefur verulega úr virkni eldgossins við Sundhnúksgígaröðina í dag. Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir mun betur hafa farið en útlit var fyrir í gær. Kristján Már Unnarsson verður í beinni útsendingu frá gosstöðvunum í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 30.5.2024 18:01
Allt um enn eitt eldgosið og sjóðandi hiti á Hlíðarenda Eldgosið í Sundhnúksgíg verður fyrirferðamikið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Kristján Már Unnarsson, fréttamaður okkar og reynslubolti þegar kemur að eldgosum, hefur verið á gosstöðvunum í allan dag og er enn. Innlent 29.5.2024 18:21
Andlát í Bolungarvík og forsetaefni í slorinu Sambýlisfólk á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi í Bolungarvík hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögregla fékk ábendingu um málið. Lögreglustjórinn segir krufningu geta leitt í ljós hvort eitthvað saknæmt átti sér stað, og hvenær fólkið lést. Innlent 28.5.2024 17:59
Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga Íslendingar ganga að kjörborðinu um helgina og spennandi lokametrar í kosningabaráttunni eru fram undan. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 mun Heimir Már Pétursson rýna í skoðanakannanir og greina stöðuna. Innlent 27.5.2024 18:30
Þakka að ekki fór verr í rútuslysi og hafnfirsk börn þora varla út Hjón sem lentu í rútuslysi, ásamt 25 öðrum í gær segja ótrúlegt að ekki hafi farið verr. Þrír úr hópnum köstuðust út úr rútunni þegar hún valt. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 26.5.2024 18:02
Bregst við áhyggjum af áfengissölu og áhyggjur brimbrettakappa Forstjóri Hagkaups segir áhyggjur af áformum um netsölu áfengis í verslun keðjunnar skiljanlegar að einhverju leyti. Þess vegna verði gerðar ítrustu kröfur til þeirra sem vilja versla þar áfengi, sem hann segir meiri en aðrir á áfengismarkaði geri. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 25.5.2024 18:02
Aukinn viðbúnaður í verðmætaflutningum og óveður í beinni Öryggismiðstöðin hefur aukið viðbúnað í verðmætaflutningabílum sínum, eftir að tugum milljóna var stolið úr bíl fyrirtækisins í Hamraborg. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður í fyrsta sinn frá atvikinu rætt við framkvæmdastjóra Öryggismiðstöðvarinnar sem segir að viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað stefnt starfsmönnum í hættu. Innlent 24.5.2024 18:01
Vendingar í nýrri könnun og köttur heiðraður með styttu Töluverðar breytingar eru á stuðningi við forsetaframbjóðendur samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu. Helstu tíðindi verða birt í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræðing í beinni. Innlent 23.5.2024 18:00
Stefna ríkinu eftir andlát tveggja ára dóttur og örlög sjómanna sem hurfu Fimm klukkustundir liðu frá skoðun hjúkrunarfræðings og þar til tveggja ára stúlka lést úr Covid-19. Þrátt fyrir að óháður sérfræðingur telji lækni hafa sýnt af sér vanrækslu í málinu telur landlæknir að brestum í kerfislægum og mannlegum þáttum sé um að kenna. Foreldarnir ætla að stefna ríkinu. Innlent 22.5.2024 18:00
Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Matvælaráðuneytið hefur enn ekki svarað umsókn Hvals hf. um veiðileyfi í sumar þrátt fyrir að veiðitímabilið ætti að hefjast eftir einungis um hálfan mánuð. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segist viss um að með þessu baki ráðuneytið íslenska ríkinu skaðabótaskyldu og telur ómögulegt að úr sumarvertíðinni rætist. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 21.5.2024 18:00
Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Prófessor í stjórnmálafræði segir það stórfréttir að alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Stærstu fréttirnar séu þó þær að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi reynst algjörlega vanhæft til að takast á við aðstæðurnar. Innlent 20.5.2024 18:00
Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Óttast er að þyrla með forseta Írans innanborðs hafi hrapað í fjalllendi í norðvesturhluta landsins í dag. Margt er á huldu um atburðarásina. Við sýnum frá leitinni í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 19.5.2024 18:21
Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Klínískur næringarfræðingur hefur áhyggjur af stóraukinni notkun þyngdarstjórnunarlyfja hér á landi. Hún þekkir dæmi um að fólk hljóti af þeim alvarlegar aukaverkanir á borð við garnalömun. Þá telur hún lækna sæta mikilli pressu frá skjólstæðingum sínum um að skrifa upp á lyfin. Innlent 18.5.2024 18:20
Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Íslendingum sem nota sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyf hefur fjölgað um rúm sextíu prósent á aðeins sextán mánuðum. Notendur lyfjanna sem fréttastofa hefur rætt við segjast eingöngu á lyfjunum til að léttast en eru hraustir að öðru leyti. Innlent 17.5.2024 18:01
Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Talsverðar breytingar eru á fylgi forsetaframbjóðenda samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem greint verður frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Við rýnum í niðurstöðurnar og sýnum frá undirbúningi kappræðna efstu sex frambjóðenda, sem mætast strax eftir fréttir. Innlent 16.5.2024 18:10
Umferðarslys vegna símanotkunar, banatilræði að forsætisráðherra og mýflugnafaraldur Rekja má fjórðung umferðarslysa til símanotkunar undir stýri. Allt að 200 slasast hérlendis vegna þessa á hverju ári. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 15.5.2024 18:01
Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Stjórnarmaður Knattspyrnusambands Íslands segir þá sem glíma við spilafíkn marga upplifa sína dýpstu dali og íhuga að taka eigið líf. Vandamálið eigi bara eftir að stækka. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 14.5.2024 18:16
Þvingun úr landi og prestar í kisubúning Fórnarlambið í meintu frelsissviptingarmáli var þvingað til að fara úr landi af meintum gerendum sínum. Hann var sendur til Möltu en maðurinn er þarlendur ríkisborgari. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 13.5.2024 17:51
Meint frelsissvipting, brottvísun og vöggustofubörn Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar meinta frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Sveitarstjórinn segir samfélagið í áfalli vegna málsins. Innlent 12.5.2024 18:01
Vendingar í Eurovision höllinni og forsetakosningar Miklar vendingar hafa verið í Arena höllinni í Malmö í dag þar sem úrslitakvöld Eurovision fer fram í kvöld. Allt virtist ætla að sjóða upp úr eftir að Hollendingum var vikið úr keppni og fjórar þjóðir neituðu að taka þátt í fánaathöfn. Þá er norski stigakynnirinn hættur við að koma fram. Innlent 11.5.2024 18:02
Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Duchenne-samtökin mótmæla harðlega fyrirhugaðri brottvísun tólf ára gamals palestínsks drengs með hrörnunarsjúkdóm. Búið er að synja umsókn fjölskyldunnar um dvalarleyfi en rætt verður við drenginn og fjölskyldu hans í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 10.5.2024 18:00
Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Ísraelsher gerði árás á austurhluta Rafah-borgar í morgun þar sem hundruð þúsunda Palestínumanna hafa undanfarið leitað skjóls. Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í gær að hann myndi stöðva vopnasendingar til Ísrael ef forsætisráðherra landsins fyrirskipar árás inn á Rhafah. Innlent 9.5.2024 18:01
Ný könnun, stýrivextir og umdeildasta sjónvarp landsins Seðlabankastjóri segir að gæta verði hófs í vexti ferðaþjónustunnar og í atvinnulífinu almennt. Seðlabankinn hafi fengið það hlutverk að knýja fram hófsemi með vaxtahækkunum. Miklar verðbólguvæntingar og áframhaldandi þensla séu helstu ástæður þess að vextir séu ekki lækkaðir. Innlent 8.5.2024 18:23
Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Skriðdrekar Ísraelshers voru sendir inn í Rafah-borg á Gaza eldsnemma í morgun og tugir féllu í loftárásum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við stjórnmálafræðing sem er svartsýn á að vopnahlé sé í nánd og við verðum í beinni frá samstöðutónleikum með Gaza sem fara fram á sama tíma og Íslendingar keppa í Júrovisíon. Innlent 7.5.2024 17:53
Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Faðir manns sem fannst látinn í fangaklefa á Litla-Hrauni um liðna helgi vill í minningu sona sinna bæta aðstæður og líf fólks með vímuefnavanda. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við hann og formann Afstöðu um aðstæður fanga. Innlent 6.5.2024 17:39
Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Samningafundur í deilu Sameykis og Félags flugmálastarfsmanna stendur nú yfir í Karphúsinu. Náist ekki samkomulag hefst ótímabundið yfirvinnu- og þjálfunarbann klukkan á fimmtudag. Við förum yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 5.5.2024 18:00