Ástin á götunni
283 284 285 286 287 288 289 290 291 … 334 ›
Ólafur Kristjánsson gagnrýnir KSÍ Ólafur Kristjánsson, fyrrverandi þjálfari Fram, var gagnrýninn á stefnu KSÍ varðandi uppbyggingu yngri landsliða á þjálfararáðstefnu sem KSÍ og KÞÍ stóðu fyrir á laugardag. Sport 13.11.2005 20:36
Atvinnumennska innan fimm ára Teitur Þórðarson þjálfari KR segir framtíðina á Íslandi aðeins stefna í eitt miðað við aðstöðu og peningana sem komnir eru í íslenska boltann. Sport 13.11.2005 20:36
Ísland mætir Hollandi í apríl Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun leika vináttulandsleik gegn Hollendingum ytra 12. apríl næstkomandi. Leikurinn er liður í undirbúningi fyrir leiki í undankeppni HM kvenna í maí og júní 2006. Sport 12.11.2005 14:17
Eiður og Duff á klakanum Vísir.is hefur óstaðfestar heimildir fyrir því að Eiður Smári Guðjohnsen og Damien Duff, leikmenn Chelsea, séu nú staddir í Reykjavík. Ekki er vitað hvort fleiri leikmenn Chelsea séu staddir á landinu með Eiði en þeir félagar munu samkvæmt okkar heimildum hafa í hyggju að vera viðstaddir Galafrumsýningu í kvöld á nýju Eli Roth og Quentin Tarantino kvikmyndinni Hostel, sem Íslendingurinn Eyþór Guðjónsson leikur aðalhlutverkið í. Sport 12.11.2005 16:07
KR-FH í 1. umferð Íslandsmeistarar FH heimsækja KR í Frostaskjól í 1. umferð Landsbankadeildar karla næsta sumar en dregið var í töfluröð landsleilda 2006 nú í dag. Í 1. umferð Landsbankadeildar kvenna hefja Blikastúlkur titilvörn sína með því að leika við KR. Sport 12.11.2005 15:04
Fjölmiðlamenn ráku þjálfara Ólafur Jóhannesson þjálfari Íslandsmeistara FH í knattspyrnu karla segir að ýmsir blaðamenn hafi óbeint með skrifum sínum rekið knattspyrnuþjálfara úr störfum sínum í Landsbankadeildinni í sumar. Þetta sagði Ólafur í ræðu á formannafundi allra aðildarfélaga KSÍ sem fram fór á Hótel Nordica í morgun. Sport 12.11.2005 13:15
Dregið í töfluraðir í dag Í dag kl. 13 verður dregið í töfluröð fyrir landsdeildir 2006 í fótbolta en þá skýrist hvaða félög mætast í einstökum umferðum viðkomandi móts. Drátturinn er fyrir Landsbankadeild karla, Landsbankadeild kvenna, 1. deild karla og 2. deild karla og fer hann fram á Hótel Nordica. Niðurstöður dráttarins ættu að liggja fyrir um miðjan daginn í dag. Sport 12.11.2005 12:48
Ceres 4 þrekþjálfari Þróttar Kennarinn, þjálfarinn, tónlistarmaðurinn og athafnamaðurinn Hlynur Áskelsson, sem einhverjir kunna að þekkja sem Ceres 4 en aðrir sem Köttara númer tvö, hefur tekið að sér þrek- og úthaldsþjálfun Þróttar og mun þar af leiðandi bera ábyrgð á því að leikmenn liðsins geti hlaupið heilan fótboltaleik næsta sumar. Sport 8.11.2005 22:16
Sektað um 700 þúsund á árinu Knattspyrnusamband Íslands hefur alls verið sektað um ríflega 700 þúsund krónur á tímabilinu vegna áminninga sem leikmenn íslenska landsliðsins hafa hlotið í undankeppni HM. Sport 8.11.2005 22:14
Allir á leið heim? Eins og við greindum frá í gær þá er Þórarinn Kristjánsson líklega á leið til Keflavíkur á ný en samningaviðræður gætu tafist eftir að stjórn Keflavíkur komst að því að Þórarinn væri ekki lengur í viðræðum við Grindavík og því væru þeir einir um hituna. Sport 7.11.2005 21:45
Þórarinn til Keflavíkur Knattspyrnumaðurinn Þórarinn Kristjánsson mun að öllum líkindum skrifa undir samning við uppeldisfélag sitt, Keflavík, í vikunni. Þórarinn hefur verið í viðræðum vð Grindavík og Keflavík síðustu vikur en Grindvíkingar hafa slitið viðræðunum þar sem þeir sáu sér ekki fært að mæta launakröfum Þórarins sem ku vera í hærri kantinum. Sport 7.11.2005 10:03
Breiðablik fór með sigur af hólmi Lið Breiðabliks vann lið Icelandair í úrslitum á Mastersmótinu í Egilshöll í dag, en mótið var kennt við markaskorarann Ian Rush, fyrrum leikmann Liverpool, en lið hans hafnaði í þriðja sæti á mótinu eftir sigur á Víkingi í leiknum um þriðja sætið. Sport 5.11.2005 18:05
Skrifar undir hjá Skaganum á morgun Knattspyrnumaðurinn Þórður Guðjónsson er á leið heim til Íslands og mun skrifa undir þriggja ára samning við sitt gamla félag ÍA á morgun. Þetta staðfesti Þórður sjálfur nú rétt áðan. Ljóst er að koma Þórðar verður Skagaliðinu mikill liðsstyrkur fyrir átökin næsta sumar, en hann hafnaði tilboði FHinga um að leika með liðinu og ákvað að fara á heimaslóðirnar. Sport 2.11.2005 18:01
Valur fær liðsstyrk Valsmönnum gengu í dag frá samningi við tvo nýja leikmenn sem spila munu fyrir liðið á næsta ári. Þetta eru fyrrum Fylkismaðurinn Valur Fannar Gíslason og Pálmi Rafn Pálmason frá KA. Þá hefur knattspyrnudeild Víkings ákveðið að draga kæru á hendur Valsmönnum vegna ólöglegra viðræðna við leikmenn til baka, eftir að sátt náðist milli félaganna tveggja. Sport 1.11.2005 17:09
Lárus Orri tekur við þjálfun Þórs Fyrrum atvinnumaðurinn Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari fyrstu deildarliðs Þórs á Akureyri. Lárus hefur leikið með liðinu síðan hann sneri aftur heim úr atvinnumennsku og mun nú verða spilandi þjálfari liðsins. Samningurinn er til þriggja ára, en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins í dag. Sport 26.10.2005 17:36
Bjarni aðstoðar Eyjólf Bjarni Jóhannsson, þjálfari Blika í Landsbankadeildinni, mun verða aðstoðarmaður félaga síns Eyjólfs Sverrissonar hjá íslenska landsliðinu. Þetta var tilkynnt í dag og kemur kannski ekki mikið á óvart, því þeir félagar hafa starfað saman áður. Sport 26.10.2005 17:26
Gerði þriggja ára samning Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Ásgeir Elíasson samþykkt að taka við þjálfun 1. deildar liðs Fram og hefur nú undirritað þriggja ára samning við sitt gamla félag, sem náði góðum árangri undir stjórn Ásgeirs á sínum tíma. Sport 25.10.2005 17:57
Önnur kæra lögð fram á Val Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ hefur staðfest að sambandinu hafi borist kæra frá forráðamönnum Víkings á hendur Knattspyrnufélaginu Val fyrir að eiga ólöglegar viðræður við tvo af leikmönnum félagsins. Sport 24.10.2005 16:46
Charlton í annað sætið Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton lyftu sér í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar áðan, þegar þeir báru sigurorð af lánlausu liði Portsmouth á útivelli, 2-1. Sport 23.10.2005 17:51
Wenger rólegur yfir klúðri Pires Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagðist í viðtali við BBC ekki hafa verið hrifinn af tilþrifum Robert Pires í dag, þegar hann klúðraði vítaspyrnu gegn Manchester City. Wenger á afmæli í dag og sagðist gjarnan hafa viljað eitthvað annað í afmælisgjöf en þetta. Sport 23.10.2005 17:51
Pires var klaufi Robert Pires kann að hafa skorað sigurmark Arsenal gegn Manchester City í dag, en hann fór engu að síður mjög illa að ráði sínu í tvígang í leiknum. Í byrjun leiks lagði Thierry Henry upp sannkallað dauðafæri fyrir hann, en Pires tókst á óskiljanlegan hátt að skjóta boltanum yfir markið. En þar með var ekki öll sagan sögð. Sport 23.10.2005 17:51
Burley farinn frá Hearts Knattspyrnustjórinn George Burley hefur hætt störfum hjá úrvalsdeildarliðinu Hearts í Skotlandi, eftir að hafa verið í starfi í aðeins fjóra mánuði. Talið er að ástæðan sé ágreiningur milli hans og eigandans Vladimir Romanov, sem keypti félagið í febrúar. Sport 23.10.2005 17:51
Fulham vann Liverpool Leikjunum fjórum sem hófust klukkan 14 í enska boltanum er lokið. Þar ber hæst sigur Fulham á Liverpool, en mörk frá Collins John á 30. mínútu og Luis Boa Morte á þeirri 90. tryggðu Fulham góðan sigur á Evrópumeisturunum, sem hafa ekki riðið feitum hesti í úrvalsdeildinni í haust. Sport 23.10.2005 17:51
Bayern á toppinn í Þýskalandi Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen skutust í toppsæti úrvalsdeildarinnar í dag þegar þeir tóku Duisburg í kennslustund 4-0 á heimavelli sínum. Michael Ballack, Ze Roberto, Claudio Pizarro og Roque Santa Cruz skoruðu mörk Bayern í leiknum. Sport 23.10.2005 17:51
Lítið skorað á Englandi Aðeins þrjú mörk eru komin í hálfleik í leikjunum fjórum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Tottenham, þar sem Mikael Silvestre skoraði eftir mistök Paul Robinson í marki Tottenham. Sport 23.10.2005 17:51
Richardson semur við United Kieran Richardson hélt upp á 21 árs afmæli sitt með því að skrifa undir nýjan samning við Manchester United og því er ljóst að hann verður hjá félaginu til ársins 2009. Sport 23.10.2005 17:51
Davids tók Milan fram yfir United Edgar Davids hjá Tottenham Hotspur hefur viðurkennt að litlu hafi munað að hann gengi í raðir Manchester United árið 1996, en hann kaus þess í stað að fara til AC Milan á Ítalíu frá liðinu sem hann lék með þá, Ajax í Amsterdam. Sport 23.10.2005 17:51
Ronaldo verður með um helgina Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United verður í liðinu um helgina, þrátt fyrir að hafa verið kærður fyrir nauðgun. Þetta staðfesti Sir Alex Ferguson í dag. "Cristiano mætti á æfingu í gær og ég held að verði allt í lagi með hann þó þetta séu erfiðir tímar fyrir hann," sagði Ferguson, en United mætir Tottenham um helgina. Sport 23.10.2005 17:51
Enn ein meiðslin hjá Villa Wilfred Bouma, varnarmaður Aston Villa er meiddur á læri og verður frá í nokkrar vikur og eykur með því enn á meiðslavandann hjá mönnum David O´Leary, sem þegar hefur misst þá Jlloyd Samuel, Martin Laursen og Gary Cahill í erfið meiðsli. Sport 23.10.2005 17:51
Carroll klaufalegur Markvörðurinn Roy Carroll hjá West Ham verður líklega ekki á milli stanganna hjá liði sínu um helgina eftir að hafa meitt sig á hné á æfingu í dag. Meiðslin eru í hæsta máta neyðarleg, því markvörðurinn flæktist í marknetinu þegar hann var að safna saman boltum eftir æfinguna. Sport 23.10.2005 17:51