
Sambandsdeild Evrópu

Gleðitíðindi að spila á Kópavogsvelli þar sem Blikar „þekkja hvert gervigras“
Höskuldur Gunnlaugsson fagnar því að Blikar fá að spila leikinn á móti ísraelska félaginu Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeild Evrópu á þeirra eigin heimavelli í riðlakeppninni en ekki í Laugardalnum. Það kom þó ekki af góðu því færa þurfti leikinn af Laugardalsvellinum vegna veðuraðstæðna.

„Ég er ráðinn til að skipuleggja liðið og hafa klárt plan“
Blikar mæta Macabbi Tel Aviv í Sambandsdeildinni á morgun. Leikurinn hefur verið færður af Laugardalsvelli yfir á Kópavogsvöll.

Þriggja vikna vinna í vaskinn
Það er enn ekki ljóst hver mun taka á sig að kostnaðinn við undirbúning Laugardalsvallar fyrir Evrópuleiki Breiðabliks í vetur. Undirbúningur síðustu þriggja vikna fyrir síðasta heimaleikinn, sem fara átti fram á Laugardalsvelli annað kvöld, er farinn í vaskinn með einhliða ákvörðun UEFA í gær og hyggst framkvæmdastjóri KSÍ taka málið upp á fundi UEFA um komandi helgi.

Svona var blaðamannafundur Blika fyrir leikinn gegn Maccabi Tel Aviv
Halldór Árnason, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta, og Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði liðsins sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Kópavogsvelli í dag fyrir leik liðsins gegn Maccabi Tel Aviv í 5.umferð riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun.

Ákvörðun UEFA kom vallarstjóra Laugardalsvallar á óvart: „Virkilegt högg“
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir það hafa verið virkilegt högg fyrir sig og starfsfólk vallarins í gærkvöldi þegar að þau fengu veður af ákvörðun Evrópska knattspyrnusambandsins að færa leik Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu af vellinum yfir á Kópavogsvöll. Margra vikna vinn er nú farin í súginn og segir Kristinn að vel hefði verið hægt að spila leikinn á Laugardalsvelli sem sé í mjög góðu ásigkomulagi.

Blikar munu mæta til leiks gegn Ísraelum
Karlalið Breiðabliks mun mæta til leiks og spila við ísraelska liðið Maccabi Tel Aviv í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun. Þetta segir Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks en Blikar hafa verið hvattir til að sniðganga leikinn sökum mannúðarkrísunnar fyrir botni Miðjarðarhafs vegna átaka Ísraelshers og Hamas á Gasaströndinni. Sniðganga gæti hins vegar haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fyrir Breiðablik.

Blikar mæta Maccabi Tel Aviv á Kópavogsvelli
Leikur Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeild Evrópu í knattspyrnu mun fara fram á Kópavogsvelli. Líkt og aðrir heimaleikir Breiðabliks átti leikurinn að fara fram á Laugardalsvelli en vetur konungur hefur sett strik í reikninginn.

Ekkert Hátíðarlaufabrauð í ár
Fótboltatímabil Höskuldar Gunnlaugssonar, fyrirliða Breiðabliks, hefur lengst um nokkra mánuði sökum þátttöku Blika í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu og því mun hann ekki geta sinnt hliðarstarfi sínu, að steikja Hátíðarlaufabrauð, fyrir komandi jólahátíð.

Vallarstjórinn vill blöndu af gervi- og alvöru grasi
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar segist vel geta haldið vellinum leikfærum tíu mánuði á ári, en til þess þurfi hann réttan aðbúnað.

Hægt að hjálpa Jasoni Daða að verða leikmaður vikunnar
Jason Daði Svanþórsson skoraði tvö fyrstu mörk Breiðabliks í sögu riðlakeppni Sambandsdeildarinnar á Laugardalsvellinum í gær. Mörkin dugðu Blikum ekki til sigurs en gæti tryggt honum útnefninguna leikmaður vikunnar.

West Ham og Aston Villa með annan fótinn í útsláttarkeppni eftir sigra kvöldsins
Ensku úrvalsdeildarfélögin West Ham og Aston Villa eru komin með annan fótinn í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar eftir sigra sína í kvöld.

Jason Daði: Pirrandi að fá ódýr mörk á sig
Jason Daði Svanþórsson skoraði tvö mörk fyrir Blika í tapi þeirra fyrir Gent, 2-3, fyrr í kvöld. Jason þurfti að viðurkenna að gestirnir hafi verið á betri stað en þeir.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - Gent 2-3 | Breiðablik var leyft að dreyma en sigurinn kom ekki í kvöld
Breiðablik þurfti að lúta í gras fyrir Gent í fjórða leik sínum í Sambandsdeild Evrópu fyrr í kvöld 2-3. Breiðablik var einu marki yfir í hálfleik og það var verðskuldað eftir að Jason Daði Svanþórsson skoraði tvö keimlík mörk af stuttu færi. Gent kláraði verkefnið síðan í seinni hálfleik en Gift Orban skoraði öll mörk gestanna.

„Ég spilaði náttúrulega þennan leik en þú varst varla fæddur“
Breiðablik mætir í kvöld belgíska liðinu Gent í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar og í tilefni af þeir fóru tveir leikmenn liðsins í lauflétta spurningakeppni um Sambandsdeildina.

Svona var blaðamannafundur Blika fyrir leikinn á móti toppliðinu
Breiðablik spilar við belgíska félagið KAA Gent í Sambandsdeild Evrópu á Laugardalsvellinum annað kvöld. Þjálfari og leikmenn Blika ræddu við fjölmiðlamenn í dag og það má sjá fundinn hér á Vísi.

Hefur ekki tíma til að vera stressaður
Laugardalsvöllurinn er vaktaður allan sólarhringinn þessa vikuna. Pulsan er mætt aftur og er um fjórtán gráðu heitt fyrir innan hana. Blikar leika í Sambandsdeild Evrópu annað kvöld.

Leikmaður Villa huggaði stuðningsmann eftir að öryggisvörður grætti hann
Moussa Diaby, leikmaður Aston Villa, bjargaði deginum fyrir ungan stuðningsmann í gær.

Aston Villa fór illa með AZ Alkmaar og KÍ Klaksvík vann stórsigur
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa vann öruggan 1-4 sigur er liðið heimsótti AZ Alkmaar í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Á sama tíma vann færeyska liðið KÍ Klaksvík 3-0 sigur gegn Olimpija Ljubljana.

Umfjöllun: Gent - Breiðablik 5-0 | Blikar fengu slæman skell í Belgíu
Gent burstaði Breiðablik með fimm mörkum gegn engu þeggar liðin áttust við í þriðju umferð í B-riðli Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla á Ghelamco Arena í kvöld. Þetta var fyrsti leikur Blika undir stjórn Halldórs Árnasonar.

Blikar mæta sterku liði Gent í kvöld: „Getum alltaf gefið alvöru leik“
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði karlaliðs Breiðabliks í fótbolta er spenntur fyrir leik liðsins gegn Genk í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu í Belgíu í kvöld. Hann segir Blika stefna að sigri og hrósar því hvernig þjálfarateymi liðsins hefur staðið að undirbúningi þess fyrir þennan mikilvæga leik.

UEFA hafnaði beiðni Blika og KSÍ: „Það eru ákveðin vonbrigði“
Evrópska knattspyrnusambandið (UEFA) hafnaði sameiginlegri beiðni knattspyrnudeildar Breiðabliks og KSÍ um að færa síðasta heimaleik liðsins í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu út fyrir landsteinana. Formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, Flosi Eiríksson, segir höfnun UEFA vissulega vonbrigði. Hann treystir þó á að Laugardalsvöllur verði í leikhæfu ástandi er Breiðablik tekur á móti Maccabi Tel Aviv í lok nóvember.

UEFA grípur inn í og frestar leik hjá mótherjum Breiðabliks
Evrópska knattspyrnusambandið hefur fresta leik ísraelska liðsins Maccabi Tel Aviv við Zorya Luhansk frá Úkraínu í Sambandsdeild Evrópu vegna ólgunnar í Ísrael og Palestínu.

„Tími fyrir mig að taka næsta skref og standa á eigin fótum“
Halldór Árnason segir að það leggist vel í hann að taka við Blikunum og fá tækifæri á stóra sviðinu. Hann segir að verkefnið sé bæði stórt og spennandi.

UEFA frestar öllum fótboltaleikjum í Ísrael vegna stríðsástandsins
Knattspyrnusamband Evrópu hefur ákveðið að fresta öllum fótboltaleikjum sem áttu að fara fram í Ísrael næstu tvær vikur.

Hætta á að heimaleikir vetrarins verði erlendis: „Ótrúlega leiðinlegt“
KSÍ vill síður bera kostnað af því að halda Laugardalsvelli við vegna Evrópuverkefna íslenskra félagsliða í vetur. Vel má vera að færa þurfi landsleiki í febrúar og mars út fyrir landsteinana.

McGinn hetja Villa
Aston Villa vann dramatískan 1-0 sigur í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Óskar Hrafn: „Mér fannst við eiga skilið meira út úr þessum leik“
Breiðablik tapaði 0-1 gegn Zorya Luhansk á Laugardalsvelli í annarri umferð riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Blikarnir voru á löngum köflum sterkari aðili leiksins en komu boltanum ekki sjálfir í netið.

Færeyingarnir héldu Hákoni og Lille í skefjum
Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille þegar liðið sótti KÍ Klaksvík frá Færeyjum heim í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Zorya Luhansk 0-1 | Komust hvorki lönd né strönd gegn agaðri vörn gestanna
Breiðablik tapaði 0-1 á heimavelli gegn Zorya Luhansk í 2. umferð riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Blikar voru mun meira með boltann og sköpuðu sér góðar stöður inni á vellinum en tókst ekki að koma boltanum í netið að þessu sinni.

Óskar Hrafn við son sinn: Ekki láta skömmina festast á þér
Það er svo sannarlega nóg að gera hjá feðgunum Óskari Hrafni Þorvaldssyni og Orra Steini Óskarssyni í þessari viku enda báðir á fullu í Evrópukeppnunum með liðum sínum. Óskar Hrafn stýrir Blikum í dag á heimavelli í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar og Orri spilaði á móti Bayern í Meistaradeildinni á þriðjudaginn.