
Mál Ryan Giggs

Giggs sýknaður
Ryan Giggs, fyrrverandi leikmaður enska knattspyrnuliðsins Manchester United, hefur verið sýknaður af ákærum um heimilisofbeldi.

Rétta þarf aftur í máli Ryan Giggs
Kviðdómi í máli Ryan Giggs tókst ekki að komast að niðurstöðu eftir að hafa rætt málið saman í alls tuttugu klukkustundir. Réttað verður aftur í málinu þann 31. júlí á næsta ári.

Ummæli Gary Neville á borði ríkissaksóknara | Gæti fengið allt að 2 ára fangelsisdóm
Gary Neville, sparkspekingur hjá Sky Sports og fyrrum leikmaður Manchester United, gæti átt von á fangelsisvist ef hann verður fundinn sekur fyrir tilraun til að spilla kviðdómi í réttarhöldum Ryan Giggs.

Kviðdómur í máli Giggs komst ekki að niðurstöðu
Búið er að leysa frá störfum kviðdóminn sem skera átti úr um sekt eða sakleysi Ryan Giggs, sem ákærður var fyrir að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína og yngri systur hennar líkamlegu og andlegu ofbeldi.

Ferguson varði Giggs í réttarsal | Sagður hafa haldið við átta konur
Sir Alex Ferguson, fyrrum þjálfari Manchester United, og lærifaðir Ryans Giggs, sagði frá góðu sambandi sem hann hefði átt við Giggs í gegnum tíðina fyrir rétti í Manchester-borg. Giggs er sakaður um líkamsárás gegn fyrrverandi kærustu sinni, Kate Greville.

Réttarhöldin yfir Ryan Giggs: Átti erfitt með að svara spurningum saksóknara
Níundi dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, fór fram í gær. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi þau þrjú ár sem þau voru saman. Þá er hann sakaður um að hafa gefið Emmu Greville, systur Kate, olnbogaskot.

Ryan Giggs brotnaði niður og grét er hann bar vitni
Áttundi dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, fór fram í gær. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi þau þrjú ár sem þau voru saman. Þá er hann sakaður um að hafa gefið Emmu Greville, systur Kate, olnbogaskot.

Giggs segir það síðasta sem hann myndi vilja gera væri að meiða Kate andlega eða líkamlega
Í gær, þriðjudag, fór sjöundi dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, fram. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi þau þrjú ár sem þau voru saman. Þá er hann sakaður um að hafa gefið Emmu Greville, systur Kate, olnbogaskot.

Giggs sakaður um að skalla systurina og hóta að skalla kærustu sína líka
Réttarhöldin yfir Ryan Giggs, fyrrverandi leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, halda áfram. Hann er ásakaður um að hafa beitt þáverandi kærustu sína, Kate Greville, andlegu og líkamlegu ofbeldi yfir þriggja ára skeið. Í dag bar Emma Greville, systir Kate, vitni.

Greville laug varðandi krabbameinsfrumurnar en ætlaði sér aldrei að verða ólétt eftir Giggs
Fjórði dagur réttarhaldanna yfir Ryan Giggs fór fram í gær. Giggs, sem gerði garði frægan með Manchester United, er ásakaður um að beita fyrrverandi kærustu sína, Kate Greville, heimilisofbeldi yfir þriggja ára tímabil. Þá á hann að hafa ráðist á Emmu Greville, yngri systur Kate.

Leið eins og þræl í sambandinu með Ryan Giggs
Kate Greville, fyrrum kærasta Ryans Giggs, bar vitni í málinu gegn velsku knattspyrnugoðsögninni í réttarsalnum í Manchester í gær.

Giggs sagður hafa hent kærustunni nakinni út á hótelgang
Annar dagur af réttarhöldunum yfir Ryan Giggs var ekki mikið betri en sá fyrsti fyrir þennan sigursælasta leikmann í sögu Manchester United.

Ryan Giggs sagður vera með ljóta og illkvittna hlið
Mál gegn Ryan Giggs, einum dáðasta leikmanni í sögu Manchester United, hófst í gær í Manchester Minshull Street Crown dómstólnum og var þessi fyrrum leikmaður og landsliðsþjálfari Wales mættur til að heyra framsögu saksóknara.

Ryan Giggs mætir aftur í réttarsalinn í dag
Í dag hófust málaferli gegn leikjahæsta og sigursælasta leikmanninum í sögu Manchester United því Ryan Giggs er þar sóttur til saka fyrir heimilisofbeldi gegn fyrrverandi kærustu sinni.

Ryan Giggs hættur sem landsliðsþjálfari Wales
Ryan Giggs hefur formlega hætt störfum sem landsliðsþjálfari Wales en Giggs óttast að trufla undirbúning velska landsliðsins fyrir HM í Katar.

Neitar sök fyrir rétti í heimilsofbeldismáli
Réttarhöld yfir Ryan Giggs, fyrrum leikmanns Manchester United og þjálfara velska landsliðsins, hófust í Manchester-borg í dag. Giggs er ákærður fyrir heimilsofbeldi gegn fyrrverandi kærustu sinni.

Giggs ákærður fyrir árás á tvær konur
Ryan Giggs, landsliðsþjálfari Wales í fótbolta og fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur verið ákærður fyrir að ráðast á tvær konur 1. nóvember síðastliðinn.

Giggs í leyfi frá störfum sem landsliðsþjálfari eftir atvik næturinnar
Ryan Giggs stýrir ekki velska landsliðinu í nóvemberglugganum eftir að hafa handtekinn fyrir heimilisofbeldi.

Giggs handtekinn vegna gruns um að ráðast á kærustu sína
Ryan Giggs er sakaður um að hafa ráðist á kærustu sína á heimili þeirra á sunnudaginn.

Banna veðmálaauglýsingu sem grínast með framhjáhald Giggs
Breska auglýsingaráðið hefur bannað veðmálasíðunni Paddy Power að birta auglýsingar sem skörtuðu Rhodri Giggs í aðalhlutverki.

Rhodri Giggs: Bróðir minn er frábær fótboltamaður en slæm manneskja
Rhodri Giggs, yngri bróðir Ryan Giggs, leikmanns Manchester United, vandar bróður sínum ekki kveðjurnar í viðtali hjá The Sun en þar tjáir Rhodri sig um framhjáhald Ryan Giggs með eiginkonu Rhodri sem stóð yfir í átta ár.

Giggs sakaður um annað framhjáhald
Ryan Giggs var í enskum fjölmiðlum í dag sakaður um að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni með eiginkonu bróður síns.

Réðust á ljósmyndara fyrir utan heimili Giggs
Grímuklæddir menn réðust á æsifréttaljósmyndara sem höfðu tekið sér stöðu fyrir utan heimili Ryan Giggs, knattspyrnumanns í Manchester, segja heimldamenn við Sky fréttastofuna. Fréttastöðin hefur eftir heimildarmönnum sínum að ráðist hafi verið á bíla sem tilheyrðu ljósmyndurunum, skorið á dekk og eggjum hent í bílana.