Vopnaburður barna og ungmenna
1 2 3 ›
Ungmenni með hníf í skólanum Tilkynnt var um ungmenni með hníf í skólanum á lögreglustöð 1, sem sér um Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes. Málið var afgreitt með foreldrum, barnavernd og lögreglu. Innlent 28.8.2024 18:25
Þungar áhyggjur af vopnaburði ungmenna Yfirlögregluþjónar um allt land lýsa yfir áhyggjum af auknum vopnaburði ungmenna og ofbeldishegðun. Þeir segja mikla vinnu fyrir höndum og ekki síst hjá foreldrum til að snúa við þróuninni. Drengur á sextánda ári situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa stungið tvær stúlkur og dreng á sama reki. Sautján ára stúlka er í lífshættu. Innlent 28.8.2024 13:25
Ógnandi betlari og vopnuð börn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð til vegna konu sem var að betla og ógnaði þeim sem tilkynnti. Innlent 28.8.2024 06:10
Alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum Alvarleg ofbeldisbrot ungmenna hafa fjórfaldast á tíu árum og sífellt algengara er að hnífur komi við sögu. Dómsmálaráðherra er slegin yfir lífshættulegulegri hnífaárás á menningarnótt. Nú þurfi allt samfélagið að leggjast á eitt til að sporna við slíkum brotum. Innlent 27.8.2024 19:28
Sífellt fleiri ungmenni með hníf til að verja sig Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir að útköllum vegna vopnaburðar hafi fjölgað verulega á síðustu árum. Sjö prósent ungmenna frá 7. bekk að 1. ári í framhaldsskóla svöruðu því játandi að hafa borið hníf í nýlegri könnun. Flestir sögðust hafa viljað verja sig. Innlent 26.8.2024 23:00
Faðir pilts sem lenti í stunguárás hélt að sonurinn væri látinn Faðir palestínsks drengs sem varð fyrir alvarlegri stunguárás á menningarnótt ásamt tveimur íslenskum stúlkum segist hafa talið að hann væri að bjarga lífi barnanna sinna með því að flytja til Íslands. Hann óttast nú um líf sonarins. Innlent 26.8.2024 19:34
Átti leið hjá fyrir tilviljun og tókst að endurlífga stúlkuna Ryan Cocuera, 32 ára hjúkrunarfræðingur á taugadeild Landspítalans, var á leiðinni heim með fjölskyldunni sinni á Menningarnótt í gær þegar hann kom að stúlku sem lá í blóði sínu á Skúlagötu eftir hnífstunguárás. Innlent 25.8.2024 15:05
Þrjú ungmenni með áverka og eitt í alvarlegu ástandi eftir stunguárásina Þrír eru með stunguáverka og þar af einn í alvarlegu ástandi eftir líkamsárás í miðborginni í gær þar sem hnífi var beitt. Allir voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans til aðhlynningar og gekkst hinn alvarlega slasaði undir aðgerð í nótt. Brotaþolar og hinn grunaði eru öll sögð vera ungt fólk. Innlent 25.8.2024 10:06
Hafa áhyggjur af auknu ofbeldi, áhættuhegðun og vopnaburði barna Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði umtalsvert fyrstu mánuði þessa árs samanborið við í fyrra. Neikvæð áhrif kórónuveirufaraldursins, aukin vanlíðan meðal barna og samfélagsmiðlar er meðal þess sem kann að skýra þróunina að sögn forstjóra forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Þróunin sé mikið áhyggjuefni sem tilefni sé til að rannsaka betur. Innlent 22.7.2024 13:45
Hafa áhyggjur af hópamyndun ungra karlmanna Heilt yfir hefur ofbeldisbrotum ungmenna ekki fjölgað hér á landi frá árinu 2007. Hins vegar hefur tilkynningum til lögreglu um alvarleg ofbeldisbrot fjölgað og hafa þau aldrei verið fleiri. Þá hefur lögregla sérstakar áhyggjur af hópamyndun ungmenna og ungra karlmanna í ofbeldismálum. Innlent 24.6.2024 10:28
Dæmi um börn í öðrum bekk með hnífa í grunnskólum Dæmi er um að börn í öðrum og þriðja bekk hafi mætt með hnífa í skólann hér á landi. Sérfræðingur í öryggisgæslu hefur verulegar áhyggjur af þróuninni. Innlent 1.9.2023 19:35
Ungmenni viti oft ekki hvað megi ekki segja Taka þarf hart á auknu ofbeldi meðal ungmenna að sögn skrifstofustjóra frístundamála hjá Reykjavíkurborg. Hún segir það vanta að börn læri hvað megi segja og hvað megi ekki segja í samskiptum við annað fólk. Innlent 13.6.2023 11:47
Vill 700 þúsund króna sekt við hnífaburði á kvöldin Öryggis- og löggæslufræðingur segir nauðsynlegt að bregðast skjótt við til að koma hnífum af götum landsins. Hann telur að banna eigi hnífaburð „í margmenni“ frá sex á kvöldin til sjö á morgnanna og að sektir við slíku verði 700 þúsund krónur. Einnig leggur hann til bann á sölu allra hnífa nema eldhúsáhalda og verkfæra. Innlent 25.4.2023 23:41