
Mjaldurinn Hvaldímír

Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar
Mjaldurinn Hvaldímír drapst í kjölfar bakteríusýkingar sem hann fékk vegna sárs í munni eftir prik sem sat fast. Það sýna niðurstöður krufningar. Greint er frá þessu á vef norska ríkisútvarpsins, NRK. Engar byssukúlur fundust í mjaldrinum við skoðun. 35 sentímetra langt og þriggja sentímetra breitt prik var fast í munni mjaldursins og er talið að prikið hafi valdið sýkingu sem svo leiddi til dauða hans.

Segja Hvaldimír hafa verið skotinn
Dýraverndarhópar í Noregi segja að Semjon, sem gjarnan var kallaður Hvaldimír, „njósnamjaldurinn“ frægi, hafi verið skotinn. Forsvarsmenn Noah og One Whale hafa farið fram á að dauðu hvalsins verði rannsakaður af lögreglunni í Noregi.

Njósnamjaldurinn Hvaldimir allur
Mjaldurinn geðþekki Semjon, betur þekktur sem Hvaldimir, er allur. Sá komst í heimsfréttirnar fyrir nokkrum árum fyrir að vera sérlega gæfur, en mögulega ekki allur þar sem hann var séður.

„Njósnamjaldurinn“ skýtur upp kollinum í Svíþjóð
Sænsk yfirvöld klóra sér nú í kollinum yfir því hvað þau eigi að gera með mjaldurinn Hvaldímír, grunaðan njósnara í þjónustu Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, eftir að hann lét sjá sig við strendur landsins nýlega. Talið er að mjaldurinn sækist enn eftir samskiptum við menn.

Mjaldurinn líklega ekki njósnari heldur þroskaþjálfi
Mjaldurinn sem fannst úti fyrir Finnmörk í Noregi í lok apríl virðist ekki vera njósnari á vegum rússneska sjóhersins, líkt og talið var í fyrstu, heldur hafi hann verið notaður við meðferð á andlega veikum börnum í Rússlandi.

Njósnamjaldurinn gæti stofnað velferð systranna í hættu í Vestmannaeyjum
Þetta kemur fram í svari samtakanna Sea life trust sem standa að flutningi mjaldrasystranna hingað til lands.

Njósnamjaldurinn nefndur Hvaldimir
Nafnið þykir hinn sniðugasti leikur að orðum sem sameinar norska orðið yfir hval og nafn Rússlandsforseta.

Rússneski „njósnamjaldurinn“ verði mögulega fluttur til Íslands
Sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun Noregs segir að hinn meinti rússneski njósnamjaldur, sem komst í heimsfréttirnar í vikunni, verði mögulega fluttur í hvalaathvarf á Íslandi. Það myndi auka lífslíkur mjaldursins.

„Heldurðu virkilega að við myndum hengja á hann símanúmer?“
Mjaldur, sem fannst í norskri landhelgi í vikunni og er talinn á vegum rússneska sjóhersins, hefur leikið listir sínar fyrir íbúa Tufjord í Noregi undanfarna daga. Rússneskur ofursti gefur lítið fyrir þær fullyrðingar að mjaldurinn sé gerður út til njósna af rússneska hernum.

Grunsamlegur mjaldur í norskri landhelgi talinn þjálfaður af Rússum til hernaðar
Mjaldrinum var veitt sérstök eftirtekt þar sem hann hafði utan um sig beisli, sem sérfræðingar telja að sé til þess að festa á myndavél eða vopn.