Kosningar 2013

Ný ríkisstjórn þarf að horfa til framtíðar
Formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs segir nýja ríkisstjórn þurfa að hafa breiða skírskotun og horfa til framtíðar. Hún segir áherslur Sjálfstæðisflokks og Framsóknar á skattalækkanir og niðurfellingu skulda ekki til þess fallnar að til að tryggja félagslegt réttlæti á Íslandi.

Fengu sér vöfflur með kaffinu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, borðuðu vöfflur með kaffinu í dag, samkvæmt upplýsingum frá Jóhannesi Þ. Skúlasyni, aðstoðarmanni Sigmundar Davíðs.

Skora á félagana að skoða strimilinn
Samtök verslunar og þjónustu skora á Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, að skoða strimilinn sem þeir fengu við matarinnkaupin í Krónunni í Mosfellsbæ í morgun.

Gerir ekki kröfu um að verða forsætisráðherra
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur sig geta náð samkomulagi við formann Framsóknarflokksins um skuldamál heimilanna og skattalækkanir. Formlegar stjórnarmyndunarviðræður flokkannna fyrir hádegi en er fundað fyrir utan borgarmörkin.

Keyptu saman í matinn í morgun
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sáust í Krónunni í Mosfellsbæ snemma í morgun.

Sigmundur ekki byrjaður í stjórnarmyndunarviðræðum
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ekki sé hægt að tala um það að stjórnarmyndunarviðræður séu hafnar með Sjálfstæðisflokknum, jafnvel þótt hann og Bjarni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi hist í annað sinn í dag. Hann sagði í samtali við Reykjavík síðdegis í dag að aðalmálið væri að ná samstöðu um skuldamál heimilanna.

Bjarni og Sigmundur hittast aftur í dag
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ætla að hittast aftur í dag til að fara yfir stöðu mála. Þeir hittust í gær til að ræða málin og mun fundur þeirra hafa staðið yfir langt fram á kvöld. Eins og fram hefur komið er eini möguleikinn á tveggja flokka ríkisstjórn, stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, en flokkarnir fengu kjörna nítján þingmenn hvor.

FT: Kröfuhafar tilbúnir til samninga við íslensk stjórnvöld
Financial Times greinir frá því í dag að erlendir kröfuhafar þrotabúa gömlu bankanna hafi vaxandi áhuga á því að ganga til samninga við íslensk stjórnvöld. Þeir séu jafnframt viðbúnir því að þurfa að gefa afslátt af kröfum sínum.

Bið eftir stjórnarmyndun reynir á taugarnar
Biðin eftir stjórnarmyndun reynir á taugar margra þessa dagana og þótt flestir virðist telja að stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks taki við að lokum eru ýmsir möguleikar ræddir. Margar Sjálfstæðismenn virðist svíða að Framsóknarflokkurinn muni að öllum líkindum taka við forsætisráðuneytinu.

Mesta tap beggja stjórnarflokkanna í Suðurkjördæmi
Fylgistap Vinstri grænna í Suðurkjördæmi reyndist mesta afhroð alþingiskosninganna um síðustu helgi.

Fréttaskýring: Einlægni eða lævís leikur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknaflokksins, hefur nú fundað með formönnum allra flokka sem náðu manni á þing. Hann hafði gefið það út að það væri

Aðferðir Sigmundar umdeildar
Málefnin eru ekki í stafrófsröð og undarlegt að formaður Framsóknar hafi valið þá leið til stjórnarmyndunarviðræðna, málefni séu með þessu sett á tilboðsmarkað. Þetta segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins. Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, segir hins vegar að með þessu séu öllum sýnd virðing. Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður fráfarandi velferðarráðherra, segir atburðarásina minna sig á Dallas.

Bjarni og Sigmundur ætla að funda í dag
Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætla að hittast síðar í dag, samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur úr herbúðum framsóknarmanna.

Allt tal um minnihlutastjórn brandari
Allt tal um minnihlutastjórn hljómar eins og brandari. Þetta segir sagnfræðingur sem rannsakað hefur stjórnarmyndarnir og stjórnarslit á Íslandi. Stjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sé langlíklegasta niðurstaðan þegar menn séu búnir að sýna skrautfjaðrirnar og dansa stríðsdansa.

Fundurinn haldinn til að skýra myndina
"Þetta var ágætur fundur,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, eftir að hún hitti Sigmund Davíð Gunnlaugsson í morgun. Fundarefnið var stjórnarmyndun, en Sigmundur Davíð sagði í gær, þegar hann fékk stjórnarmyndunarumboð, að hann hygðist ræða við forystumenn allra flokka á Alþingi. Katrín sagði við fréttamann Stöðvar 2 og Vísis að engin niðurstaða hefði orðið af fundinum, en farið hefði verið yfir þau stefnumál sem VG og Framsóknarflokkurinn myndu leggja áherslu á ef til stjórnarmyndunar kæmi.

Fundir forystumanna halda áfram
Fundir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, með forystumönnum annarra flokka sem eiga kjörna þingmenn halda áfram. Hann átti fund með Katrínu Jakobsdóttur í bítið og mun funda með forystumönnum Bjartrar Framtíðar klukkan ellefu. Hann fundaði með Árna Páli Árnasyni, formanni Samfylkingarinnar, og Birgittu Jónsdóttur, kapteini Pírata, í gær.

Telur minnihlutastjórn vera góðan kost
"Ég held að það sé mögulegt að útkoma stjórnarmyndunar muni koma öllum á óvart," segir Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata, sem fundaði með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, í gær um stjórnarmyndun. Sigmundur Davíð fundaði einnig með Árna Páli Árnasyni, formanni Samfylkingarinnar, og hyggst funda með fleirum í dag.

Ekki hægt að sakast við Árna Pál
Ekki er hægt að sakast við Árna Pál Árnason formann Samfylkingarinnar um fylgishrun flokksins í kosningunum að mati stjórnmálafræðings þar sem Árni hafi tekið við flokknum þegar hann mældist með tiltölulega lágt fylgi. Hann telur Árna hafa verið í sambærilegri stöðu og Bjarni Benediktsson þegar hann tók við Sjálfstæðisflokknum eftir hrun.

Sigmundur Davíð búinn að hitta Árna Pál og Birgittu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er byrjaður að hitta formenn annarra flokka sem fengu kjörna þingmenn í nýliðnum kosningum.

Frétt um útstrikanir reyndist röng
Frétt um útstrikanir oddvita frambjóðenda í Reykjavíkurkjördæmi norður, sem Vísir greindi frá fyrr í dag, er röng. Vísir greindi þar frá því að Björt Ólafsdóttir hefði verið með hæsta hlutfall útstrikana og að Illugi Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefði verið oftast strikaður út.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins komu saman
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom saman á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, í Valhöll, klukkan tvö í dag. Þar fer þingflokkurinn saman yfir niðurstöður nýafstaðnar kosningar og tíðindi dagsins þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, stjórnarmyndunarumboð.

Eðlilegt að Sigmundur fengi umboðið
"Ég var búin að lýsa því yfir strax eftir kosningar að líklegast væri eðlilegast að Sigmundur fengi umboðið," segir Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, um atburði morgunsins. Annars vegar sé Framsóknarflokkurinn annar af stærstu flokkunum og hins vegar sé flokkurinn stærsti sigurvegarinn í kosningunum.

Guðmundur Steingrímsson setur skýr skilyrði fyrir stjórnarþátttöku
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, segir að hann myndi mæta til fundar við Sigmund Davíð um stjórnarmyndun ef hann fengi símtal frá honum. Sigmundur Davíð sagði í dag að hann myndi tala við formenn allra flokka sem fengu kjörna menn á þing í stafrófsröð.

Sigmundur ætlar að funda með öllum flokkum - skuldamál heimilanna forsenda samstarfs
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins umboð til þess að hefja stjórnarmyndunarviðræður. Engin tímamörk eru á viðræðunum. Ólafur Ragnar segir að þrennt hafi komið til þess að hann tók þessa ákvörðun.

Píratar vilja ekki fara í ríkisstjórn
"Við viljum ekki taka þátt í ríkisstjórn," segir Birgitta Jónsdóttir, kafteinn Pírata, sem rétt í þessu gekk út af fundi sínum með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Þar með lauk fundahrinu forsetans, sem hefur tekið á móti formönnum stjórnmálaflokka á Bessastöðum frá því í morgun.

Heiða: "Við erum í símaskránni"
"Við erum að sjálfsögðu til í að ræða við hina flokkana - það stendur ekkert á okkur,“ segir Guðmundur Steingrímsson, annar tveggja formanna Bjartrar framtíðar, sem nú rétt fyrir sex lauk fundi sínum með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, á Bessastöðum.

Katrín fámál eftir fund með forsetanum
„Við fórum yfir stöðuna eins og hún lítur út - það var ekkert meira en það,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs eftir fund sinn með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, sem lauk nú rétt fyrir fimm.

Mælti með að Sigmundur fengi umboðið
Eðlilegt er að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksinsverði falið umboð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar, að mati Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar. Þetta sjónarmið tjáði hann Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á fundi sínum með honum á Bessastöðum nú fyrir skemmstu. Árni Páll sat hjá forsetanum í tæpa klukkstund.

Sigmundur Davíð kominn á Bessastaði
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins er komin til fundar með Ólafi Ragnari Grímssyni.

Árni Páll umdeildur í eigin flokki
Staða Samfylkingarinnar og formanns hennar er erfið eftir þessar kosningar segir Ólína Þorvarðardóttir þingmaður flokksins sem datt út af þingi um helgina. Slakt gengi flokksins megi meðal annars rekja til framgöngu forystunnar í sínum stærstu stefnumálum við þinglok. Flokkurinn þurfi nú fyrst og fremst að líta í eigin barm.