Úkraína
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 79 ›
Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna undirbýr nú umfangsmikla sendingu hergagna til Úkraínu. Pakkinn mun meðal annars innihalda bryndreka, annarskonar farartæki, skotfæri fyrir stórskotalið og loftvarnarkerfi og langdrægar eldflaugar. Erlent 22.4.2024 22:31
Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Pólland er reiðubúið til að leyfa bandamönnum að koma fyrir kjarnorkuvopnum í landinu ef Atlantshafsbandalagið ákveður að koma vopnunum fyrir víðar til að bregðast við auknum viðbúnaði Rússa í Belarús og Kalíningrad. Erlent 22.4.2024 09:10
Heita Úkraínu 61 milljarði dala í stuðning Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur loks samþykkt 60 milljarða dala aðstoð við Úkraínu eftir margra mánaða töf þingmanna Repúblikana á bandi Donalds Trump. Frumvarpið var samþykkt með miklum meirihluta. Erlent 20.4.2024 19:10
Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Allt stefndi í að frumvörp um hernaðaraðstoð frá Bandaríkjunum til Úkraínu, Ísrael og bandamanna Bandaríkjanna í Austur-Asíu myndu festast í nefnd í gær, þar til Demókratar komu Mike Johnson, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, til aðstoðar. Erlent 19.4.2024 14:04
Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Úkraínskir hermenn segjast hafa skotið niður verðmæta rússneska sprengjuflugvél. Flugvélin er af gerðinni Tu-22M3 en þær eru meðal annars notaðar til að skjóta eld- og stýriflaugum að Úkraínu. Erlent 19.4.2024 09:44
Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Pólskur maður hefur verið handtekinn í tengslum við áform rússneskra yfirvalda um að ráða Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta af dögum. Þetta segja saksóknarar í Póllandi og Úkraínu. Erlent 19.4.2024 06:32
Johnson í erfiðri stöðu Frumvarp um frekari hernaðaraðstoð frá Bandaríkjunum til Úkraínu hefur færst nær því að verða lagt fyrir fulltrúadeild Bandaríkjaþings, eftir að hafa setið þar fast í marga mánuði. Mike Johnson, þingforseti, kæmi frumvarpinu ekki í gegnum þingið án aðstoðar Demókrata og það gæti þar að auki kostað hann embættið. Erlent 18.4.2024 16:38
Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Þrettán eru sagðir fallir í það minnsta og rúmlega sextíu særðir eftir að þrjú rússnesk flugskeyti hæfðu íbúðarblokk nærri miðborg Tsjérnihiv í norðanverðri Úkraínu í morgun. Enn er leitað að fórnarlömbum í húsarústum. Erlent 17.4.2024 11:18
Áætla að yfir 50.000 rússneskir hermenn hafi fallið í átökunum Fleiri en 50.000 rússneskir hermenn hafa nú fallið í átökunum í Úkraínu, samkvæmt BBC. Mannfallið var 25 prósent meira á öðru ári átakanna, ef talið er í mánuðum frá því að innrásin hófst, heldur en fyrstu tólf mánuðina. Erlent 17.4.2024 06:49
Sirskí segir stöðuna hafa versnað töluvert Staða Úkraínumanna á víglínunni í Austur-Úkraínu hefur versnað töluvert á undanförnum dögum. Þetta segir Oleksandr Sirskí, yfirmaður herafla Úkraínu, en hann segir Rússa hafa gefið töluvert í á undanförnum vikum. Erlent 13.4.2024 14:01
Samþykktu loks frumvarp um herkvaðningu Úkraínska þingið samþykkti í morgun nýtt frumvarp um það hvernig haldið er utan herkvaðningu. Frumvarpið hefur verið til umræðu í þinginu í marga mánuði og tekið umfangsmiklum breytingum. Lögin þykja óvinsæla en fela meðal annars í sér að lækka lágmarksaldur herkvaðningar úr 27 árum í 25 ár og auðvelda yfirvöldum að kveðja menn í herinn. Erlent 11.4.2024 11:52
Erfiðir dagar í vændum á óreiðukenndu þingi Bandarískir þingmenn snúa aftur úr tveggja vikna páskafríi í dag, þriðjudag, en þeir standa frammi fyrir þó nokkrum umdeildum og erfiðum málum. Óreiða hefur einkennt þingið þetta kjörtímabil og þá sérstaklega í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem Repúblikanaflokkurinn hefur haft nauman og minnkandi meirihluta. Erlent 9.4.2024 08:00
Grossi varar við drónaárásum á Zaporizhzhia-kjarnorkuverið Rafael Grossi, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, hefur fordæmt drónaárásir á einn af sex kjarnakljúfum Zaporizhzhia-kjarnorkuversins í Úkraínu Erlent 8.4.2024 06:44
Felldu þrjá slökkviliðsmenn með drónum í Karkív Að minnsta kosti fjórir létu lífið í nótt þegar sjálfsprengidrónum var flogið á tvö fjölbýlishús og orkuver í Karkív, næst stærstu borg Úkraínu. Rússar hafa látið sprengjum rigna yfir borgina á undanförnum vikum og valdið þar miklum skemmdum og mannfalli. Erlent 4.4.2024 15:14
Tónleikahöllin var nefnd sem mögulegt skotmark ISKP Bandarískir embættismenn vöruðu rússneska kollega sína við því að tónleikahöllin í Crocus væri mögulegt skotmark vígamann Íslamska ríkisins í Khorasan, eða ISKP, rúmum tveimur vikum áður en fjórir menn myrtu þar minnst 144. Ráðamenn í Rússlandi hunsuðu viðvörunina og Vladimír Pútín, forseti, sagði nokkrum dögum fyrir árásina að Vesturlönd væru að reyna að kúga Rússland. Erlent 3.4.2024 13:00
Herkvaðningaraldurinn lækkaður úr 27 árum í 25 ár Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að herkvaðningaraldurinn verði lækkaður úr 27 ára í 25 ára. Erlent 3.4.2024 06:32
„Lifum á þýðingamestu tímum frá endalokum seinni heimsstyrjaldarinnar“ Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands segir Evrópu vera á „fyrirstríðstímum“ og varar við því að Úkraína megi ekki lúta í lægra haldi fyrir Rússlandi. Heimsálfan eigi mikið undir og stríð ekki lengur draugar fortíðar. Erlent 30.3.2024 08:37
Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Degi áður en sendiráð Bandaríkjanna í Moskvu gaf út opinbera viðvörun um mögulegar árásir öfgamanna á tónleika eða aðra samkomustaði í Moskvu höfðu starfsmenn Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) í Moskvu sent rússneskum kollegum sínum sambærileg skilaboð. Erlent 28.3.2024 19:59
Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Alexander Bortnikov Yfirmaður Leyniþjónustu Rússlands, FSB, lýsti því yfir í dag að Úkraínumenn hefðu þjálfað íslamska öfgamenn í Mið-Austurlöndum og bæru ábyrgð á árásinni á tónleikahöllina í Crocus um helgina. Þá bendlaði hann Bandaríkjamenn og Breta við árásina. Erlent 26.3.2024 22:31
Beinir spjótunum enn að Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir öfgamenn úr röðum íslamista hafa gert árásina á tónleikahöllina í Crocus um helgina en beinir spjótum sínum þó áfram að Úkraínu og Bandaríkjunum. Í ræðu í kvöld gaf hann í skyn að árásarmennirnir hefðu fengið borgað fyrir árásina og frá Úkraínu. Erlent 25.3.2024 22:01
Pólverjar virkja aukinn viðbúnað eftir „gríðarlegar“ árásir Pólski flugherinn hefur virkjað aukinn viðbúnað í kjölfar loftárásarhrinu Rússa í Kyiv höfuðborg Úkraínu og Lviv í austurhluta landsins. Um er að ræða þriðju árásirnar um nótt á fjórum dögum. Erlent 24.3.2024 07:58
Umfangsmiklar árásir á Úkraínu Rafmagnsleysi hefur orðið víða í Úkraínu eftir umfangsmikla árás Rússa á orkuinnviði landsins í nótt og í morgun. Úkraínumenn segja Rússa hafa notað rúmlega sextíu Shahed-sjálfsprengidróna frá Íran og tæplega níutíu eld- og stýriflaugar. Erlent 22.3.2024 11:56
Samkomulag að nást um að nýta vexti af Rússaeignum í þágu Úkraínu Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandins hafa komist að samkomulagi um að veita vöxtum af þeim eignum Rússa sem hafa verið frystar í refsiaðgerðum sambandsins til að fjármagna varnir Úkraínumanna. Erlent 22.3.2024 06:39
Ræða að veita vöxtum af frystum eignum Rússa til Úkraínu Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins munu funda í Brussel í dag en á dagskránni verða meðal annars umdeildar hugmyndir um að veita vöxtum af frystum eignum Rússa til Úkraínu. Erlent 21.3.2024 07:09
Rússar segja íslenska málaliða í Úkraínu María Sakaróva, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, segir íslenska málaliða berjast í Úkraínu, sem er ekki rétt. Hún gagnrýnir að Alþingi Íslendinga sé að skoða að festa stuðning við Úkraínu í sessi og að verið væri að endurskoða opinber samskipti Rússlands og Íslands. Erlent 20.3.2024 15:20
Vill festa stuðning við Úkraínu í sessi Utanríkisráðherra kynnti þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára á Alþingi í dag. Markmið stefnunnar er að festa umfangsmikinn stuðning Íslands við Úkraínu í varnarstríði sínu gegn innrásarliði Rússlands í sessi til langframa. Innlent 19.3.2024 23:23
Úkraínumenn senda fjölda dróna langt inn í Rússland Varnarmálaráðuneyti Rússlands sakar stjórnvöld í Úkraínu um að hafa reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í landinu með einni umfangsmestu drónaárás sem Úkraínumenn hafa gert á Rússland. Erlent 18.3.2024 08:24
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Pútín sagður ætla að „taka til“ eftir kosningarnar Hægt hefur á sókn Rússa vestur af Avdívka, fyrstu borgina sem fallið hefur í hendur Rússa um langt skeið. Rússneskir hermenn gera þó áfram tiltölulega smáar árásir víðsvegar á víglínunni í austurhluta Rússlands, að virðist í leit að veikleikum á vörnum Úkraínumanna. Erlent 17.3.2024 08:00
Látinn horfa á hermenn nauðga óléttri móður sinni og kærustu Rússneskir hermenn ruddust inn á heimili í Kyiv-héraði í Úkraínu í mars 2022, skömmu eftir að innrás Rússa hófst. Þar nauðguðu þeir 42 ára konu sem gengin var þrjá mánuði á leið og sautján ára kærustu sonar hennar ítrekað, á meðan þeir þvinguðu soninn til að horfa á. Erlent 16.3.2024 16:01
Segir Úkraínumenn ekki skorta hugrekki, heldur skotfæri Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, varaði við því í dag að Úkraínumenn glímdu við mikinn skotfæraskort og þyrftu meiri stuðning frá bakhjörlum þeirra. Hann sagði bakhjarla Úkraínu skorta pólitískan vilja. Erlent 14.3.2024 15:02